Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.2019, Blaðsíða 43
KYNNING
Starfsmenn og eigendur Aflhluta ehf. erum við Hrafn Sigurðsson, Björn Jóhann Björnsson og
Helgi Axel Svavarsson, sem allir erum
menntaðir vélfræðingar og höfum
áratugareynslu í sölu og tæknilegri
þjónustu við sjávarútveginn. Aflhlutir
ehf. er umboðsaðili fyrir mörg af
þekktustu vörumerkjum á markaði
tengdum sjávarútvegi. Þar má nefna
bátavélar frá JOHN DEERE, DEUTZ,
MAN, hliðarskrúfur frá ABT-TRAC,
ljósavélar ZENORO og fiskidælur
frá SEA-QUEST,“ segir Hrafn einn af
eigendum Aflhluta.
Sea-Quest sem er staðsett í
Killibeks í Írlandi, er leiðandi í dag í
framleiðslu á fiskidælum og tengd-
um búnaði fyrir uppsjávarveiðiskip.
Í dag eru nálægt 70% af uppsjávar-
skipum á Íslandi með fiskidælur frá
Sea-Quest. Aflhlutir ehf. þjónustar
sjávarútveginn, fiskeldið, bændur og
verktaka.
Nýlega tóku Afhlutir ehf. við
umboði fyrir hinar þekktu JCB raf-
stöðvar. „Fyrir stuttu seldum við tvær
JCB rafstöðvar fyrir varaafl til ISAVIA
á Reykjavíkurflugvelli, einnig höfum
við selt töluvert af JCB rafstöðvum til
fiskeldisfyrirtækja, þar sem þær hafa
reynst mjög vel enda þekktar fyrir
gæði og áreiðanleika,“ segir Hrafn.
Umboð fyrir bátasmiðjuna
Bredgaard Boats
Árið 2016 tóku Aflhlutir ehf. við
umboði fyrir Danska skipasmíða-
stöð sem heitir Bredgaard Boats.
Bredgaard Boats, sem staðsett er
í nýjum húsakynnum í Rödby, hefur
framleitt atvinnubáta frá árinu 1967.
Helstu viðskiptalönd Bredgaard
Boats eru Noregur, Svíþjóð, Dan-
mörk, Grænland, Þýskaland, Holland
og nú síðast Ísland. „Það eru mjög
spennandi tímar framundan hjá
Aflhlutum ehf. varðandi bátasölu,
þar sem nú dregur að sjósetningu
stærsta vertíðarbáts sem smíðaður
hefur verið úr trefjaplasti fyrir íslensk-
an aðila. Bárður SH-81, sem er í eigu
útgerðarmannsins Péturs Péturs-
sonar á Arnarstapa, hefur verið í
smíðum hjá Bredgaard Boats síðan í
febrúar 2018. Bárður SH er smíðaður
undir eftirliti og samkvæmt reglum
flokkunarfélagsins Bureau Veritas. Í
honum er allt það nýjasta nýtt sem er
í boði á markaði í dag.“
Endurnýjun á hefðbundnum ver-
tíðarbátum
Hrafn telur að þar sem mikil endur-
nýjun hafi átt sér stað í togaraflot-
anum og uppsjávarveiðiskipum sé
nú komið að þessum hefðbundnu
vertíðarbátum sem hafa setið eftir.
„Við sjáum að þessir bátar eru flestir
komnir til ára sinna og þarfnast
endurnýjunar. Viðhaldskostnaður og
óhagkvæmni í rekstri er þá töluverður
miðað við þann búnað sem í boði
er í dag. Þar má til dæmis nefna að
aðalvélin í Bárði SH, sem er frá MAN
í Þýskalandi, er með eldsneytisnotk-
un sem gerist vart lægri í þessum
vélaflokki, ekki nema 195 g/kWh og
uppfyllir allar þær ströngu kröfur um
mengun sem gerðar eru í dag.“
Með mikið af búnaði í nýjan Bárð
„Bárður SH verður einn fullkomnasti
bátur af þessari stærð þegar hann
kemur til landsins síðar í sumar. Við
erum þeir aðilar sem erum með
milligöngu um smíði og sölu á þessum
báti og seljum að auki mestallan
búnað í hann. Aðalvélin er frá MAN
og er 900 hestöfl, niðurfærslugírinn
er TWIN DISC MGX, skrúfubúnaðurinn
kemur frá Teignbridge, tvær ljósa-
vélar frá Zenoro í Hollandi, hliðar-
skrúfurnar bæði framan og aftan frá
ABT Track í Bandaríkjunum. Þetta eru
hliðarskrúfur sem hafa reynst alveg
gríðarlega vel á þessum markaði fyrir
smærri gerð af bátum. Svo er kraninn
frá Guerra á Spáni. Við erum því með
puttana í mörgu í tæknibúnaðinum
í þessum bát og erum líka að sinna
eftirliti með smíðinni.
