Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2019, Blaðsíða 2
2 1. mars 2019FRÉTTIR
Á þessum degi,
1. mars
1562 – 63 húgenottar er drepnir í Wassy
í Frakklandi. Fjöldamorðið varðaði upp-
haf frönsku trúarbragðastríðanna.
1815 – Napóleon snýr heim að lokinni
útlegð á eynni Elba.
1872 – Yellowstone-þjóðgarðurinn
verður formlega fyrsti þjóðgarður á
jörðu hér.
1932 – Tilkynnt er um að syni Charles
Lindberg hafi verið rænt.
2006 – Milljónasta greinin birtist
á enska Wikipedia. Greini fjallar um
Jordanhill-járnbrautarstöðina í Glasgow
á Skotlandi.
Síðustu orðin
„Ég verð að fara, þokan
læðist inn.“
– Bandaríska skáldkonan Emily
Dickinson (1830–1886)
framúrstefnuleg atriði til að sigra í Eurovision
Íslendingar hafa verið
mjög hefðbundnir í
vali sínu á lögum til að
senda í Eurovision, allt of
hefðbundnir. Ef Hatari sigrar í ár
væri það vísbending um að þjóðin
væri að sleppa úr viðjum vanans.
Íslendingar hafa einstaka sinnum
sent framúrstefnuleg atriði, til
dæmis Silvíu Nótt,
Eirík Hauksson og
Pollapönk. Við
getum hins vegar
gert miklu betur. Hér
eru fimm atriði sem
myndu vekja verð-
skuldaða athygli í
Eurovision.
Söngvaborg
Síðasta lag Íslendinga
sem komst upp úr riðl-
inum var með barna-
hljómsveit. Þetta er
greinilega formúla
sem virkar. María Björk
og Sigga Beinteins eru
augljóslega sterkastar
á þessu sviði og hafa
reynsluna. Sigga hefur
þrisvar keppt á stóra
sviðinu með góðum
árangri og María var
bakhjarlinn á bak við
Jóhönnu Guðrúnu sem
var nálægt því að sigra
árið 2009 með laginu
Is it true?
Strigaskór nr. 42
Til að rokka Eurovision
ærlega upp væri ráð
að senda Strigaskó
nr. 42 fyrir Íslands
hönd. Strigaskórnir eru
óumdeildir konungar
dauðarokksins á
klakanum og hafa
þeytt flösu í meira en
aldarfjórðung. Lordi
sýndi að aðdáendur
keppninnar eru mót-
tækilegir fyrir rokki í
þyngri kantinum.
Forgarður
helvítis
Sigurður Harðar-
son, pönkhjúkka og
söngvari Forgarðs
helvítis, myndi heilla
Eurovision-þjóðir upp
úr skónum. Auk þess
myndi hann ná að
koma góðum boðskap
um ókosti kjötáts
áleiðis. Kosturinn við
að senda Foggann er
að lög sveitarinnar eru
einungis um mínúta að
lengd. Gætu þeir því
komið nokkrum fyrir
innan tímamarkanna.
Steindór Ander
sen og Hilmar Örn
Hilmarsson
Þjóðir Austur-Evrópu
hafa setið einar að
þjóðlegum söngvum
í Eurovision og hafa
virkilegan áhuga á
þeim. Við Íslendingar
gætum halað inn
„douze points“ í
bílförmum frá þeim
heimshluta ef við
sendum rímnamenn-
ina Steindór og Hilmar.
Hipsterar Vestur-
Evrópu myndu einnig
kjósa lagið.
Almar í kassanum
Listamaðurinn Almar
Atlason hefur verið allt
of lengi úr sviðsljósinu.
Tímabært er að hann
endurveki sniðugan
gjörning sinn með
kassann og nú á stóra
sviðinu. Árið 2015
dvaldi Almar í viku í
glerkassa í Listahá-
skólanum og þjóðin
fylgdist stjörf með
hverri hreyfingu. Þrjár
mínútur ættu ekki að
reynast honum erfiðar.
Hann gæti raulað lag
og spilað á úkúlele í
leiðinni.
Á
dögunum kom upp meint
fjárdráttarmál innan Sjálf-
stæðisfélagsins í Kópa-
vogi. Hið meinta brot hljóp
á hundruðum þúsunda króna og
uppgötvaðist fyrir tilviljun. „Pen-
ingar félagsmanna hafa verið
endurgreiddir. Að öðru leyti tjái ég
mig ekki um málið,“ segir Sigurður
Sigurbjörnsson, formaður stjórn-
ar Sjálfstæðisfélagsins í Kópavogi,
þegar DV leitaði viðbragða hans.
Hann staðfesti enn fremur að mál-
ið hefði ekki verið kært til lög-
reglu heldur hafi verið leyst inn-
an flokksins. Sú sem er grunuð um
athæfið og endurgreiddi fjármun-
ina gegnir enn trúnaðarstörfum
fyrir flokkinn.
Litu á málið sem mannlegan
harmleik
Samkvæmt heimildum DV átti
hinn meinti fjárdráttur séð stað yfir
talsvert tímabil og var um ítrekað-
ar millifærslur inn á persónulegan
reikning hins grunaða að ræða.
Eins og áður segir uppgötvaðist
hinn meinti þjófnaður fyrir tilvilj-
un og hljóp á hundruðum þús-
unda króna. Í kjölfarið var málið
rætt innan stjórnar Sjálfstæðisfé-
lagsins í Kópavogi. Þar voru skipt-
ar skoðanir um hvort að kæra
ætti málið til lögreglu eða leysa
það innan flokksins. Litu flestir
stjórnarmenn á að um mannlegan
harmleik væri að ræða og því var
tekin sú ákvörðun að ganga á við-
komandi og freista þess að fá fjár-
munina endurgreidda. Það gekk
eftir.
DV hefur einnig heimildir fyrir
því að í kjölfarið hafi flestir stjórn-
armanna talið að viðkomandi
myndi segja sig frá trúnaðarstörf-
um fyrir flokkinn. Það hafi því
komið stjórnarmönnum í opna
skjöldu að hinn meinti þjófur hafi
ekki sýnt á sér neitt fararsnið held-
ur setið sem fastast í sínu embætti.
Þess í stað hafi stuðningsmenn
viðkomandi, sitjandi bæjarfulltrú-
ar þar á meðal, varið hinn grunaða
fram í rauðan dauðann og geng-
ið hart fram í gagnrýni á stjórnar-
menn félagsins. Málið hefur því
dregið verulegan dilk á eftir sér
innan félagsins. n
Sigurður Sigurbjörnsson,
formaður Sjálfstæðis-
félagsins í Kópavogi
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
UPPVÍS AÐ FJÁRDRÆTTI
FRÁ SJÁLFSTÆÐISFÉLAGINU Í KÓPAVOGI