Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2019, Page 39
1. mars 2019 KYNNINGARBLAÐ Gott betra BEST
Heimavöllur fjölskyldunnar
Þegar sest er niður á veitinga-staðnum O’Learys í Smáralind þá líður manni ekki eins og
maður sé staddur í verslunarmiðstöð
heldur notalegri stofu. Innréttingar
eru afar smekklegar og hlýlegar. Fyr-
irmyndin er veitingastaðir í Boston en
þaðan er O’Learys-keðjan upprunnin.
„Við höfum lagt áherslu á að vera
heimavöllur fjölskyldunnar. Hér á
að vera hægt að setjast niður og
njóta þess að horfa á heimsviðburði
í íþróttum og borða góðan mat með
vinum og fjölskyldu. Áherslan í mat-
argerðinni er síðan á hefðbundinn
amerískan mat, hamborgara, svínarif,
kjúklingavængi og steikur,“ segir Elís
Árnason, eigandi staðarins á Íslandi.
Á O’Learys í Smáralind býðst þér
að spila körfuboltaspil, boxpúði er á
staðnum og Crazy light einnig, sem er
spil sem allir í fjölskyldunni hafa gam-
an af að spila. Shuffleboard er nýtt
sport á Íslandi sem allir í fjölskyldunni
geta spilað. Borðin eru í fullri stærð,
svokölluð Champion Shuffleboard
sem eru það vandaðasta á markaðn-
um í dag.
Andrúmsloftið í rúmgóðum
veitingasalnum er afskaplega þægi-
legt og það er gott að eiga hér
gæðastund. Alls eru 32 flatskjáir á
veggjunum með alls konar efni, bæði
íþróttum og öðru sjónvarpsefni, en
hljóðstýring er svæðisbundin og hljóð
berst ekki á milli svæða eða ónáðar
þá sem hafa ekki áhuga á sjónvarps-
dagskránni. Veggina prýða einnig
fjölmargar myndir sem ýmist tengjast
íþróttum eða sögu Boston-borgar.
Á staðnum eru einnig stórskemmti-
leg leiktæki sem höfða til bæði barna
og fullorðinna og henta því fjölskyldu-
fólki vel. Raunar höfðar O’Learys
til margs konar hópa því þarna er
gott að tylla sér niður með fartölvu
og vinna enda gott þráðlaust net
og innstungur úti um allt. Einnig er
gott fundarborð sem hentar vel fyrir
smærri vinnufundi.
Ferskir hamborgarar
Hamborgararnir hjá O’Learys eru
ferskir 170 gramma borgarar sem
koma frá Norðlenska. Góð blanda
kjöts og fitu gerir þá einstaklega
safaríka. Við prófuðum hamborgara
sem var afskaplega ljúffengur, ferskur
og safaríkur.
Kjúklingavængir O’Learys, sem eru
sérframleiddir fyrir keðjuna og að
Boston-sið, eru hreint lostæti og ekki
spillti fyrir gráðaostasósa sem gott
er að dýfa þeim í. Við fengum okkur
líka djúpsteiktan, íslenskan þorsk í orly
með kaldri tartar-sósu.
Afbragðs-góður matur
Á mánudagskvöldi var staður-
inn heimsóttur aftur og pantaður
hamborgari, svínarif og kjúklinga-
vængir. Síðan var pekan-pie í eftir-
rétt. Allt var þetta einstaklega ljúf-
fengt og þjónusta var til fyrirmyndar.
Gestirnir voru að verða saddir en
það var ekki hægt að standa upp frá
veisluborðinu án þess að bragða á
svínarifjunum sem voru nákvæm-
lega eins og maður vill hafa slíkan
mat. Afar bitastæður og bragðgóður
matur.
Hlaðborð og kótelettur
Hlaðborð er í hádeginu alla mánu-
daga, þriðjudaga, miðvikudaga,
fimmtudaga og föstudaga. Á mánu-
dögum er steiktur fiskur, með sal-
ati og frönskum, á þriðjudögum er
kjúklingaveisla, miðvikudögum eru
lambakótelettur, sem eru vægast
sagt vinsælar, og til að toppa vinnu-
vikuna þá er tilvalið að skella sér á
naut og bearnaise-hlaðborðið sem er
alla föstudaga.
Hlaðborðið kostar aðeins 1.990
krónur á mann. Eins og áður segir er
vel gert við fjölskyldur og á sunnu-
dögum kemur blöðrulistamaður og
þá fá allir krakkar fría blöðru milli kl. 17
og 20.
Svo eru bíódagar á mánudög-
um en þá er hægt að fá máltíð og
bíómiða í Smárabíó á flottu verði.
Alveg kjörið að tvinna saman bíóferð
og málsverð á O’Learys.
Nánari upplýsingar má nálgast á
olearys.is og á O’Learys Facebook.
O’Learys er staðsett í Smáralind.
Sími: 558-5500
Netfang: smaralind@olearys.is
O’LEARYS Í SMÁRALIND:
1. mars 2019