Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.2019, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.2019, Blaðsíða 44
44 FÓKUS 5. júlí 2019 „ÉG SEGI JÁ VIÐ NÝJUM TÆKIFÆRUM OG SÍÐAN GERAST HLUTIRNIR“ Tvær hliðar Victors Guðmundssonar læknanema og plötusnúðs T ónlistin hefur verið rauði þráðurinn í lífi læknanem- ans Victors Guðmundsson- ar, sem dvelur núna heima á Íslandi þar sem hann starfar á bráðamóttöku Landspítalans og semur tónlist þess á milli. Hann á vinsælasta lag Íslands um þess- ar mundir, Sumargleðin, sem jafn- framt er fyrsta lagið sem hann gefur út í samstarfi við aðra. Vict- or segir að mikilvægast sé að taka fagnandi á móti nýjum tækifær- um. „Ég var að klára fimmta árið,“ segir Victor, sem er 28 ára gam- all og stundar nám við læknaskól- ann Jessenius Faculty of Med- icine í Slóvakíu. Sjötta árið getur hann tekið að hluta til hér heima og mun hann ljúka lyflækningum og skurðlækningum á Akureyri, en síðan tekur hann kven- og barna- lækningar í Slóvakíu. „Svo er það ein ritgerð, kandídatsárið og að lokum sérhæfing.“ Hann er fæddur í Stuttgart í Þýskalandi þar sem foreldrar hans voru að læra, en flutti heim eins árs gamall og fyrir átta árum síð- an flutti fjölskyldan til Noregs, þar sem faðir hans starfar sem verk- fræðingur og móðir hans vinnur á leikskóla. Systir Victors, Eva Mey, var að ljúka fyrsta ári í læknisfræði við sama skóla og hann. „Mig langaði bara að prófa eitt- hvað nýtt,“ segir Victor aðspurður um af hverju hann valdi Slóvakíu. „Ég er kannski öðruvísi en flestir því að fjölskylda mín býr erlendis og ég var svolítið rótlaus hér á Ís- landi þannig að ég hugsaði með mér af hverju ekki að prófa eitt- hvað annað. Ég bjó í Noregi í eitt ár, lærði norsku og hóf að undir- búa mig fyrir inntökupróf í lækn- isfræði, sem mig langaði alltaf í, en ég var mjög opinn fyrir því að læra erlendis. Fyrsta inntökuprófið var í Slóvakíu, en ég náði því og sló bara til, var búinn að lesa mér til um landið og námið og leist vel á.“ Námið er á ensku og því skipti ekki máli í fyrstu að Victor talaði ekki tungumálið. „Við eigum hins vegar að læra tungumálið jafnt og þétt því á þriðja ári förum við inn á spítala og þar eigum við að geta talað við sjúklinga á slóvakísku,“ segir Victor og bætir við að honum finnist gaman að hjálpa og vera umkringdur fólki og því hafi lækn- isfræðin legið vel við. „Mín helsta fyrirmynd í lækn- isfræðinni er afi minn, Frosti Sigurjónsson, sem var þekktur skurðlæknir hér heima. Við vor- um miklir mátar, töluðum mikið um læknisfræði og fleira. Ég fékk stundum að vera með honum upp á stofu og bara féll fyrir læknis- fræðinni.“ Ætlar að sérhæfa sig í bráða- lækningum Victor starfar í sumar á bráðamót- töku Landspítalans á Fossvogi og er það í þriðja sinn sem hann er þar. Deildin skiptist í G2 og G3, og er Victor meira á þeirri síðar- nefndu, á 2. hæð, þar sem bein- brot, skurðir og fleira er með- höndlað. „Mér finnst fjölbreytnin skemmtilegust. Á fjórða árinu í náminu fékk ég að fara á bráða- móttökuna í verknám og féll fyrir þeirri deild, en þar er nóg um að vera og frábær starfsandi. Ég er ekkert stressaður að eðlisfari og mér líður betur undir pressu held- ur en þegar lítið er að gera. Í sumar fæ ég að starfa sem aðstoðarlækn- ir þar sem ég tek á móti sjúkling- um og meðhöndla þá, en ber allar mínar ákvarðanir undir vakthaf- andi sérfræðing. Þetta er mikill skóli og ég er alltaf að læra eitt- hvað nýtt,“ segir Victor og bætir við að draumasérhæfingin sé bráða- lækningar, en heimilislækningar komi líka sterklega til greina. „Þar ertu að hitta fólk með allskonar vandamál. Þú átt líka kost á að fara út á land og ég sé það alveg fyrir mér, vera á nýjum stað.