Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.2019, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.2019, Blaðsíða 16
16 5. júlí 2019FRÉTTIR Sviðin jörð svikahrapps n Auður sögð svíkja Íslendinga á Tenerife n Sögð liggja á spítala n Lætur ekki ná í sig „Það þarf að stoppa hana þvi hún eyðileggur fyrir öllum þeim Íslendingum sem eru að gera góða og heiðarlega hluti hér. Í slensk kona, sem heitir Auður Ólafsdóttir og virðist hafa verið búsett á Tenerife síðan í fyrra, er sökuð um að svíkja íslenska ferðalanga á eyjunni. Hún hef- ur rekið Facebook-síðuna Tener- ife Leigumiðlun þar sem hún hef- ur boðið húsnæði til leigu og verið dugleg að deila auglýsingum inn í íslenska Facebook-hópa. Hún virðist því hafa einblínt á að mark- aðssetja íbúðirnar til Íslendinga og flestar auglýsingar frá leigu- miðluninni á erlendum síðum, til dæmis Gloopla, eru á íslensku. Svikin loforð Það var innanhússarkitektinn Gunnhildur Guðnýjardóttir sem vakti fyrst máls á meintum svik- um Auðar, sem kallar sig Audi Auo á Facebook. Guðný skrifaði langa Facebook-færslu þar sem hún lýsti fríi sem hún fór í með fjölskyldu sinni til Tenerife í nóvember 2018. Hópurinn samanstóð af sjö full- ornum, einum unglingi og tveim- ur börnum. Hópurinn leigði sér villu í gegnum Auði. Greiddu þau tæpa hálfa milljón fyrir eina viku, en villunni var lýst sem lúxushús- næði. Gunnhildur segir að Auð- ur þessi hafi tekið á móti hópnum daginn sem þau lentu í Tener- ife og látið þau vita að þau gætu ekki gist í húsinu vegna leka sem hafði komið upp tveimur dögum áður. Hópnum var í staðinn boðin gisting í tveimur húsum sem áttu að vera steinsnar frá hvort öðru. „Þetta fékk svolítið á okkur en ákváðum að láta á þetta reyna og vera jákvæð enda mætt í frí. Í ljós kom að það var tæplega 10 mín- útna gangur á milli húsanna og ekkert af því sem hafði verið lof- að var til staðar í þessum húsum nema rúm til að sofa í og aðgangur að sundlaug, við gátum ekki einu sinni setið öll saman og borðað þar sem ekki var nóg af stólum og borðbúnaði. Í hvorugu húsinu var loftkæling sem við vorum þó búin að borga fyrir,“ skrifar Gunnhild- ur í Facebook-færslu, en hún sagði einnig sögu sína í kvöldfréttum Stöðvar 2 fyrir stuttu. Hópurinn var ekki ánægður með þessa reddingu og tjáði Auði það. Þá segir Gunnhildur að Auð- ur hafi reiðst og verið dónaleg. Hópurinn ákvað að leita að hent- ugu húsnæði á Airbnb og fann eitt sem uppfyllti allar þeirra kröfur. Þau létu Auði vita sem sagðist þá vera búin að finna aðra, mun dýr- ari íbúð fyrir hópinn. Þegar hópur- inn fékk sendar myndir af eigninni kom í ljós að þetta var sama íbúð- in og þau höfðu fundið á Airbnb, nema á þeirri síðu var verðið tals- vert hagstæðara. Þegar hópurinn sagði Auði það reiddist hún á nýj- an leik, að sögn Gunnhildar, en samþykkti loks að borga íbúðina fyrir hópinn. Það loforð var hins vegar svikið. „Við greiddum fyrir síðari íbúð- ina úti sem við dvöldum í það sem eftir lifði af fríinu og gerðum ráð fyrir endurgreiðslu frá henni, enda með skriflega staðfestingu á loforði þar um. Enn þann dag í dag höfum við ekki fengið krónu endurgreidda af þeirri tæplega hálfu milljón sem við greiddum henni fyrir „villuna“ og hún borg- aði aldrei Airbnb íbúðina, þannig að þegar upp er staðið greiddum við tæplega 750.000 kr. fyrir hús- næði í eina viku á Tenerife.