Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2019, Page 42

Náttúrufræðingurinn - 2019, Page 42
Náttúrufræðingurinn 42 7. mynd. Sandfok norðvestur af Heklu; meðaltal tveggja ára (2008 og 2009). Númerin gefa til kynna mælistöðvar með Fryrear-gripgildrum. Litur gefur til kynna þekju sands í yfirborðinu. Þykkt svartra örva gefur til kynna sandburðarmagn á ári og stefnan átt sandburðar. Mest sandfok er nyrst á svæð- inu þar sem vatn flytur sand inn á svæðið. – Sandflux in the area NW of Mt. Hekla, measured at 31 points. Arrows indicate direction and amount of sand each year in kg/m/yr. Sand cover indicated by colour (%). Blue lines indicate seasonally active waterways (major waterways are dark-blue, smaller are light blue). Largest amounts of sand are transported within the NE part of the area. 5. mynd. Spönn fyrir þröskuldsvindhraða fyrir fjórar helstu gerðir yfirborðs á sandsvæðum. Miðað er við vindstyrk í 2 m hæð og þurrar aðstæður (hækkar með vaxandi loft- og jarð- vegsraka). – Threshold velocities for the main types of sandy surfaces in Iceland (wind at 2 m height). The range represents dry conditions while more humid conditions would result in higher threshold velocities than indicated. From left to right: silt, fine sand and fine glacio- fluvial deposits (flæður); sand; sandy lavas and sandy lag-gravels; and lag-gravel surfaces. 6. mynd. Dæmigert hlutfall fokefna eftir hæð. Þegar 100 g hafa borist í neðstu gildruna (10 cm hæð, punktur lengst til hægri) eru um 30 g í næstneðstu gildru (30 cm hæð) o.s.frv. – Typical sandflux relative to height. When 100 g of materials are collected in the lowest dust trap (right), 30 g are collected at 30 cm height but low amounts in the trap at 150 cm height (left). The shape of the curve tends to be stable for each site regardless of storm intensities. eða þar sem mikið uppfok og áfok á sér stað. Enda eru þessi landsvæði illa gróin nú á dögum, einkum á hálendi, þar sem gróður hefur verið lágvaxinn og veitt litla viðspyrnu. Áfoksgeirar sem hafa gengið suður frá Langjökli sjást vel á inn- rauðum gervihnattamyndum (8. mynd). Sandur hefur gengið fram beggja vegna Hlöðufells og suður á Rótarsand austan við fjallið.38 Ummerki um áfoksgeira og sandleiðir liggja sunnan afrennslisleiða frá Hagavatni og suður af Sandvatni, sem ógnaði byggð í Biskupstungum og víðar áður en sandflaumurinn var stöðvaður. Sigurður Greipsson39 hefur rakið þróun sandfoks á svæðinu, meðal annars með áherslu á mikilvægi mikilla flóða sem komið hafa í Farið sem rennur úr Hagavatni. Áfoksgeirarnir í Landsveit og á Rangárvöllum ollu gríðarlegu tjóni á ofanverðri 19. öld og fram á 20. öld, en þeir hafa nú verið stöðvaðir. Mikil flæmi, svo sem við Hellu og Gunnarsholt, eru nú vel gróin nytjasvæði en áður svartur sandur.19 Áfoksgeirar eru víða virkir í Þingeyjarsýslum. Þeir virkustu hafa þó verið girtir af og gripið til aðgerða til að hefta framrás sandsins. Hólsfjallageirinn er hvað víðfeðmastur en hann ógnaði byggð í Öxarfirði um miðja síðustu öld þegar hann var stöðvaður (9. mynd t.v.). Girt var um 300 m norðan við geir- ann á grónu landi árið 1954 til að friða svæðið fyrir beit. Um haustið var sandurinn kominn norður að girðingunni en var þá haminn með sáningu melgresis

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.