Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.2019, Blaðsíða 34
34 PRESSAN 5. júlí 2019
S
amsæriskenningar hafa í
gegnum tíðina vakið mik-
inn áhuga hjá fólki um allan
heim, flestir hafa til dæm-
is heyrt kenningar um að John
F. Kennedy hafi verið myrtur af
bandarísku ríkisstjórninni og
að menn hafi aldrei lent á tung-
linu. Í áranna rás hafa komið
fram margar samsæriskenningar
um bresku konungsfjölskylduna,
illa hefur gengið að sanna þess-
ar kenningar, eins og oft vill vera
með samsæriskenningar. Þrátt fyr-
ir skort á sönnunum vekja kenn-
ingar þessar mikla athygli og það
þarf ekki meira til en snögga leit
á netinu til að finna flóknustu og
undarlegustu kenningarnar um
elstu kóngafjölskyldu í heimi. Við
höfum tekið saman nokkrar af
þessum samsæriskenningum.
Karlkyns staðgengill
Samsæriskenningarnar um bresku
kóngafjölskylduna ná langt aftur.
Ein þeirra fjallar um Elísabetu 1,
sem var drottning á árunum 1558
til 1603. Hún er meðal annars
þekkt fyrir langa valdatíð sína og
var oft kölluð meydrottingin, þar
sem hún gifti sig aldrei. Hún átti
marga biðla á meðan hún var við
völd, en neitaði alltaf að giftast.
Hún sagðist þegar vera gift, hún
væri gift konungsríkinu.
Margir töldu um tíma að ástæða
þess að hún giftist aldrei hafi verið
líffræðileg, hún hafi nefnilega ver-
ið karlmaður. Kenningin gekk út á
það að Elísabet hafi látist í barn-
æsku og að barnfóstrur hennar
hafi fundið dreng sem settur var
í hlutverk Elísabetar. Enginn á að
hafa fengið að vita af þessu ráða-
bruggi, ekki einu sinni konungur-
inn.
Síðar hefur komið í ljós að
ástæðan fyrir þessari kenningu var
að vegna leiðtogahæfileika hennar
og gáfnafars hlyti hún að hafa ver-
ið karlmaður. Með yfirgnæfandi
magni sannana hefur verið sýnt
fram á að kenning þessi átti ekki
við rök að styðjast og að hún hafi
mismunað konum.
Brúðkaup með leyndum tilgangi
Núlifandi meðlimir kóngafjöl-
skyldunnar hafa fengið sinn skerf af
samsæriskenningum. Heimurinn
fylgdist með þegar Harry prins gekk
að eiga Meghan hertogaynju í maí
árið 2018. Prinsinn, sem vakti oft
mikla hneyklsan fólks á ungdóms-
árum sínum, var nú loksins að ró-
ast og var tilbúinn til að stofna fjöl-
skyldu.
Parið eignaðist í maí á þessu ári
sitt fyrsta barn, þegar sonur þeirra,
Archie Harrison, kom í heiminn.
Það lítur semsagt allt út fyrir að
hjónin séu búin að ná tökum á hinu
nýja lífi. En þó eru einhverjir sem
velta því fyrir sér hvort hjónabandið
sé byggt á lygum. Það eru nefnilega
einhverjir sem halda því fram að
hjónabandið sé hluti af stærra sam-
særi.
Þeir sem aðhyllast þessa kenn-
ingu segja að þetta sé hluti af áætl-
unum Breta til að ná aftur völdum
í Bandaríkjunum. Þar sem sonur
Harry og Meghan er bandarískur
ríkisborgari getur hann orðið for-
seti Bandaríkjanna og verið á sama
tíma í bresku erfðaröðinni. Þetta sé
snilldarbragð Breta til að ná fram
vilja sínum. Sá galli er þó á þessari
kenningu að það dugir ekki að vera
bandarískur ríkisborgari til að verða
forseti, viðkomandi þarf að vera
fædd/ur í Bandaríkjunum.
Óskilgetið barn
Kenningin um hjónaband Harry og
Meghan er ein þeirra vægustu sem
fram hafa komið, í gegnum tíðina
hafa komið fram margar flóknari
samæriskenningar um bresku
konungsfjölskylduna.
Maður að nafni Robert Brown
hefur áratugum saman haldið því
fram að hann sé óskilgetinn sonur
Margrétar prinsessu.
Prinsessan, sem var yngri syst-
ir Elísabetar drottningar, átti að
hafa átt í leynilegu ástarsambandi
við starfsmann kongungsfjöl-
skyldunnar. Robert Brown heldur
því fram að hann hafi fæðst inn í
konungsfjölskylduna árið 1955 og
hafi verið sendur í burtu eftir að
ástarsambandinu lauk.
