Náttúrufræðingurinn - 2019, Side 30
Náttúrufræðingurinn
30
sem snúa að áhrifum dróna á hegðun
villtra dýra og mögulegum neikvæðum
áhrifum þeirra við rannsóknir, svo sem
við fjöldatalningar.48 Hefur þetta leitt til
þess að stofnanir og nefndir sem bera
ábyrgð á velferð villtra dýra hafa víða
verið tregar að veita leyfi til notkunar
dróna við dýratalningar.48 Þótt nákvæm
vísindaleg fjöldatalning með drónum
kunni að vera gerleg er mikilvægt að
huga að siðferðilegum álitaefnum sem
varða notkun vísindamanna, áhugaljós-
myndara og annars áhugafólks á drónum
í kringum villt dýr. Endurtekið ónæði af
mannavöldum er þekktur streituvaldur
hjá villtum dýrum, jafnvel þótt engin
augljós merki um streitu sjáist á atferli
þeirra. Til að kanna lífeðlisfræðileg við-
brögð dýra við ónæði eða meðhöndlun
hefur bæði verið athugað stresshorm-
ónið „corticosterone“57,58 og mældur
hjartsláttur.59–61 Enn sem komið er hafa
fáar rannsóknir beinst að lífeðlisfræði-
legum áhrifum dróna á dýr. Rannsóknir
á svartbjörnum (Ursus americanus)62 og
kóngamörgæsum (Aptenodytes pata-
gonicus)63 hafa þó sýnt fram á greinileg
lífeðlisfræðileg viðbrögð við yfirflugi
dróna þótt litlar eða engar sjáanlegar
breytingar yrðu á atferli tegundanna.
Álagið virðist aðeins tímabundið, hjart-
sláttartíðni dýranna hækkar á meðan á
flugi stendur en lækkar svo jafnóðum
og dróninn er floginn burt.62,63 Þegar
villt dýr verða fyrir truflun af manna-
völdum, við hávaða eða þegar þau
eru handsömuð og meðhöndluð, geta
álagseinkennin á hinn bóginn varað frá
nokkrum mínútum upp í klukkustundir
eftir áreitið.59–61 Viðbrögðin við drónum
eru misjöfn milli tegunda og sýna sumar
þeirra strax greinilegan mun á atferli.
Viðbrögðin eru þá einatt á þann hátt
að einstaklingar leggja á flótta eða sýna
varnartilburði, sem er einkum algengt
meðal ránfugla.63,64 Þessar rannsóknir
sýna okkur að fara verður varlega með
dróna í kringum villt dýr því þeir geta
sannarlega valdið auknu álagi. Þetta
ber að hafa í huga þegar kemur að
mótun reglugerða um dróna, hvort sem
er um almenna notkun eða notkun í
vísindaskyni.
Ný tækNi og Aðferðir – íslANd
Með nýjungum og þróun í tæknibún-
aði er hægt að betrumbæta hefðbundnar
rannsóknaraðferðir og beita með góðum
árangri nýjum aðferðum sem til þessa
hefur verið ómögulegt eða erfitt að nota.
