Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2019, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2019, Blaðsíða 5
VIÐ GETUM EKKI SKÁLKAÐ Í SKJÓLI NORÐMANNA OG JAPANA! „Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, haldinn á Selfossi 23.-25. október 2015, leggst eindregið gegn hvalveiðum við Íslandsstrendur. Við veiðarnar er beitt ómannúðlegum veiðiaðferðum til að viðhalda áhugamáli örfárra útgerðarmanna. Háum upphæðum af opinberu fé hefur verið kastað á glæ til að styrkja þessa áhugamenn um hvalveiðar. Nú er mál að linni“. Þetta er úr landsfundarályktunum Vinstri grænna 2015. Vinstri grænir komust svo til valda, með forsætisráðherra, umhverfisráðherra og heilbrigðisráðherra í nýrri ríkisstjórn, auk 9 annarra þingmanna, í nóvember 2017. Vorið 2018 kom upp umræða um það, hvort langreyðaveiðiheimildir, sem Sigurður Ingi Jóhannsson, þá sjávar- og landbúnaðarráðherra, hafði veitt til fimm ára 2013, skyldu gilda líka fyrir það ár. Hvalur hf hafði þá ekki getað nýtt veiðiheimildir í 2 ár vegna vanda við að selja afurðirnar, enda banna langflestar þjóðir heims verzlun með langreyðaafurðir svo og flutning á þeim í lögsögu sinni. Bæði Samskip og Eimskip neita að flytja hvalkjöt. Þegar á það reyndi, hvort reglugerðin skyldi gilda líka fyrir 2018, í stað þess, að henni væri breytt, eins og oft hefur gerzt við stjórnarskipti, sagði Katrín Jakobsdóttir á Alþingi, flestum til mikillar undrunar, að það væri ruglingslegt fyrir stjórnsýsluna, ef reglugerðum, sem væru í gildi, væri breytt. Skyldi hún standa. Vonir stóðu þó til, að forsætisráðherra hefði samið svo við veiðiglaða Sjálfstæðis- og Framsóknarmenn, sem ekki eru undir miklu álagi af löngun eða hneigð til dýra-, náttúru- og umhverfisverndar - ef þeir vita, hvað það er – að með þessari málamiðlun yrði langreyðavertíðin 2018 sú síðasta; lokin á því hrikalega dýraníði, sem veiðar byggja á, svo og á frekari skemmdum á vörumerkinu ÍSLAND, sem er það dýmætasta, sem við eigum. Það var því mikið áfall nú í vikunni, að fá staðfestingu á því, að ríkisstjórnin, undir forsæti Vinstri grænna, hefði lagt blessun sína yfir, að sjávar- og landbúnaðarráðherra, Kristján Þór Júlíusson, skyldi veita Hval hf nýtt leyfi til langreyðaveiða, og það til fimm ára. Eru Íslendingar með þessu eina þjóð veraldar, sem veiðir langreyði (stórhveli), næst stærsta spendýr veraldar, en hinar tvær hvalveiðiþjóðirnar, Norðmenn og Japanir, veiða eingöngu hrefnu (smáhveli). Skv. Gallup-könnun okkar frá í nóvember sl., hefur meirihluti Íslendinga nú loks áttað sig á, hvílkt heiftarlegt dýraníð hvalveiðar eru, eins á því, að tilgangur með þeim er enginn, en Hvalur hf hefur verið rekinn með tapi um langt árabil, og síðast en ekki sízt, hversu illa þetta dráp okkar á „hinum friðsömu risum úthafanna“ fer í milljónir manna um allan heim, en því fylgir auðvitað hætta fyrir útflutning og ferðamenn. Forsætisráðherra, aðrir ráðherrar og þingmenn Vinstri grænna geta enn leiðrétt mistök sín og svik við eigin samþykktir og málstað, með því að berja í borðið og krefjast þess, að nýveitt langreyða veiðileyfi verði afturkölluð. Væri manndómur í því, og mætti þá nokkuð bæta fyrir þann stórfellda skaða, sem ímynd Vinstri grænna hefur orðið fyrir, og leiðrétta herfileg mistök leiðtoga flokksins; undanlátssemi og svik við málstaðinn. Ef Sjálfstæðismenn og Framsóknarmenn vilja slíta ríkisstjórninni vegna veiðifirru og þráhyggju eins manns, Kristjáns Loftssonar, gegn þjóðarhagsmunum, þá yrðu þeir að taka þá vanvirðu og skömm á sig, sem færi þá með þeim inn í sögubækurnar. Að lokum þetta: Sjávarútvegsráðherra fullyrðir, að þessi nýju veiðileyfi séu veitt á grundvelli ráðgjafar frá Hafrannsóknastofnun. Gefur þannig í skyn, að Hafró hafi ráðlagt honum að veita þessi veiðileyfi. Hér hagræðir ráðherra sannleikanum harkalega. Hafrannsóknastofnun veitir ekki ráðgjöf um, hvort veiða skuli, heldur aðeins um það, hversu mikið skuli veiða, ef veiða skuli. Hafrannsóknastofnun mælir hvoki með eða á móti veiðum. Ráðleggur aðeins um magn veiða, gerir tillögu að stærð veiðikvóta, ef ráðherra vill láta veiða. OPIÐ BRÉF TIL KJÓSENDA OG FORYSTUMANNA VINSTRI GRÆNNA Nú ríkir sorg í hjarta kjósenda Vinstri grænna. Hvar eru stefnumál og samþykktir flokksins í hvalveiðimálum komin? Getur grasrótin og fylgismenn treyst forystunni lengur? Varla! Þegar stólar vega þyngra en stefna JARÐARVINIR Ole Anton Bieltvedt, formaður
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.