“ Nýtur fulls stuðnings kærustunnar Dagbjört Guðjohnsen Guð- brandsdóttir, kærasta Victors, var að útskrifast úr læknisfræði í Ungverjalandi núna í vor, en þau kynntust fyrir þremur árum í skíðaferð í Slovakíu sem skólarnir héldu sameiginlega. „Hún er líka með listræna hlið og hefur verið að taka ljósmyndir og mála. Við erum búin að vera í fjarsam- bandi síðan við byrjuðum saman, en við höfum keyrt í um fimm klukkustundir á milli til að hitt- ast. Núna verðum við saman á Ak- ureyri, en hún tekur kandídatsár- ið sitt þar. Hún hefur líka áhuga á að sérhæfa sig í heimilislækning- um þannig að við erum samstíga og við erum dugleg að hvetja hvort annað áfram,“ segir Victor og bæt- ir við að þau sjái alveg fyrir sér að vinna erlendis líka. „Við ætlum að vera heima en þar sem við höfum bæði búið er- lendis sjáum við það alveg fyr- ir okkur líka, við erum einhvern veginn tilbúin í allt. Maður finn- ur samt alltaf að rætur manns eru heima á Íslandi og okkur líður vel hérna.“ Íslendingum alltaf að fjölga í Martin Bærinn sem Victor býr í í Slovakíu heitir Martin, lítill og vinalegur 60 þúsund manna bær að hans sögn, þar sem allt er til alls í stuttu göngu- eða hjólafæri. „Ég hjóla eða labba hvert sem ég þarf, þetta er svona radíus; skólinn, spítalinn, búðin, miðbærinn. Fyrst var maður pínu óviss og varð að bjarga sér, en um leið og maður fer að læra inn á bæ- inn og tungumálið þá byrjar þetta að rúlla. Bæjarbúar taka manni mjög vel og sérstaklega þegar mað- ur lærir slóvakískuna.“ Martin er sannkallað- ur stúdentabær og er íslensk- um læknanemum alltaf að fjölga. „Þetta hefur aukist verulega og í dag eru yfir 100 læknanemar þar, en meirihluti þeirra skilar sér heim þegar þeir eru búnir að sérhæfa sig. Mér finnst gaman að sjá að fólk er farið að sækja erlendis í nám sem það langar í – það er ekkert að láta neitt stoppa sig.“ Leitar í tónlistina þegar mikil pressa er Tónlistaráhuginn hefur alltaf verið til staðar hjá Victori. „Pabbi minn er lærður píanóleikari og hann smitaði mig svo rækilega að hann kom mér í Tónlistarskóla Kópa- vogs þegar ég var 10 ára hjá Kristni Gestssyni, sem kenndi pabba líka,“ segir Victor sem lauk burtfarar- prófi í júní árið 2011, þegar hann var tvítugur, „sama ár og ég lauk stúdentsprófi frá Verzló og foreldr- ar mínir fluttu til Noregs, þannig að það var mikið að gera þetta ár. Píanónámið var rosalega góð- ur skóli, ég var alltaf að æfa og tón- leikar voru reglulega 1-2 sinni í mánuði. Þannig að ég var orðinn vanur því að koma fram og leið vel. Þetta hefur hjálpað mér við að koma fram og vera ekkert að stressa mig á því,“ segir Victor sem fékk rautt NORD-píanó í ferm- ingargjöf frá foreldrum sem hann er enn að nota og segist kunna betur á í dag en þá. Ragna Gestsdóttir ragna@dv.is Veðurguðinn Victor og Ingó að hittast í fyrsta skipti eftir útgáfu. Sumargleðin Plötuumslag lagsins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.