Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2019, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2019, Blaðsíða 37
 1. mars 2019 KYNNINGARBLAÐ Gott betra BEST HVASSAVÍK EHF: Múrarar með reynslu og tilskilin réttindi! Hvassavík ehf. þjónustar hvort heldur er einstaklinga eða fyrirtæki og stofnanir um allt sem viðkemur múrverki. „Við sjáum um járnabindingu, byggingastjórnun og allt almennt múrverk. Sjálfur er ég múr- arameistari með meira en fimmtíu ára reynslu í múrverki og lærði á sínum tíma hjá Steiniðjuni, S Helgason, ásamt því að hafa farið á ýmis námskeið erlendis. Þess vegna er ég líka í grjótinu, þ.e. legg flísar og náttúrustein,“ segir Róbert Kristjánsson. Settu viðhaldið í áskrift! Hvassavík ehf. hefur starfað við mörg stór verkefni sem og smærri verkefni. „Við bjóðum upp á sniðuga þjónustu fyrir einstaklinga eða húsfélög; að vera í svokallaðri áskrift á ástandsskoðun og viðhaldi á húsum og byggingum. Þetta getur verið sérstaklega sniðugt fyrir íbúa fjölbýlishúsa, til þess að koma í veg fyrir að húsið grotni niður vegna lélegs viðhalds og þurfa svo að punga út miklum fjárhæðum, til þess að lagfæra eitthvað sem hefði verið hægt að gera tíu árum áður, fyrir helmingi lægri upp- hæð,“ segir Róbert. Róbert mælir með að fólk hafi samband sem fyrst varðandi ástands- skoðun. „Það er best að byrja á þessu að vori til og nýta sumarið í þau verk sem þarf að klára fyrir næsta vetur. Svo ráðleggjum við um framhaldið, hvort það þurfi að huga að meira viðhaldi strax næsta vor, eða hvort það megi bíða einhvern tíma lengur,“ segir Róbert. Múrarar með tilskilin réttindi „Það eru nú þegar einhver fyrirtæki á markaðnum sem bjóða upp á sam- bærilega þjónustu, en það sem við höfum fram yfir marga aðra er að Hvassavík ehf. býr yfir gífurlegri reynslu í múrverki, auk þess sem við erum allir með tilskilin réttindi til þess að starfa við múrsmíði. Ég mæli ekki með því að fólk skipti við einstaklinga og eða fyrir- tæki sem ekki eru með tilskilin réttindi. Múrarameistari er sá sem ber hvað mesta ábyrgð á að bygging sé í lagi og ef fólk kann ekki til verka þá getur illa farið,“ segir Róbert. Hvassahraun 27, 191 Vogar. Netpóstur: hvassavik.ehf@gmail.com Sími: 849-4423 Fáðu reynda múrara í verkið. Aðstaða fyrir útigrill. Flottur arinn. Le Kock lítur glæsilega út. 1. ars 1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.