Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.2019, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.2019, Blaðsíða 11
FÓKUS - VIÐTAL 115. júlí 2019 þegar það eru búningar frá öðrum tímabilum,“ segir María Birta og bætir við að hún hafi ekki vitað að um væri að ræða Tarantino-mynd þegar hún sótti um hlutverkið. Nokkrar vikur liðu og María Birta hafði ekkert heyrt frá fram- leiðendum myndarinnar. Hún reiknaði með að hafa ekki fengið hlutverkið. „Svo kemur í ljós að ein stelp- an sem fékk hlutverkið, en þetta eru tólf kanínur, held ég, laug svo- lítið mikið til um stærðina sína. Hún mætti og passaði ekki í bún- inginn. Þá var hringt í mig og ég spurð hvort ég væri viss um að mittið á mér væri nákvæmlega einhver ákveðin stærð. Ég sagðist halda það en hafi fengið mér risa- stórt vatnsglas þegar ég vaknaði og kannski væri það einum sentí- metra stærra. Konan sem ég talaði við fór að skellihlæja í símann og sagði að það skipti engu, bara að ég væri um það bil í þessari stærð. Ég svaraði því játandi og var beðin um að mæta klukkustund síðar í mátun,“ segir hún. Hjartað á Maríu Birtu fór á fullt og ætlaði hún ekki að trúa því að þetta væri að gerast. „Ég fór og mátaði búninginn sem smellpass- aði og hann er geggjaður. Hann er alveg sérsniðinn að mér og saum- aður eftir gamla stílnum. Það er geggjað að fá minn eigin búning sem er alveg saumaður á mig,“ segir María Birta. „Ég fór svo í tökur viku seinna og var á setti í tvo daga. Þetta var alveg ótrúlega gaman.“ Segir Tarantino snilling María Birta hafði mjög gaman af því að vinna með Quentin Tarantino. „Hann er náttúrlega algjör snilling- ur og er algjör snillingur í að skapa geggjaðan móral á setti. Það er ótrú- lega gaman að vinna á setti með hon- um því hann fær alla til þess að öskra í byrjun atriða frasa eins og: „Við erum hér því við elskum að gera kvik- myndir.“ Hann er svona einn af okk- ur, svo allir hafi gaman. Því það sést svo ef allir eru stressaðir. Tarantino er svo vingjarnlegur og skemmtilegur að þetta var svo afslappað einhvern veginn,“ segir María Birta. Hún mun því miður ekki mæta á forsýningu myndarinnar hér á landi því hún verður í Skotlandi. Fríköfun María Birta er að æfa fríköfun sem snýst um að kafa án súrefnisbún- aðar. Hún sá færslu frá vinkonu sinni á Facebook um fríköfun. „Ég elska köfun og ég elska vatn. Ég var einu sinni í eina sundballett landsins. Mér líður mjög vel í vatni og stressast ekkert upp. Mér hefur líka alltaf fundist gaman að halda niðri í mér andanum og kafa,“ segir María Birta. „Ég skellti mér á nám- skeið og það gekk svona glimrandi vel, mikið betur en ég bjóst við. En það er vegna þess að ég á mjög auð- velt með að þrýstijafna eyrun á mér. Margir eiga erfitt með að fara svona djúpt niður og losa spennuna í eyr- unum,“ segir María Birta og varð strax ástfangin af sportinu. „Þetta er eitthvað sem allir ættu að læra. Þetta er magnað. Ég vissi ekki að líkami minn gæti gert það sem hann gerir þegar ég er í vatni. Það er bara erfitt að lýsa þessu, hvað maður lærir mikið á sinn eig- in líkama í þessu sporti.“ Hélt hún myndi deyja Dýpsta sem María Birta hefur far- ið eru 42 metrar. „Ég þori nú alveg að viðurkenna það, en kennar- inn minn sagði mér það ekki fyrr en deginum eftir, að ég mátti ekk- ert fara neðar en tuttugu metra, en ég vissi það ekki. Ég hélt ég mætti bara prufa mig áfram. Ég var áður búin að fara niður á 36 metra,“ seg- ir María Birta og lýsir köfuninni. „Ég fór niður og mér leið alveg rosalega vel, köfunin var búin að ganga mjög vel,“ segir María Birta og heldur áfram: „Ég var ekkert að pæla í hvaða dýpt ég væri að fara. Ég var með lokuð augun og toga mig niður. Síðan sneri ég mér við og sá töluna 38 við hliðina á mér. Ég trúði þessu ekki og vissi að það væri stutt í botninn. Það voru tíu mínútur í lokun á sundlauginni og ég ákvað að skella mér niður. Ég togaði mig niður, snerti botninn og spyrnti mér síðan upp. Um leið og ég spyrnti mér upp hugsaði ég: „Vá, þetta voru mikil mistök, þú ert að fara að drukkna,““ segir María Birta og hlær. „Þetta var það fyrsta sem ég hugsaði. „Þetta var aðeins of langt, María mín.“ En svo var ég bara „jæja, ekki hugsa um þetta. Þú varst að æfa björgun og það eru allir þarna uppi að horfa á þig og voru líka að æfa björgun. Þannig þegar þú drukknar, vertu komin eins nálægt toppnum og þú get- ur.“ Ég hélt áfram að synda í ró- legheitunum og alla leiðina upp var ég að segja mér sjálfri að hætta að panika og hugsa það versta. Því maður notar loftið þegar maður er að hugsa svona mikið. Svo allt í María Birta um lífið og leiklistina í Hollywood - Bregður sér í glænýtt hlutverk glímukappa - Sér ekki eftir neinu - „Það var algjört djók og þannig er allt líf mitt og hefur alltaf verið“ María Birta á setti FLOW – Fabulous Ladies Of Wrestling. Mynd: Instagram/@mariabirta María Birta elskar að vera í vatni og segir fríköfun skemmtilegt sport. Mynd: Instagram/@mariabirtaMaría Birta í Óróa. Hamingjusöm hjón. Mynd: Instagram/@mariabirta

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.