Brown er sagður hafa eytt mikl-
um fjármunum í að sanna mál sitt,
árið 2015 á hann að hafa reynt að
fá málið tekið upp í hæstarétti. Það
hefur ekki tekist enn og margir ef-
ast um mál hans.
Konungleg vampíra
Karl Bretaprins hefur líka feng-
ið sinn skerf af samsæriskenning-
um. Ein kenninganna um Karl pr-
ins af Wales er afar sérstök. Þar er
því haldið fram að hann sé vamp-
íra, eða að minnsta kosti afkomandi
vampíru. Samkvæmt kenningu
þessari er hinn rúmlega sjötugi pr-
ins fjarskyldur ættingi Vlad III, hers-
höfðingja og fursta í furstadæminu
Valakia, í núverandi Rúmeníu.
Þegar Bram Stoker skrifaði bók
sína um vampíruna Dracula var
fyrrnefndur fursti innblástur hans
og þar með hafa samsæriskenn-
ingasmiðir fundið tengingu á milli
prinsins og þessa fjarskylda ætt-
ingja.
Vampírur eiga að vera við-
kvæmar fyrir sólarljósi, en það er
eitthvað sem tengt hefur verið við
Karl Bretaprins og konungsfjöl-
skylduna. Purpuraveiki (e. porp-
hyria) er nefnilega arfgengur sjúk-
dómur sem herjað hefur á bresku
konungsfjölskylduna. Þeir sem
þjást af þessum sjúkdómi eru
haldnir ljósfælni og fá útbrot af
völdum sólarljóss.
Vangaveltur um stað-
göngumæðrun
Vangaveltur hafa verið uppi um
það hvort Kate hertogaynja hafi
í raun gengið með sitt annað
barn. Margir hafa haldið því fram
að hertogaynjan hafi notast við
staðgöngumóður. Ástæðan fyr-
ir þessari tilteknu samæriskenn-
ingu er sú að hún hafi litið of vel
út eftir fæðinguna til að hafa get-
að fætt sjálf. Er því einnig haldið
fram að hertogaynjan hafi notað
falskan óléttumaga meðan á með-
göngunni stóð.
Falskur afturendi
Yngri systir hertogaynjunnar, Pippa
Middelton, hefur einnig fengið að
kenna á samsæriskenningunum.
Hún stal senunni við brúðkaup
systur sinnar og Vilhjálms prins og
beindist athyglin aðallega að aftur-
enda hennar.
Hin 34 ára gamla Pippa leit
nefnilega svo vel út í þröngum hvít-
um kjól þegar hún var á leið inn í
kirkjuna. Því hefur verið haldið fram
að bakhluti hennar hafi ekki verið
ekta, þetta hafi verið sjónhverfing
og að hún hafi nýtt tækifærið til að
sýna heimsbyggðinni bakhlutann.
Umdeilt ástarsamband
Það gekk lengi orðrómur um það
að Díana prinsessa hafi í raun átt
Harry með elskhuga sínum, James
Hewitt.
Díana viðurkenndi að hafa átt
í ástarsambandi við Hewitt og að
sambandið hafi varað í fimm ár.
Breska þjóðin reiknaði það út að
sambandið hafi hafist um það bil
sem Díana varð ólétt að Harry.
Einnig hafa margir bent á það
að Harry prins og James Hewitt
séu sláandi líkir. Hewitt hefur alltaf
neitað því að hann sé faðir Harry,
hann neitar því ekki að þeir séu lík-
ir en heldur því fram að Harry hafi
verið farinn að ganga þegar ásta-
samband Hewitt og Díönu hófst.
Samkvæmt Hewitt hitti hann
prinsessuna ekki fyrr en árið 1986,
þegar Harry var tveggja ára gam-
all. Því hefur einnig verið haldið
fram að gerð hafi verið DNA-rann-
sókn til að skera úr um hvort Karl
Bretaprins sé í raun faðir hins rauð-
hærða Harry. n
VÖRUR Í BOÐI TIL
MERKINGA
STUTTERMABOLIR
POLOBOLIR
HETTUPEYSUR
PEYSUR
HÚFUR
HANSKAR
BARNAPEYSUR
BARNABOLIR
Malarhöfða 2
5813330
EIGUM ALLAR TEGUNDIR OG LITI
AF FYRIRTÆKJAFATNAÐI
SAUMASTOFA.ISLANDS@GMAIL.COM
Klikkaðar samsæriskenningar
um bresku konungsfjölskylduna
n Konunglega vampíran Karl n Hjónaband Meghan og Harry hluti af valdatafli
Kristján Kristjánsson
ritstjorn@dv.is Meghan, Harry og Archie litli.
Karl Bretaprins.
MYND:WIKIMEDIA COMMONS
Kate og Vilhjálmur ásamt
börnunum sínum þremur.
Díana
og Karl á
brúðkaups-
daginn.