Náttúrufræðingurinn - 2019, Page 17
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
17
Líkleg hámarksútbreiðsla flóðbylgju
af völdum berghlaups af svipaðri stærð
og í júlí 2014 er sýnd með appelsínu-
gulum lit á myndinni. Það er nokkuð háð
stað berghlaupsins hvar áhrifanna gætti
mest en austur- og vesturströnd vatnsins
liggja verst við. Það er vegna nálægðar
við upptakasvæði en ekki síður vegna
þess hversu aflíðandi ströndin þar er
í samanburði við suður- og norður-
ströndina. Vítisströndin liggur mjög illa
við flóðbylgjum af völdum berghlaups
úr suðausturbarminum og er það aflíð-
andi að vatnið getur gengið mjög langt
á land. Það tekur flóðbylgjuna eina til
hálfa aðra mínútu að ná ströndinni
við Víti. Það er misjafnt hvort fyrsti
bylgjufaldurinn er hæstur eða einhver
hinna sem á eftir koma en í öllum til-
vikum fylgja margar stórar bylgjur í
kjölfar þeirrar fyrstu. Flóðbylgjan við
Víti nær víða upp í 30–40 m hæð yfir
yfirborð vatnsins.
Flóðbylgja af völdum skriðu tvöfalt
stærri en þeirrar sem féll 2014 gengi
mjög langt á land nánast allan hringinn
í kringum vatnið. Það er til marks um
kraftinn að bylgjan gæti náð upp að brún
við norðurströndina þrátt fyrir mikinn
bratta. Ferðamönnum við Víti stafaði
augljóslega mikil hætta af slíkri bylgju.
Flóðbylgjan næði að ströndinni þar eftir
um mínútu og upp yfir brún Vítis eftir
um hálfa aðra mínútu. Þegar vatnið
kemur yfir brúnina rennur það undan
halla yfir 200 m til norðurs í átt að bíla-
stæðinu við Vikraborgir en vatnsdýptin
yrði víðast hvar minni en 1 m. Fyrsti
bylgjufaldurinn yrði langhæstur og
seinni toppar næðu ekki upp yfir brúnina
við Víti. Það ber þó að hafa í huga að
nákvæm útbreiðsla á gönguleiðinni frá
Víti að Vikraborgum er óviss vegna þess
hversu gropið hraunið er á þessu svæði.
Hugsanlegt er að hluti vatnsins hripaði
niður um sprungur, sem gæti hamlað
útbreiðslu bylgjunnar.
Ljóst er að berghlaup og flóðbylgjur
af þeirra völdum geta skapað mikla
hættu fyrir fólk sem statt er í Öskju. Í
hættumati sem unnið var í framhaldi af
berghlaupinu í júlí 20143 er þó komist
að þeirri niðurstöðu að áhætta sem fólki
er búin af völdum berghlaups í Öskju
sé ekki mikil þegar tillit er tekið til þess
hversu sjaldgæf hlaupin eru og til þess að
fólk staldrar alla jafna stutt við á svæð-
inu. Tilefni er engu að síður til ákveðinna
aðgerða til þess að draga úr slysahættu
fyrir þá sem oft eiga leið um svæðið.
Þessar aðgerðir hafa jafnframt þann kost
að draga stórlega úr líkum á hópslysum,
sem einnig er rétt að huga að. Með þeim
aðgerðum virðist ljóst að unnt sé að stytta
tímann sem fólk dvelst á hættusvæð-
inu að minnsta kosti tífalt og má ætla
að áhætta bæði ferðamanna og annarra
verði þá viðunandi þegar miðað er við
áhættuna sem lögð er til grundvallar í
hættumati vegna ofanflóða hér á landi.46
Á sérstöku hættumatskorti sem fylgir
hættumatinu frá 2016 eru afmörkuð tvö
hættusvæði vegna flóðbylgju. Annars
vegar er svæði þar sem mælt er með að
ferðamenn og aðrir sem fara um svæðið
hafi ekki langa viðdvöl. Þar þarf að forð-
ast að setja upp fræðsluskilti eða koma
upp aðstöðu sem ferðafólk staðnæmist
við. Þetta svæði miðast við flóðbylgju
af völdum berghlaups sem er allt að því
jafnmikið og hlaupið 2014. Hins vegar er
skilgreint viðbúnaðarsvæði sem svarar
til allt að tvöfalt stærri hlaups. Þar er
rétt að vara við umferð ef vísbendingar
eru um yfirvofandi hlaup, svo sem ef
vart verður við sprungumyndun eða
hreyfingu á jarðlögum nærri öskjubrún-
inni eða í kjölfar mikilla jarðskjálfta
nærri Öskju sem ástæða er til að óttast
að geti leitt til berghlaups.
16. mynd. Reiknuð efstu mörk flóðbylgju
á bökkum Öskjuvatns. Rautt svæði sýnir
hámarks út breiðslu flóð bylgna af völdum
helmingi minna berghlaups en í júlí 2014 (V/2),
appelsínugult sýnir útbreiðslu frá jafnstóru
hlaupi (V) og gult útbreiðslu frá tvöfalt stærra
hlaups (2V). Reiknuð mesta hæð flóð bylgj-
unnar fyrir hverja stærð berg hlaups í metrum
er sýnd með tölum við ströndina á nokkrum
stöðum umhverfis vatnið. Á hverjum stað
sýna tölurnar niðurstöður líkanreikninga
fyrir berghlaup með rúmmál sem er helmingur
(neðst), jafnstórt (miðja) og tvöfalt (efst) á við
berghlaupið í júlí 2014. Svört lína sýnir mælda
og metna hæð flóðbylgjunnar í júlí 2014. –
Simulated maximum inundation of tsunami
waves along the shoreline of Lake Öskjuvatn.
Red areas show inundation for a rockslide
half the size of the slide in July 2014 (V/2),
orange areas inundation caused by a slide
of same size as in 2014 (V), and yellow areas
inundation caused by a slide twice the size
as in 2014 (2V). Maximum run-up in metres is
shown at several locations along the shore-
line, for a rockslide half the size (top), same
size (middle) and twice the size (bottom) as in
2014. The black curve shows the measured/
estimated run-up of the tsunami in July 2014.