Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.2019, Blaðsíða 22
Brot af því besta 5. júlí 2019KYNNINGARBLAÐ
Stóllinn Skata er fyrsti form-beygði stóllinn framleiddur á Íslandi og í raun elsti stóll sem
framleiddur var hér á landi. Hönnuður
Skötunnar er Halldór Hjálmarsson,
húsgagna- og innanhússarkitekt
(1927-2010), sem m.a. hannaði kaffi-
húsið Mokka. Hann hafði nýlokið námi
sínu í Kaupmannahöfn og hrifist mjög
af Maurnum eftir Arne Jacobsen, og
vildi þróa sambærilegan íslenskan
stól úr formbeygðum krossvið, sem þá
var tiltölulega ný aðferð og algerlega
óþekkt hér á landi.
Skötustóllin náði fljótt töluverðri
útbreyðslu, enda alhliða stóll, sem
bæði hentaði á stofnanir og heimili.
Stuttu seinna bættist stóllinn Þórs-
hamar við, einnig úr formbeygðum
krossvið, en með stærra baki. Fram-
leiðslan lagðist síðan af 1973, en hófst
að nýju 2008, og eru báðir stólarnir
nú fáanlegir í ýmsum úfærslum og
litum.
Þó dönsku árhrifin séu mjög sterk,
og ekki síst frá stólum Arne Jacobsen,
þá stendur Skötustóllin sterkum fótum
sem sjálfstæð íslensk hönnun, þar
sem blandað er saman nýstárlegum
tæknilausnum og ljóðrænum
tilvísunum til náttúrunnar.
Festingarnar voru algjör nýjung
og minntu auk þess á egg skötufisks-
ins. Sama má segja um hið skötu-
lagaða bak, sem fyrst og fremst var
hugsað til þess að ná fram sveigjan-
leika og hámarsstyrk, án þess þó að
þyngja stólinn, en fyrstu stólar Arne
Jacobsen áttu það til að brotna um
hálsinn, þó síðar hafi verið bætt úr því
með nýrri tækni.
Skötustóllinn fagnar 60 ára afmæli
á þessu ári og framleidd verða
tölusett eintök af völdum útgáfum.
Bæði þeim nýjustu og einnig í sígildri
glærri eik, en slíkir stólar prýddu m.a.
lögreglustöðina í nýjustu Ófærðar-
þáttunum.
Nánari upplýsingar fást á www.
skata.is eða info@skata.is
Stóllinn Skata