Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.2019, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.2019, Blaðsíða 26
Brot af því besta 5. júlí 2019KYNNINGARBLAÐ Helga Kolbrún Magnúsdóttir og Elvar Ólafsson, mágur hennar, stofnuðu Berserki Axarkast í maí 2018. Helga kynntist íþróttinni fyrst þegar hún var í Nýja Sjálandi og Elvar í Kanada. „Við féllum bæði fyrir íþróttinni og fannst axarkast smellpassa í afþreyingarflóruna á Íslandi, ekki síst vegna tengingar við víkingana. Þetta er alveg fullkomin blanda af keppnis- og fíflaskap og svo er þetta frábær leið til þess að fá útrás. Það sem gerir þetta svo enn skemmtilegra er að manni finnst eins og maður sé að gera eitthvað sem maður má ekki, eins og maður sé pínu óþekkur. Því er engin furða að axarkast sé vinsælt hjá steggja- og gæsahópum,“ segir Helga. Tæknin skiptir máli Það geta allir kastað exi, sérstaklega ef fólk getur lyft exinni hátt yfir höfuð. Ákveðin tækni er á bak við gott kast og það geta allir lært hana. „Við höfum fengið fólk á nær öllum aldri til okkar, unglinga og eldri borgara, og í lok hvers tíma eru langflestir farnir að kasta exinni svo hún festist í skotmarkinu. Þetta er ekki spurn- ing um að kasta fast, heldur þarf að miða við stöðu, hvernig haldið er á exinni og hvar maður stendur. Þetta þarf allt að passa svo að axarblaðið lendi í skotmarkinu en ekki skaftið. Eftir kennslu og létta keppni prófum við ýmis skemmtileg brelluskot. Þá köstum við þeim t.d. öfugt eða tveimur í einu, en þá þarf eiginlega að gefa frá sér djúpt kraftakarlahljóð,“ segir Helga og hlær. Taktu þátt í Íslandsmeistaramótinu í axarkasti Axirnar sem Berserkir nota eru staðlaðar keppnisaxir í samsvar- andi lengd og þyngd og löglegar keppnisaxir hjá NATF (National Axe Throwing Federation). Þær koma í tveimur stærðum, þ.e. hefðbund- in keppnisexi og önnur stærri sem er notuð í bráðabana. Axarkast er vinsæl íþrótt sem er stunduð út um allan heim. Haldin eru ýmiskonar mót í keppnisgreininni og meðal annars heimsmeistaramót. „Ákveðinn kjarni hér heima æfir reglulega og mætti á Berserkjamótin sem við héldum í febrúar og maí. Við höldum Íslands- meistaramót í haust og stefnum á að stækka íþróttina og stofna íþrótta félag utan ÍSÍ til að senda lið á keppnismót erlendis. Öllum er frjálst að mæta á Íslandsmeistaramótið, líka byrjendum. Við förum þá í gegnum tæknina áður en fólk kastar á mótinu.“ Axir og áfengi er ekki góður kokteill Á sumrin eru gæsa- og steggjahóp- ar helsti kúnnahópurinn. Á haustin og veturna koma fyrirtækin svo með starfsmenn í samhristinga. „Við mælumst alltaf til þess ef um er að ræða ferðir þar sem áfengi verður haft um hönd, að fólk byrji hjá okk- ur áður en fyrsti bjórinn er tekinn upp. Axir og áfengi fara ekki saman, hvað sem segir í Íslendingasögunum. Aldurs takmarkið er tæknilega séð 16 ára, en ef um er að ræða börn á aldrinum 12-16 í fylgd fjölskyldu fá þau auðvitað að vera með. Yngstu börnin geta fengið plast- og gúmmí- axir til þess að leika sér að. Aldurs- takmarkið er mest til þess að koma í veg fyrir að fylgdarlaus ungmenni séu að mæta hingað. Við tökum á móti allt að 24 manns sem við skiptum niður á brautirnar okkar tvær. Þetta er vinsælt hjá fjölskylduhópum en hingað koma líka pör á rómantísku stefnumóti. Enn sem komið er hafa gæsahóparnir ekki verið jafnmargir og steggjahóparnir, og ég hvet gæsirnar að koma hingað. Þær þurfa alveg jafnmikla útrás og karlarnir. Þetta er fyrir alla!“ Axarkast í guðsgrænni náttúrunni Axarkastið er til húsa í Hjallahrauni 9 í Hafnarfirði en axarkast má stunda nánast hvar sem er á bersvæði. „Við erum með utanhússskotmörk sem við getum sett upp allstaðar þar sem er ekki þéttbýli, en við þurfum þó að sjálfsögðu leyfi frá landeiganda.“ Sími: 546-0456 Nánari upplýsingar á berserkir-axarkast.is Facebook: Berserkir axarkast Instagram: Berserkir axarkast ÓÞEKKTARANGAR Í AXARKASTI Fullkomin blanda af keppnis- og fíflaskap

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.