Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.2019, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.2019, Blaðsíða 32
32 5. júlí 2019FRÉTTIR Á dögunum stofnuðu þær Anna Lotta Michaelsdóttir, Elísabet Ýr Atladóttir, Helga Þórey Jónsdóttir og Sóley Tómasdóttir málfrelsissjóð með það að markmiði að geta staðið við bakið á þeim konum sem dæmdar verða fyrir ærumeiðingar vegna baráttu sinnar gegn kynbundnu ofbeldi. Tímasetning sjóðsins er ekki handahófskennd og stofn- uðu þær hann í kjölfar dóms sem Hildur Lilliendahl Viggósdóttir og Oddný Arnardóttir hlutu vegna ummæla sem þær létu falla um tvo menn í Hlíðamálinu. Augljóst að verið er að þagga niður í þolendum Blaðakona hafði samband við þær Önnu, Elísabetu og Sóleyju og ræddi við þær um ástæðu sjóðs- ins, baráttu þeirra í femínískum málefnum, þöggun þolenda og aktívista og hvaða breytingu þær vilja sjá í samfélaginu. „Mér misbauð og mis- býður enn svo hrapal- lega hvernig þessi dómur fór. Maður hefur bæði fylgst með þessu lengi og alist upp sem kona á þessu landi, vaxað hér og þroskast. Maður hef- ur alveg séð hversu lítið vægi við erum að fá og ef það er dæmt í of- beldismálum, sem er aðeins gert í brotabroti af málum, þá er það yf- irleitt skilorðsbundið eða fangelsi í einhverja örfáa mánuði og svo að borga einhverja örfáa þúsund- kalla. Þetta er svo rosalega stórt dæmi og svo fordæmisgefandi. Ég túlka þetta þannig að ég megi ekki tjá mig og tek því sem algjörri þöggun. Það gefur augaleið að verið er að þagga nið- ur í þolendum og tók ég þessu tví- mælalaust þannig af því að hingað til hefur ekki verið svona borð- leggjandi fordæmi fyrir því að réttarkerfið ætlaði að refsa ein- hverjum fyrir það eitt að trúa því sem fram kemur. Og í þessu máli er ekki einu sinni verið að reyna á það að trúa því sem fram kemur þegar ein- hver sakar ein- hvern annan um ofbeldi á netinu heldur bókstaf- lega bannað að hafa það eft- ir fréttaflutn- ingi um atvik- ið. Hvernig er hægt að túlka það öðruvísi en þöggun? Hvar má maður þá tala um þetta? Ef það er einungis á bak við lokaðar dyr við sína allra nánustu og yfirvaldið má aldrei heyra þig tala um þetta þá fáum við ekki neinu breytt. Þetta er eina almennilega andsvarið við því sem gerðist,“ segir Anna Lotta, aðspurð um ástæðu þess að hún ákvað að taka málefnið að sér. Kom ekki annað til greina en að taka skýra afstöðu Elísabet Ýr tekur undir orð Önnu og segir hún að á meðan kon- ur megi ekki tala um það ofbeldi sem þær séu beittar þá sé það eitt mikilvægasta málefnið til þess að tækla. „Málefni þolenda eru ein stærsta hagsmuna- og réttinda- barátta kvenna. Fyrir mér segir það sig sjálft að svo lengi sem kon- ur hafa ekki frelsi til þess að lifa án ofbeldis og fá ekki einu sinni að tala um ofbeldið sem þær eru beittar, þá hlýtur það að vera eitt- hvert mikilvægasta málefnið sem við þurfum að tækla. Svo lengi sem samfélagið telur það í lagi að beita konur ofbeldi, sama hvernig ofbeldið er afsakað eða „útskýrt“, þá eru konur ekki frjálsar. Dóm- arnir í málum Hildar og Oddnýjar staðfestu enn frekar hvað við erum í raun komin stutt þrátt fyrir allt. Það kom ekki annað til greina en að taka skýra afstöðu og gera eitt- hvað í málunum,“ segir Elísabet. „Eftir að dómarnir féllu gegn Hildi og Oddnýju þá spratt þessi hugmynd einu sinni sem oftar upp. Auðvitað eru konur og jaðar- sett fólk orðið langþreytt á því að vera þaggað niður og að tilraun- ir fólks til þess að beita sér fyrir aukinni sanngirni í samfélaginu séu þaggaðar niður með öllum tilteknum ráðum. Núna undan- farið hefur það færst í aukana að réttarkerfinu sjálfu sé beitt sem kúgunartæki gegn fólki sem er að reyna að breyta. Það á ekki bara við um kynferðisofbeldi. Við sjá- um þetta líka í máli Þórhildar Sunnu og Báru. Við sjáum þetta aftur og aftur. Þetta er kerfislæg aðför að fólki sem gagnrýnir kerf- ið. Við vildum stofna þennan sjóð þar sem það er nóg álag á konum sem eru að beita sér gegn kyn- bundnu ofbeldi í samfélaginu án þess að við bætist fjárhagsleg kúgun. Upphæðin sem konurn- ar þurfa að borga eru þannig að fæst fólk ræður við að borga þær. Við reynum því að taka þá pressu af konum að þær geti talað frjáls- ar án þess að eiga á hættu að þurfa að verða gjaldþrota,“ segir Sóley og augljóst er að konurnar eru allar komnar með nóg af þeirri þöggun sem þær telja þolendur verða fyrir. Vilja að þolendur njóti sama málfrelsis og aðrir Þær segja miklar breytingar þurfa að eiga sér stað og að málfrelsis- sjóðurinn sé aðeins hluti af stærri byltingu. Segist Elísabet vonast til þess að þolendur geti notið sama málfrelsis og aðrir svo að þær þurfi ekki að lifa lífi sínu í þögn vegna þeirra brota sem þær hafi lent í. „ Að fólk hafi frelsi til að tala um ofbeldið sem það var beitt, og að almenningur allur hafi þann rétt að ræða þessi málefni án þess að eiga á hættu á að vera hótað mál- sóknum. Við vonumst til þess að æra gerenda hætti að teljast dýr- mætari en málfrelsi þolenda. Það VELDU ÚR MEÐ SÁL www.gilbert.is „VERSTI ÓVINUR ÞOLENDA ER ÞÖGNIN“ n Nýstofnaður Málfrelsissjóður hluti af stærri byltingu n Stofnendur mótmæla því að réttarkerfi sem var sett á fót fyrir forréttindakarla af forréttindakörlum viðhaldi sér „Svo lengi sem sam- félagið telur það í lagi að beita konur ofbeldi, sama hvernig ofbeldið er afsakað eða „útskýrt“, þá eru konur ekki frjálsar Aníta Estíva Harðardóttir anita@dv.is Sóley Tómasdóttir / Mynd: DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.