Náttúrufræðingurinn - 2019, Síða 41
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
41
4. mynd. Tengsl sandflæðis og
vindhraða við fok Eyjafjallagjósku
(efri myndir) og við fok fínkorna
sands í tveimur stormum á Hóls-
fjöllum (neðri myndir, stormar
5 og 7). Mismunandi kvarðar eru
á myndunum. – Relationship
between sandflux and wind
speed. Sandflux indicated by
Sensit instrument pulses (grain
impacts). Tephra from Eyja-
fjallajökull 2011 in a major
storm (upper graphs) and silty
materials in two moderate storms
at Hólsfjöll, NE Iceland. Note
different scales between the
graphs. Closed circles indicate
average wind speed per minute,
open circles show maximum
gusts within each minute interval.
ÁFOKSGEIRAR
Þegar sandur gengur yfir gróið land á
þykkum og grófum jarðvegi getur ferlið
undið upp á sig þegar hin grófu mold-
arefni ganga í lið með áfoksefnunum.
Við þetta verða eins konar snjóbolta-
áhrif, sífellt meiri sandur safnast upp á
mótum auðnar og gróðurlendis þar sem
hann gengur inn á gróðurinn og kæfir
hann. Hugtakið áfoksgeiri er notað um
sérstaka rofmynd við kortlagningu jarð-
vegsrofs á Íslandi,21 og er tungulaga
sandsvæði sem gengur inn yfir gróið
land. Útlínur rofbakka þar sem áfoks-
geirar hafa gengið yfir landið einkennast
iðulega af beinum línum í landslaginu,
þar sem fokefni rjúfa gróðurbakkann
undan meginfokáttinni. Þessar beinu
línur sjást vel á gervihnattamyndum
(9. mynd). Fokefnin eiga sér yfirleitt
uppruna í gjöfulum upptakasvæðum,
svo sem í lægðum þar sem jökulár skila
af sér miklu seti í flóðum eða í kjölfar
hamfarahlaupa. Áfoksgeirar geta líka
myndast þar sem jarðvegsefni fylla upp
í lægðir vegna vatnsrofs ofan við þær.
Jökulár sem renna inn í stöðuvötn valda
setmyndun en síðan geta fokefni borist
frá ströndum þegar lækkar í vötnunum.
Einnig geta miklar breytingar á farvegi
jökulvatna og hörfun jökla opnað fyrir
miklar námur fokefna (sandur og silt).
Hæð gróðurs og gróðurgerð skiptir
meginmáli um áhrif sandflæðis á gróður
og möguleika vistkerfa til að þola sand-
burð og öskufall.29,30 Rannsóknir Borg-
þórs Magnússonar og Olgu Kolbrúnar
Vilmundardóttur á Blöndusvæðinu
beindust meðal annars að þolmörkum
gróðurs gagnvart slíku áfoki í um 480
m hæð. Niðurstöðurnar sýna að krítísk
þykkt er um 10 cm í fjalldrapamóa.31,32,33
Mun minna áfok olli varanlegum
skemmdum á mosaþembu við Blöndu
(0,6 cm) og í mólendi í 625 m hæð við
bakka Hálslóns (2 cm).34,35
Áhrif áfoksgeira eru hvað alvarlegust
þar sem fyrir er grófur jarðvegur með
miklum sandi sem bætist við mengi
sandfoksefnanna, svo sem við gosbeltin
í nágrenni virkra eldstöðva, við jökla
Að fArA í sANd
Orðalagið „að fara í sand“ er notað til að lýsa umhverfisbreytingum sem verða
þegar fokefni (sandur og silt) eyða þeim vistkerfum sem fyrir voru. Yfirleitt beinist
athygli fyrst að gróðurþáttum, svo sem þekju og tegundum gróðurs, þegar miklar vist-
kerfisbreytingar eiga sér stað. Moldarþættirnir eru þó ekki síður mikilvægir.36 Þegar
sandur verður ráðandi hverfur nær öll næring og orka (kolefni) úr kerfinu og nær-
ingarhringrásir rofna. Áhrifin á vatnshringrásina skipta líklega mestu máli, ekki síst þar
sem úrkoma er allajafna lítil. Sandur hefur ekki eiginleika til að binda vatn og miðla.
Enda þótt úrkoma kunni að vera mikil að meðaltali eru kerfin ákaflega þurr – nokkurra
daga þurrkur veldur fullkominni vatnsþurrð og plöntur visna. Þegar þetta allt er lagt
saman, skortur á gróðurþekju, tap á orku og næringarefnum og að ekki er lengur til
staðar mold sem miðlar vatni, þá hrynur vistkerfið (sbr. skilgreiningar Blands o.fl. á vist-
kerfishruni37). Því geta áhrif áfoksgeira verið örlagarík og hefur ferlið stundum verið
nefnt „sandification“ á ensku.
R
af
p
úl
sa
r
á
m
ín
út
u
/
P
ul
se
s
p
er
m
in
ut
e
Vindhraði / wind speed; m/s
6 8 10 12 14 16
20
40
60
80
100
120
140
160
180
200
Stormur 7
Meðalvindhraði á mínútu /
Mean wind speed each minute
Mesta hviða á mínútu /
Max wind speed per minute
Vindhraði / Wind speed; m/s
6 8 10 12 14 16
20
40
60
80
100
120
Stormur 5
R
af
p
úl
sa
r
á
m
ín
út
u
/
P
ul
se
s
p
er
m
in
ut
e
Meðalvindhraði / Mean wind speed; m/s
5 10 15 20 25 30 35
Allur stormurinn / Entire storm
Mesti vindhraði / Max wind speed each minute; m/s
15 20 25 30 35 40
2000
4000
6000
8000
Hvassasti hluti stormsins / Windiest part of the storm
2000
4000
6000
8000