Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2019, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2019, Blaðsíða 36
 1. mars 2019KYNNINGARBLAÐGott betra BEST Við erum með föt fyrir konur frá aldrinum um 25 ára og alveg upp úr. Það er nefnilega svo merkilegt að íslenskar konur eru skvísur fram eftir öllum aldri, þær verða mjög seint gamlar. Hingað kemur ein reglulega, sem er áttræð, og fatar sig upp,“ segir Guðný Kristín Erlingsdóttir, eigandi kvenfata­ verslunarinnar Stíll, sem hún hefur rekið í 18 ár. Ákveðin þáttaskil urðu í rekstrinum þegar Guðný flutti verslunina af Laugavegi og upp í Síðumúla: „Við vorum í vissum skilningi frumbyggjar í þessari bylgju nýrra verslana hér síðustu misserin, við komum hingað með þeim fyrstu og margar hafa fylgt í kjölfarið. Okkur líkar rosalega vel hérna og mér finnst þetta vera orðinn nýi miðbærinn. Hér rölta oft um vinkvennahópar, ganga Síðumúlann og Ármúlann og kíkja í verslanir. Eftir að við fluttum hingað gátum við líka stækkað verslunina og aukið úrvalið, sem var mjög jákvætt,“ segir Guðný. Gæði á hagstæðu verði Stíll leggur áherslu á gæðavörur á hagstæðu verði. „Við svona rétt löfum í meðalverði, erum ekki með ódýrustu fötin í bænum en erum langt fyrir neðan þau dýrustu. Við leggjum mikla áherslu á gæðin og ég vil fullyrða að hér fá konur mjög góð föt á sanngjörnu verði. Það hefur líka hjálpað okkur að föt hafa almennt lækkað í verði, líka í innkaupum, og 15% tollaniðurfelling á innfluttum fatnaði sem átti sér stað fyrir þremur árum hefur skilað sér beint inn í verð­ lagið hjá okkur.“ Stíll býður upp á klassísk föt sem henta konum á öllum aldri, í bland við tískusveiflur: „Við erum með mikið úrval af buxum og kjólum í klassískum sniðum en síðan líka flíkur á borð við leggings­buxur og rifnar gallabuxur. Við erum líka með vítt stærðaval, frá 36 upp í 46, en ekki beinlínis yfir­ stærðir.“ Stíll leggur áherslu á góða þjónustu og ráðgjöf, léttan anda og að við­ skiptavinum líði vel í versluninni. Að sögn Guðnýjar er mikil vinna að reka góða fataverslun og þetta sé bara starf fyrir þá sem vilja vera í því af lífi og sál: „Þó að ég hafi verið í þessum rekstri í 18 ár er ég alltaf jafnt spennt þegar það koma nýjar vörusendingar. Þetta er svo skemmtilegt.“ Gjafabréf í Stíl er klárlega góð tækifærisgjöf en Guðný bendir eigin­ mönnum líka á að skoða Facebook­ ­síðuna www.facebook.com/stillfas­ hion.is/ því þar birta konur oft góðar ábendingar til eiginmanna sinna um gjafir. Stíll er til húsa að Síðumúla 34 og er opin virka daga frá kl. 11 til 18 og laugardaga frá kl 11 til 16. Símanúmer er 551­4884. „Íslenskar konur eru skvísur fram eftir öllum aldri“ Hundurinn Hódor (eftir persónu úr Game of Thrones) er einstakur karakter og setur skemmtilegan svip á verslunina. 1. mars 2019
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.