Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2019, Blaðsíða 10
10 MATUR 1. mars 2019
Smiðjuvegur 4C - 202 Kópavogur - S 587 2202
Ryðga ekki
Brotna ekki
HAGBLIKK
Álþakrennur & niðurföll
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt, silvurgrátt og dökkgrátt
MISJAFNT HREINLÆTI Á
PÍTSASTÖÐUM DOMINO’S
n Mýs í Skeifunni n Hættulegur halli á Dalbraut
„Er þetta
í annað
skiptið sem vart
verður við nag-
dýr í húsnæðinu
H
eilbrigðiseftirlit Reykja-
víkur hóf nýverið birtingu
á niðurstöðum úr reglu-
bundnu eftirliti á veitinga-
stöðum borgarinnar og eru upp-
lýsingarnar öllum aðgengilegar.
Veitingastaðir geta fengið einkunn
frá 1 til 5, en algengast er að staðir
nái þremur í einkunn.
Þegar vinsæla pítsastaðnum
Domino’s er flett upp kemur í
ljós að einkunnir eru mjög mis-
munandi eftir stöðum. Af þeim
sjö skýrslum sem liggja fyrir á vef
Heilbrigðiseftirlitsins fá þrír Dom-
ino’s staðir tvo í einkunn, þar sem
aðkallandi úrbóta er þörf, en fjór-
ir staðir fá þrjá í einkunn, þar sem
frávik eru ekki metin alvarleg. DV
kíkti á það sem betur mætti fara
á þessum sjö stöðum og þá kom
ýmis legt forvitnilegt í ljós.
Lilja Katrín Gunnarsdóttir
lilja@dv.is
Domino’s
Hraunbæ 121
Einkunn: 3
Dagsetning úttektar: 29.01.2019
Þrífa þarf betur í gólfkverkum,
undir goskælum og veggi fyrir ofan
uppþvottavél. Setja þarf upp skilti
vegna ofnæmis- og óþolsvanda og
taka til í kaffistofu.
Domino’s Dalbraut 3
Einkunn: 3
Dagsetning úttektar: 16.01.2019
Í bakrými á staðnum er skáhalli sem talinn er „stórhættulegur fyrir
starfsmenn í bleytu.“ Er tekið fram að myndir af aðstæðum hafi verið
sendar til Vinnueftirlitsins og að um sé að ræða ítrekun frá síðasta
eftirliti. Þrifum er ábótavant í starfsmannaðstöðu og eru til dæmis
hurðarkarmar á salernum mjög kámugir. Þá er gagnrýnt að hreinsi-
efni hafi fundist í hillu þurrlagers og að laga þurfi óvarið loftljós á
lagernum.
Domino’s
Ánanaustum 15
Einkunn: 2
Dagsetning úttektar: 16.01.2019
„Í eftirliti kom í ljós að verið var
að vinna matvæli á borði og
vaski við hlið uppþvottavélar
sem er ekki góð meðhöndlun
matvæla,“ stendur í skýrslunni
um bakrými staðarins. Einnig er
bent á að þrífa þurfi betur hand-
laug í eldhúsi og að starfsleyfi
heilbrigðiseftirlits vanti.
Domino’s Hjarðarhaga 45
Einkunn: 3
Dagsetning úttektar: 25.01.2019
Setja þarf upp starfsleyfi á áberandi stað, sópa
í kjallara og skrifstofu, setja upp skilti fyrir
ofnæmis- og óþolsvalda í afgreiðslu, setja lok á
gastrókæli og fylla holur í gólfi.
Domino’s
Gnoðarvogi 44
Einkunn: 3
Dagsetning úttektar: 21.01.2019
Helstu frávikin eru á starfs-
mannasalerni og í ræstikompu þar
sem þarf að þrífa betur að innan
sem utan. Einnig þarf að þrífa hurð
í móttöku.
Domino’s
Spönginni 11
Einkunn: 2
Dagsetning úttektar: 29.01.2019
„Kaffistofan er notuð sem lager.
Kaffistofan er ætluð starfsmönn-
um en ekki til lageraðstöðu.
Starfsmaður borðaði hádegismat
á skrifstofu verslunarstjóra þegar
á eftirliti stóð en ekki kaffistofu.
Þessu þarf að breyta,“ stendur í
skýrslunni og bætt við að um sé
að ræða ítrekun frá 2014, 2015,
2016 og 2017. Einnig eru gerðar
margar athugasemdir við lager,
til dæmis þessi: „Töluvert af
kælivörum (t.d. osti) sem stóðu
óhreyfðar á gólfi lagers á meðan
eftirliti stóð. Allar kælivörur skulu
strax settar í kæli við vörumót-
töku til að rýra ekki gæði þeirra.“
Domino’s
Skeifunni 17
Einkunn: 2
Dagsetning úttektar: 15.01.2019
Domino’s í Skeifunni er eini Domino’s-
-staðurinn sem fær alvarlegt frávik í
sinni skýrslu, en við lestur skýrslunnar
kemur í ljós að mýs hafi fundist á
kaffistofu starfsmanna í nóvember í
fyrra. „Er þetta í annað skiptið sem vart
verður við nagdýr í húsnæðinu en áður
gerðist það í lok árið 2017,“ stendur í
skýrslunni og bætt við að heilbrigðis-
eftirlitinu hafi í hvorugt skiptið verið
gert viðvart um nagdýrin, eins og reglur
kveða á um. Er tekið fram að músagildr-
um hafi verið komið upp á staðnum.
Aðrar ábendingar eru um þrif í bakrými,
svo sem á starfsmannasalerni, veggj-
um og gólfi.
5 Kröfur uppfylltar
4 Kröfur uppfylltar – einhverjar ábendingar
3 Frávik/ábendingar – ekki metnar alvarlegar
2 Frávik/ábendingar – aðkallandi úrbóta þörf
1 Starfsemi takmörkuð/stöðvuð að hluta
0 Starfsemi stöðvuð
Útskýringar á einkunn
Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur: