Náttúrufræðingurinn - 2019, Síða 25
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
25
3. mynd. Myndavéladróninn DJI Phantom
4 Pro+ ásamt fjarstýringu. – DJI Phantom
4 Pro+ drone and remote control. Ljósm./
Photo: DJI.
30 m þar sem sú fjarlægð er talin fyrir-
byggja áhrif á flestar tegundir fugla,48,49
en miðað var við að taka allt myndefni
í 50 m fjarlægð frá eyjunni vegna óvissu
um viðbrögð fugla eyjunnar við nær-
veru drónans. Drónanum var alls flogið
tvisvar frá bátnum að eyjunni, en yfir-
flug (frá norðri til suðurs) voru fjögur
talsins (2. mynd). Einn hreyfill drónans
laskaðist við lendingu á bátnum eftir
aðra ferðina. Smávægilegt tjón varð á
hreyfilshöldu, og þar sem varahlutur
var ekki meðferðis reyndist ekki unnt
að ljúka myndatökum af allri eyjunni
eins og stefnt var að. Aðeins náðist að
mynda þekju (lárétt yfirborð) hennar.
Því var siglt í kringum eyjuna og bjargið
myndað í um 50 m fjarlægð með DSLR-
-myndavélum með aðdráttarlinsu. Setur
ritna og fýla voru talin. Ritur voru flokk-
aðar í tvo hópa, annars vegar þær sem
lágu á hreiðri og hins vegar þær sem
stóðu á syllum. Öll sjáanleg svartfugla-
bæli voru mynduð sérstaklega.
tækjAbúNAður
Dróni af gerðinni DJI Phantom 4
Pro+ (DJI Technology Co., Shenzhen,
Kína) var notaður við myndatökurnar
(mesta lengd 350 mm, þyngd 1380 g,
flugtími um 30 mínútur, mesti flug-
hraði 20 m/s, drægni fjarstýringar 7
km, mesta vindþol ~ 10 m/s) (3. mynd).
Dróninn er búinn innbyggðri myndavél
með 20 megapixla CMOS-myndflögu
(ISO 12800, ljósop linsu F/2,8-11), og
getur tekið upp 4K 60P-myndskeið.
Hljóð frá drónanum er um 77 db í 1 m
hæð/fjarlægð.
Við myndatökur af bjargi eyjunnar var
notast við myndavél af gerðinni Canon 7
Mark II (20.2 megapixla APS-C CMOS-
-myndflaga) með linsunum Canon EF
100-400mm f/4.5-5.6L IS II USM og
Canon EF 16-35mm f/4L IS USM.
úrviNNslA
Súlusetur á þekju Eldeyjar voru talin
af stillum úr myndböndum drónans.
Allar myndir voru teknar í 90° lóðlínu
við þekjuna. Þekjunni var skipt í 20
fláka til að einfalda talningu (4. mynd
A). Fuglar og setur í bjargi eyjunnar
voru talin af ljósmyndum teknum á
DSLR-myndavélar. Bjarginu var skipt
í sjö snið og ljósmyndir flokkaðar eftir
því innan hvaða sniðs þær lentu.
Myndvinnsluforritið GIMP (útgáfa
2.10.0, GNU Image Manipulation
Program Development Team, http://
www.gimp.org/) var notað til að
afmarka snið, skrá inn ljósmyndir og
merkja talin svæði. Við talningu var nýtt
myndvinnsluforritið ImageJ af útgáfu
1.51u (National Institutes of Health,
Bethesda, MD, USA, http://rsbweb.nih.
4. mynd A. Þekju Eldeyjar var skipt upp í 20 fláka til að einfalda talningu. B. Fláki númer 8 afmarkaður og tilbúinn til
talningar. – A. The top of Eldey was divided into 20 polygons to make counting easier. B. Polygon number 8 ready
for counting. Ljósm./Photo: Sindri Gíslason.