Hér við land hafa verið settar upp sjálf-
virkar vöktunarmyndavélar til að meta
viðkomu og aðra lýðfræðilega þætti hjá
langvíu og stuttnefju.65 Lofar aðferðin66
góðu og eru nú myndavélar í fimm sjó-
fuglabyggðum umhverfis landið.65
LEIÐBEININGAR UM NOTKUN
DRÓNA VIÐ FUGLARANNSÓKNIR
Eftirfarandi leiðbeiningar um notkun
dróna (<2 kg) hafa verið lagðar fram í
tveimur erlendum vísindagreinum um
áhrif dróna á andfugla, vaðfugla, bjarg-
fugla og aðra sjófugla.48,49
Flug: Gangsetja og fljúga dróna í
a.m.k. 100 m fjarlægð frá fuglum
(sjónlínu).49
Nálgun: Gott að nálgast fugla í 20°
til 60° fluglínu, alls ekki í beinni 90°
lóðlínu.49
Í ljósi mismunandi viðbragða fugla-
tegunda við drónum er nauðsynlegt
að gera forathuganir á viðbrögðum
þeirra, einkum þar sem ránfuglar eru
algengir.48
Fyrir svartfugla ætti að halda fljúgandi
dróna í a.m.k. 20 m fjarlægð og flug-
tak ætti að fara fram utan sjófugla-
byggðarinnar þar sem ekki heyrist til
drónans.48
Fyrir máfa (t.d. hvítmáfa og bjartmáfa)
þarf að fljúga drónanum í um 5 mín-
útur við varpið til að venja fuglana við
áður en talning hefst.48
Ýmsar áskoranir blasa við rannsak-
endum sem hyggjast nota dróna við
rannsóknir á opnu hafi (7. mynd). Fyrst
er að telja að vegna reks er ekki hægt að
kalla drónann til baka á tiltekinn upp-
hafstað (e. return to home), eins og yfir-
leitt er gert á þurru landi, heldur þarf að
handstýra honum á lendingarstað. Salt
sjávarloftið tærir málma, krefst meira
viðhalds og styttir líftíma drónanna. Í
úfnum sjó og öldugangi aukast kröfur
til stjórnanda drónans og aðstoðarfólks
hans til muna. Vindur getur hamlað því
að hægt sé að fljúga drónum og ókyrrð
sem myndast oft kringum skip og báta
getur valdið erfiðleikum við flugtak og
lendingu. Framleiðendur gefa yfirleitt
upp helstu upplýsingar um þol og flug-
hæfni tækja sinna. Í þessari rannsókn
reyndi á það. Hviður yfir 10 m/s höfðu
veruleg áhrif á flughæfni tækisins, eins
og framleiðandi gefur réttilega upp (DJI
Technology Co., Shenzhen, Kína).
Rannsóknin sýndi að dróni getur
nýst vel við úttekt sjófuglabyggða hér
við land við ákveðnar aðstæður og
gagnvart ákveðnum tegundum. Súlur
eru almennt þaulsetnir fuglar og hafði
dróninn engin sjáanleg áhrif á atferli
þeirra (8. mynd). Notkun dróna gefur
jafnframt kost á nákvæmari úttekt súlu-
byggða þar sem hægt er að leggja mat á
fleiri þætti en einungis fjölda varppara.
Með betri nærmyndum úr flygildinu
væri möguleiki að greina súluunga í
hreiðrum, meta aldur þeirra og hlutfall
unga á hreiður. Þetta þyrfti þá að gera
seint á varptímanum, þegar ungarnir
eru orðnir það stórir að þeir komast
ekki fyrir undir fullorðna fuglinum og
verða því sýnilegir á drónamyndunum.
Með myndum í betri upplausn mætti
svo jafnvel nýta sér þessa tækni til að
meta lifun unga og fjölda aðskotahluta í
hreiðrum, svo dæmi séu tekin.
Með myndefni úr dróna væri hægt
að kortleggja eyju á borð við Eldey
nákvæmlega á alla kanta. Það gæfi
tækifæri til að fylgjast með breytingum á
eyjunni til framtíðar, svo sem með tilliti
til umhverfisbreytinga, til dæmis þegar
hrynur úr bjargi vegna sjávargangs.
Athyglisvert er hve stöðugur
varpstofn súlu er í Eldey. Hann
hefur lítið breyst á síðastliðnum 40
árum (2. tafla), en á sama tíma hafa
aðrar súlubyggðir við landið verið að
stækka.4 Niðurstöður þessarar rann-
sóknar eru því í góðu samræmi við
fyrri talningar í Eldey. Varpstofn súlu
á Íslandi og aðrir stofnar í Norður-Atl-
antshafi hafa almennt stækkað jafnt
og þétt á umræddu tímabili, eða um
2% árlega.4,67,68 Áhugavert verður því
að fylgjast með framgangi súlu næstu
áratugi, bæði í Eldey og á landinu öllu.
SAMANTEKT
Tímasparnaður, nákvæmni, sveigjan-
leiki og hagkvæmni eru þeir kostir sem
geta gert dróna að einkar gagnlegum
verkfærum við vistfræðirannsóknir
í ákveðnum aðstæðum. Rannsóknir
sýna ýmsa kosti þeirra við talningar og