Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.2019, Blaðsíða 23
Brot af því besta 5. júlí 2019 KYNNINGARBLAÐ
„Steinhættur að vera
hissa á skrítnu lagavali“
STÚDÍÓ ANDRI:
Hljóðverið Stúdíó Andri hefur nú verið staðsett á Eiðistorgi í sjö ár og aldrei verið jafn-
mikið að gera hjá honum Andra Frey
Magnússyni. Andri er menntaður
hljóðtæknir og með mikla reynslu í
þessu þar sem hann hefur verið míkið
í tónlist í gegnum árin. „Ég var fyrst
með lítið hljóðver í kjallara á Akureyri.
Svo flutti ég suður 2011 til að fara í
hljóðvinnslunám hjá Tækniskólanum
og Stúdíó Sýrlandi. Eftir að ég opnaði
Stúdíó Andra á Eiðistorgi þróaðist
þetta óvart útí að taka á móti gæsa-
og steggjahópum. Það hefur verið
mikil aukning í þessu síðustu fjögur
árin, nema árið 2016, þegar Ísland
keppti á Evrópumeistaramótinu
í Frakklandi. Þá fóru allir bara í
fótbolta,“ segir Andri.
Gæsatímabilið er hafið
„Á sumrin eru gæsa- og steggja-
hópar hjá mér næstum því um hverja
einustu helgi. Þetta byrjar hægt í
mars/apríl, nær hápunkti í júní og
svo minnkar þetta hægt og rólega út
júlí og ágúst. Ég sló met um daginn
þegar það komu fimm hópar til mín
á einum laugardegi. Það voru fjór-
ir gæsa- og steggjahópar og einn
starfsmannahópur í sumargleði. Ég
var að leggja saman fjölda hópa
sem hafa rúllað í gegn hjá mér
um daginn og sýnist að fjöldinn sé
kominn eitthvað vel á annað hundrað
gæsa- og steggjahópar. Gaman að
segja frá því að ég á orðið nokkra
fastakúnnahópa sem koma aftur og
aftur. Á haustin taka svo fyrirtækja-
hóparnir við. Þá er verið að taka upp
ýmis lög með frumsömdum textum
þar sem menn gera grín og gaman
að samstarfsfélögum og svo er þetta
spilað á árshátíðum og jólaskemmt-
unum. Þetta vekur alltaf mikla lukku.“
Falskir steggir og laglausar gæsir
„Í gæsa- eða steggjahópum byrja ég
á því að láta stegginn/gæsina syngja.
Svo hendum við í kórtökur þar sem
allir syngja með. Stundum kemur
fyrir að forsöngvarinn er ekki alveg
sterkasti söngvari í heimi, en það
getur verið skemmtilegra fyrir alla
hina sem eru með í hópnum. Ég segi
stundum við gæsina/stegginn: „Við
erum ekki að gera þetta svo að þú
skemmtir þér, þetta er til að skemmta
öllum hinum.“ Steggjanir og gæsanir
snúasta jú mikið um að ýta einstak-
lingi út úr norminu og láta hann
prufa eitthvað alveg nýtt og öðru-
vísi. Í þessum upptökum getum við
ekki farið fram á að ná fullkomnum
söng heldur meira að ýta fólki út fyrir
þægindarammann og búa til eitthvað
skemmtilegt.
Ég legg mig mikið fram við að ná
sem mestu út úr gæsinni/steggn-
um, til að ná sem bestum flutning,
autotune er ekki að fara að bjarga
neinum þó svo að það sé hægt að
gera margt eftirá, þá er langbest
að ná þessu strax fram með bestu
upptökunni. En svo er ótrúlegt hvað
góður kór getur ýtt undir veikan söng.
Ég á yfirleitt lágmark þrjár upptökur
af öllum aðalsöng og tvær af kórn-
um, svo hljóðblanda ég þetta þannig
að ég raða saman bestu tökunum í
lokaútkomuna. Hóparnir eru einnig
teknir uppá myndband í söngklefa
sem og í upptökuherbergi og svo tek
ég alltaf hópmynd áður en hópurinn
fer. Þetta tekur yfirleitt í kringum 45
mín-1 klst og fólk fær myndir, mynd-
bönd og lagið frá mér í gegnum netið
samdægurs. Hóparnir hafa þá frjáls-
ar hendur með að klippa myndefnið
saman til að sýna í brúðkaupsveisl-
unni.“
Páll Óskar vinsælastur
Andri segist alveg hættur að verða
hissa á skrítnu lagavali. „Hóparnir
sem eru að koma til mín eiga oft
eitthvað lag sem fólk djammaði við
í gamla daga, eða það er eitthvað
lag sem gæsin eða steggurinn tengir
sérstaklega við. Þetta geta verið alls-
konar lög, hvort sem um er að ræða
popp, rokk, djass, eða jafnvel eitthvað
stórskrítið lag af Youtube. Páll Óskar
á samt flytjendaverðlaunin inni hjá
mér, enda hafa allir hans slagarar
fegnið nýtt líf og texta hjá mér.“
Hljóðverstímar eru nokkurn veginn
jafnvinsælir hjá gæsum og steggjum,
þó svo gæsirnar séu yfirleitt mun
skipulagðari, að sögn Andra. „Þær
eru oft búnar að bóka marga mánuði
fram í tímann og koma í lang-
flestum tilfellum með frum saminn
texta. Steggirnir eru hins vegar
meira í því að hringja með viku- eða
dagsfyrirvara. Þetta er langvinsælast
um helgar en það kemur alveg fyrir
að við séum að vinna á virkum dögum
og kvöldin.
Fyrir allar nánari upplýsingar þá
er bara að hafa samband við mig
í gegnum Facebook eða email
andrihljod@gmail.com. Við finnum
tíma sem hentar.“
STÚDÍÓ ANDRI: