Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2019, Page 55

Náttúrufræðingurinn - 2019, Page 55
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags 55 Gísli Pálsson Furðukames Fullers Nokkrir fuglAáhugAmeNN og fuglafræðingar hafa bent á að Geir- fuglabók Johns Wolleys frá 1858 (Gare-Fowl Books),1 dagbækur hans sem varðveittar eru á Bókasafni Cambridge-háskóla, séu ein- stæð heimild; þær segi frá veiðum geirfugla á fyrri hluta nítjándu aldar, þátttakendum í síðustu geirfuglaleiðöngrunum, uppstoppun fugla og frá sölu þeirra og andvirði á erlendum mörkuðum. Wolley heldur frásögnum leiðangursmanna samviskusamlega til haga í Geirfuglabókinni en torlæsileg skýrslan með rithönd hans rykfellur á bókasafninu í Cambridge og fáir hafa gefið henni gaum. Samferða- maður hans í Íslandsferðinni, Alfred Newton, sem síðar varð pró- fessor í náttúrufræði við Cambridge-háskóla og einn af brautryðj- endum fuglaverndar, ritaði stutt en mikilvægt yfirlit um niðurstöður leiðangursins að Wolley látnum.2 Þrátt fyrir það er Geirfuglabók Wolleys, nokkur hundruð síður í fimm hlutum, enn vannýtt heimild.3 Errol Fuller hugar að geirfuglseggi á heimili sínu. Ljósm. Gísli Pálsson. Náttúrufræðingurinn 89 (1–2), bls. 55–62, 2019

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.