Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2019, Blaðsíða 53

Náttúrufræðingurinn - 2019, Blaðsíða 53
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags 53 Hólarnir eru framhlaupshólar, sem líklega heita Steindyrahryggur, kenndur við bæinn Steindyr, sem var sunnan við hólana. Svo vel vill til að Hörður Kristinsson var þarna á ferð sumarið 1961, og náði þá ágætri mynd af tegund- inni, sem hér er birt með leyfi hans. Á árunum 1970–1971 rannsakaði höfundur lífríki Mývatns og Laxár í Suður-Þingeyjarsýslu. Helstu niður- stöður birtust í skýrslunni Rannsóknir á svifi í Mývatni og Laxá 1970–71.18 Þar segir (bls. 46): „Tetraspora sp. er algeng við strendur Mývatns, en kemur sjaldan í svifsýni. Er það sennilega tegundin T. cylindrica Ag. “ Um Laxá er sagt (bls. 24): „Í hægum straumi er allvíða mikið af Tetraspora sp., sem myndar langa, garnalaga þræði.“ Í framhaldi af þessari rannsókn var lífsýnum safnað 1971–1976 úr nokkrum tugum tjarna, stöðu- og straumvatna á Vestfjörðum, Norðurlandi og Austur- landi. Kom þá í ljós að lækjagörn var allvíða að finna í þessum landshlutum. Á Vestfjörðum fannst hún í Vatns- fjarðarvatni 1971, sem áberandi slý á steinum, þræðir um 1 mm á breidd og 1–2 cm langir, einnig í tjörn á Breiða- dalsheiði, um 550 m y.s. Á Norðurlandi vestra í Víðidalsá og Fitjaá í júlí 1973, og í Flókadalsvatni í Fljótum í júlí 1972 (leifar). Á miðhálendinu í Mjóavatni og Sandá á Auðkúluheiði, og í Galtará og Haugakvísl á Eyvindarstaðaheiði í júlí 1976, 450–550 m hæð y.s. Í Galtará var hún óvenju stórvaxin. Auk þess hefur Hörður Kristinsson myndað hana í lindalæk á Hofsafrétti, upp af Vesturdal í Skagafirði, í 700–750 m hæð y.s. Þar var hún líka stór og breiðvaxin. Má því ætla að hún sé nokkuð tíð á miðhálendinu. Í Eyjafirði voru tekin fjölmörg sýni en lækjagörn fannst þar aðeins í Nykur- tjörn í Svarfaðardal, í um 600 m hæð y.s., í október 1971, fremur smávaxin. Í Suður-Þingeyjarsýslu var hennar getið á Látraströnd og í Laxá og Mývatni. Auk þess fannst tegundin í Djúpá í Ljósavatns- skarði 1971, Vestmannsvatni í Reykjadal 1970, Másvatni á Mývatnsheiði 1972 og Íshólsvatni, Bárðardal 1974. Í Norður-Þingeyjarsýslu myndaði þessi tegund viðamikið slý í lindalæk í botni Vesturdals í Jökulsárgljúfrum, í ágúst 1971, allt að 5 mm breiðar og 2 m langar tægjur (vatnshiti 4,2°C). Auk þess fannst hún í Presthólalóni 1968.19 Merkilegt er að í Tunguá í Hólmatungum, sem er dæmigerð lindá, fannst Tetraspora ekki 1971, en hins vegar allmikið af grænþörungi sem var greindur sem Blidingia minima (Kütz.) Kylin., tegund sem er algeng í sjávarfjörum, og Helgi Jónsson (1903) nefnir Enteromorpha intestina- lis f. minima (Näg.) Rosenv. Það mun vera sama tegund og Sigurður Pétursson nefnir Enter- omorpha sp. í fyrrnefndri grein 1948, og fann á Suður- og Suðvesturlandi. Skýrist það líklega af háu sýrustigi vatnsins, sem mældist 8,5–9 í ánni. Á Austurlandi fannst lækjagörn 1976 í Sænautavatni á Jökuldalsheiði, 525 m y.s. Fyrr í þessari grein var hennar getið á Droplaugarstöðum, bæði úr Lagarfljóti og við Hrafnsgerðisá. Sum- arið 2004 fann höfundur hana víða við strendur Lagarfljóts þar sem ferskvatn sytrar út í það, meðal annars við Ket- ilsstaði á Völlum, og síðan í Eiðavatni 2006. Þar myndaði hún ljósgrænt slý á steinum við ströndina, þræðir 0,5–1 mm í þvermál og 1–2 cm á lengd. Skarphéðinn G. Þórisson náði góðum myndum af lækjagörn í lindalæk við Eyvindará, austur af Fjallaskarði á Lækjagörn í lindum í Vatnsviki, Þingvallavatni í maí 2019. – Tetraspora cylindrica in freshwater springs in Lake Thingvallavatn in May 2019. Ljósm./Photo: Gunnar Steinn Jónsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.