Við fylgjum mjög vel eftir öllum
okkar verkefnum og erum vel tengdir
í þau. Við erum ekki bara að selja,
heldur að þjónusta og fylgja eftir
öllum þáttum, þannig að allt verði
gert eins vel og völ er á fyrir okkar
viðskiptavini,“ segir Helgi, vélfræðing-
ur og rafiðnfræðingur.
27 metra langur og 7 metra breið-
ur
Að mati Hrafns býður bátasmiðja
Bredgaard Boats upp á kosti sem
ekki hafi sést hér á Íslandi áður, þegar
litið er til styrkleika og gæða. „Hinn
nýi Bárður verður stærsti trefja-
plastbátur sem smíðaður hefur verið
fyrir íslenskan útgerðarmann. Hann
er tæplega 27 metra langur og 7
metra breiður. Borghein Yact Des-
ign í Danmörku sem er með áratuga
reynslu í hönnun báta, hannaði og
teiknaði nýjan Bárð SH í samvinnu við
Pétur. Við höfum selt vélbúnað um
borð í íslenska plastbáta í áratugi og
höfum aldrei séð flottari og vandaðri
vinnubrögð á nokkrum bát eins og hjá
Dönunum.
Snurvoðaspil, netatromma og
stjórnbúnaðurinn fyrir snurðvoðina
verður með því fullkomnasta sem
þekkist, og verður öll stjórnun á
voðinni tölvustýrð með snertiskjá.
Þessi búnaður kemur frá AS-Scan
í Danmörku. Allt vökvakerfið í bát-
inn er einnig lagt af sérfræðingum
AS-Scan. Vökvadælur og lokar koma
frá Landvélum. Það er víða komið
við í þessu og þetta verður gríðar-
lega öflugur bátur í alla staði og
vandaður,“ bætir hann við.
Eftir afhendingu bátsins í Röd-
by, verður siglt til Boa Tech í Dan-
mörku þar sem allur dekkbúnaður
verður settur í hann, þ.e. þvottakör,
fiskimóttakan og annar búnaður á
dekki.
Hafa trú á að fleiri fylgi í kjölfarið
„Þegar menn átta sig á öllum kostum
þessa báts og gæði búnaðarinns,
erum við bjartsýnir á að menn flykkist
um borð í hann til að skoða og sjái þá
um leið hve vandaður gripur þetta
er og fari að leita til Danmerkur
eftir nýjum bátum. Ég er viss um að
með þessum nýja Bárði hefjist nýr
kafli í smíði plastbáta fyrir íslenskar
útgerðir. Vinnan er einstaklega
vönduð og verðið mjög gott og höf-
um við mikla trú á því að fleiri fylgi í
kjölfarið,“ segir Hrafn.
Aflhlutir þjóna sjávar-
útvegi, fiskeldi og fleiru
Allir menntaðir vélfræðingar
Aflhlutir var stofnað 2006. „Við
vorum upphaflega sex sem stofnuð-
um fyrirtækið. Síðan skildu leiðir eftir
fyrsta árið en ég og Björn, héldum
áfram með fyrirtækið. Við Björn
útskrifuðumst saman úr Vélaskóla
Íslands árið 1980 og höfum allar
götur síðan verið góðir félagar. Við
unnum þó á sitthvorum staðnum.
Hann hjá Vélsölunni og ég var í mörg
ár hjá Merkúr, svo við vorum keppi-
nautar þá. Svo atvikaðist það þannig
að við hættum á sama tíma, hann
hjá Vélasölunni og ég hjá Marás,
þar sem ég var í eitt ár. Þá stofn-
uðum við Aflhluti og höfum alla tíð
síðan byggt þetta fyrirtæki upp.
Helgi Axel Svavarsson kemur svo inn
í fyrirtækið í byrjun 2017 og er nú
orðinn einn af hluthöfunum. Hann
var framkvæmdastjóri fyrir fyrirtæki
sem heitir Ásafl í nokkuð mörg ár. Við
erum því þrír starfsmenn sem allir
eru jafnframt hluthafar. Við erum
allir menntaðir vélfræðingar og með
réttindi sem slíkir. Helgi er auk þess
menntaður rafiðnfræðingur. Starf-
semin er byrjuð að sprengja utan
af sér, þannig að við erum farnir að
huga að ýmsum hlutum til framtíðar,“
segir Hrafn.