“ Fullt af símanúmerum – ekkert svar DV hefur haft samband við aðra sem hafa leigt íbúðir í gegnum Auði og þeir hafa sömu sögu að segja. Þar sem þeirra mál eru í ferli hjá lögfræðingi hafa þessir aðilar ekki viljað tjá sig við blaðið. Facebook-síða Tenerife Leigu- miðlunar hefur verið lokað en enn er hægt að finna auglýsingar um húsnæði á Tenerife á snær- um Auðar á fyrrnefndri vefsíðu Gloopla. Allar eignir til leigu eru á Adeje-ströndinni á suðvestur- hluta Tenerife. DV hefur ítrekað reynt að ná sambandi við Auði, bæði í gegnum tölvupóst, síma og Facebook. Nokkur símanúm- er eru tengd henni, bæði íslensk og spænsk. Eitt af íslensku núm- erunum sem DV prófaði virtist vera ótengt og þegar hringt var í spænskt númer, sem gefið er upp á Gloopla, fór símtalið beint í talhólf. Kona sem talaði bjagaða ensku svaraði í eitt af íslensku númerun- um sem DV prófaði. Þegar blaða- maður spurði um Auði var hon- um sagt að hún gæti ekki svarað í símann þar sem hún lægi á sjúkra- húsi. Samkvæmt upplýsingum á Gloopla var Auður í samstarfi við aðra síðu á Facebook, Vacation in Tenerife – Holiday Homes. Þeirri síðu hefur einnig verið lokað. Langur sakaferill Samkvæmt Facebook hélt Auð- ur utan um Facebook-sölusíðuna Fegurð & Skart þar til í apríl í fyrra. Síðan er enn opin en engin virkni hefur verið á henni síðan 28. apr- íl í fyrra. Nokkrum dögum fyrr, eða þann 23. apríl, auglýsti Fegurð & Skart sölu á ýmsum varningi, bæði fötum og snyrtivörum, þar sem allt átti að seljast. Auður á nokkurn sakaferil á baki. Hún var svipt öku- réttindum ævilangt árið 2017 og dæmd í níu mánaða fangelsi þegar hún var dæmd fyrir að keyra und- ir áhrifum áfengis og búðarhnupl. Í dómnum kemur fram að þetta var í áttunda sinn sem Auður var fundin sek um að aka undir áhrif- um áfengis og í sjöunda sinn sem hún var fundin sek um að aka án ökuréttinda. DV hefur haft samband við nokkra íbúa á Tenerife sem kann- ast ekki við Auði og hafa einungis heyrt af meintum svikum henn- ar í fréttum. Einn íslenskur fyrir- tækjaeigandi á Tenerife sagðist telja að Auður hefði ekki tengst Ís- lendingasamfélaginu á Tenerife, sem er frekar stórt, þar sem fæst- ir könnuðust við hana. Sagði hann afar brýnt að stöðva svikamyllu hennar ef satt reynist. „Það þarf að stoppa hana þvi hún eyðileggur fyrir öllum þeim Íslendingum sem eru að gera góða og heiðalega hluti hér,” sagði fyrir- tækjaeigandinn í samtali við DV. n Leigusvik á Tenerife eru afar al- geng og talið er að tíu til fimmtán falskar auglýsingar svikahrappa birtist á hinum ýmsu leigusíð- um á hverjum degi. Á vefsíð- unni My Tenerife Report er að finna lista yfir vefsíður sem ber að varast og er sá listi uppfærð- ur reglulega. DV hafði samband við Peter Sarkis hjá My Tener- ife Report sem kannaðist ekki við starfsemi Auðar. Samkvæmt vefsíðunni Schofields er talið að ferðalangar á Tenerife hafi verið sviknir um 6,7 milljónir punda, rúman milljarð króna, í gegnum leigusvik árið 2018. Svikarar nota flestir svipaðar aðferðir. Auglýsa húsnæði sem er ekki til staðar, hakka sig inn í aðrar sölusíður og ná þannig sambandi við væntanlega leigj- endur og biðja um millifærslur gegn ríflegum afslætti. Þetta ber að varast þegar húnsæði er leigt á Tenerife: n Aldrei greiða með millifærslu, hvorki hluta né alla upphæðina. Ávallt nota kredit- eða debetkort til að tryggja að hægt sé að bak- færa færsluna ef upp kemst um svik. n Spyrjist fyrir og leitið að um- mælum um eignina sem þið haf- ið áhuga á. n Biðjið um leigusamning – það verndar bæði leigusala og leigj- anda. n Talið við leigusalann í síma. Ef leigusali er ekki með skráð síma- númer á síðunni sinni er það áhyggjuefni. n Ef þið finnið íbúð í gegnum viðurkennda bókunarsíðu, eins og Airbnb, Booking eða Hotels, og aðili hefur samband við þig og biður um að hafa samskipti utan síðunnar og að greiðslan fari ekki í gegnum viðurkenndu bókunar- síðuna þá er líklegast um svik að ræða. Leigusvik algeng Lilja Katrín Gunnarsdóttir lilja@dv.is Svikin Gunnhildur Guðnýjardóttir segir farir sínar ekki sléttar. Mynd: skjáskot Stöð 2 Brask Dæmi um auglýsingar Auðar á Brask og brall. Mynd: skjáskot af Facebook Leigumiðlunin Skjáskot af Tenerife Leigumiðlun á Facebook áður en síðunni var lokað. Prófílmyndin Þessa mynd notar Auður á Facebook.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.