Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2019, Blaðsíða 57
SAKAMÁL 571. mars 2019
Fullkomið afskiptaleysi
Þegar Stephen losnaði úr prís-
undinni var hann vannærður,
með legusár og sveppasýkingar.
Að auki hafði þessi raun aukið á
þau geðrænu vandamál sem hann
hafði glímt við fyrir.
„Verðirnir gengu fram hjá klefa
mínu daglega og sáu hvernig mér
hrakaði. Dag eftir dag aðhöfðust
þeir ekkert, alls ekkert, til að hjálpa
mér,“ sagði Stephen síðar.
Honum var neitað um lyf við
þunglyndi sínu og tapaði þriðjungi
þyngdar sinnar á þessu tveggja ára
tímabili.
Hreyfing kemst á málið
Í ljós kom að Stephen var upphaf-
lega settur í einangrun því ein-
hver hafði hakað í box sem gaf til
kynna að hann kynni að fremja
sjálfsvíg. Það var ekki fyrr en syst-
ir hans fór að undrast um afdrif
Stephens sem hreyfing komst á
málið. Hún hélt að honum hefði
verið sleppt fljótlega, en síðan,
eftir að hafa ekki heyrt í honum í
langan tíma, hafði hún samband
við mannréttindasamtök. Samtök-
in settu Matthew Coyte í málið og
í júní árið 2007 stóð Stephen loks-
ins fyrir framan dómara. Stephen
var umsvifalaust komið í hendur
heilbrigðiskerfisins, enda degin-
um ljósara að hann var engan veg-
inn fær um að koma að vörn sinni.
Boðnar smánarbætur
Ekki varð um nokkra vörn að
ræða, enda snerist málið ekki um
eitthvert afbrot af hálfu Steph-
ens. Dona Ana-sýsla bauð Steph-
en tvær milljónir dala fyrir að láta
málið kyrrt liggja, en Stephen vildi
að fólk fengi að heyra af þessari
illu meðferð sem hann hafði sætt.
Í janúar 2011 fékk kviðdómur
alríkisdómstóls í Albuquerque að
heyra af raunum Stephens og fór
þá um margan manninn. Á skjá sá
kviðdómur tvær myndir af Steph-
en; önnur var tekin áður en hon-
um var fleygt í einangrun og hin
var af Stephen eftir tveggja ára
dvöl í „holunni“.
Snerist ekki um peninga
Niðurstaða kviðdóms var að Dona
Ana-sýsla skyldi greiða Stephen
Slevin 22 milljónir dala í bætur,
um það bil eina milljón fyrir hvern
mánuð sem hann hafði verið í
haldi. Enginn fangi í sögu Banda-
ríkjanna hefur fengið jafnháar
bætur vegna brota gegn borgara-
legum réttindum viðkomandi.
Stephen sagði að málið hefði
aldrei snúist um peninga held-
ur væri um að ræða yfirlýsingu
um hvað honum hefði verið gert
og að hann vildi láta umheiminn
vita af því. „Það er fjöldi annarra
sem þjáist vegna svipaðra örlaga í
fangelsum víða í Bandaríkjunum.
Af hverju þeir gerðu það sem þeir
gerðu, um það hef ég ekki hug-
mynd,“ sagði Stephen Slevin. n
skríða á ný. Hann stakk Samönthu Bisset, 27 ára móður, til bana og misþyrmdi
fjögurra ára dóttur hennar, Jazmine, kynferðislega og myrti að því loknu.
Napper var dæmdur fyrir morðin á Samönthu og Jazmine í október árið 1995
og játaði þá á sig nauðganir og tilraunir til nauðgunar. Hann neitaði aðild að
morðinu á Rachel.
Ekki er talið loku fyrir það skotið að Napper sé Green Chain-nauðgarinn. Sá
hafði farið mikinn í suðausturhluta London um fjögurra ára skeið, sem lauk
árið 1994, og staðið að baki að minnsta kosti 70 grimmdarlegum árásum á
konur.
Um síðir leiddi DNA-rannsókn til þess að Napper var sakfelldur fyrir morðið á
Rachel. Hann var ekki talinn sakhæfur og því vistaður á geðsjúkrahúsi í stað
fangelsis.
Dropi af
náttúrunni
Nýjar bragðtegundir með lífrænum kjarnaolíum
úr ferskri grænmyntu, engifer og fennil
Kaldunnin þorsklifrarolía
„Þegar kemur að
næringu og heilsu vel
ég aðeins það besta”
Andri Rúnar Bjarnason
Knattspyrnumaður Helsingborg
GLEYMDUR OG GRAFINN
n Stephen Slevin var stöðvaður af vegalögreglu n Var haldið í einangrun í tvö ár n Engin formleg ákæra eða réttarhöld n Fékk himinháar bætur að lokum„Verðirnir gengu fram hjá
klefa mínu daglega og sáu
hvernig mér hrakaði. Dag eftir
dag aðhöfðust þeir ekkert, alls
ekkert, til að hjálpa mér.
„Af hverju þeir
gerðu það sem
þeir gerðu, um það hef
ég ekki hugmynd.
Eins og villimaður
Stephen var neitað um nánast allt í prísundinni.