Náttúrufræðingurinn - 2019, Page 49
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
49
Lækjagörn
Tetraspora cylindrica
Helgi Hallgrímsson
vAtNAþöruNgAr hafa lengi verið utanveltu í grasafræði á Íslandi. Flestir hafa kosið að líta
framhjá þeim í lýsingum á flóru eða gróðri landsins, enda þótt þeir séu iðulega nokkuð áberandi
í ám og vötnum af ýmsum stærðum og gerðum, og mynda þar kúlur eða slý. Flestir eru agn-
arsmáir, en geta þó litað vötn þegar mikið er af þeim. Höfundur hefur áður birt nokkrar alþýð-
legar greinar um vatnaþörunga í Náttúrufræðingnum og hér verður einni aukið við þann flokk.
Náttúrufræðingurinn 89 (1–2), bls. 49–54, 2019
Lækjagörn úr Vatnsviki, Þingvallavatni, um 10 x stækkun. Greina má hvernig frumur hópast fjórar saman og festingu þráðanna við botninn.
– Microscopic photo of Tetraspora cylindrica from Lake Thingvallavatn. Ljósm./Photo: Gunnar Steinn Jónsson, 2019.