Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.2019, Blaðsíða 26
Brot af því besta 5. júlí 2019KYNNINGARBLAÐ
Helga Kolbrún Magnúsdóttir og Elvar Ólafsson, mágur hennar, stofnuðu Berserki Axarkast í
maí 2018. Helga kynntist íþróttinni
fyrst þegar hún var í Nýja Sjálandi
og Elvar í Kanada. „Við féllum bæði
fyrir íþróttinni og fannst axarkast
smellpassa í afþreyingarflóruna á
Íslandi, ekki síst vegna tengingar við
víkingana. Þetta er alveg fullkomin
blanda af keppnis- og fíflaskap og
svo er þetta frábær leið til þess að fá
útrás. Það sem gerir þetta svo enn
skemmtilegra er að manni finnst eins
og maður sé að gera eitthvað sem
maður má ekki, eins og maður sé
pínu óþekkur. Því er engin furða að
axarkast sé vinsælt hjá steggja- og
gæsahópum,“ segir Helga.
Tæknin skiptir máli
Það geta allir kastað exi, sérstaklega
ef fólk getur lyft exinni hátt yfir höfuð.
Ákveðin tækni er á bak við gott kast
og það geta allir lært hana. „Við
höfum fengið fólk á nær öllum aldri
til okkar, unglinga og eldri borgara,
og í lok hvers tíma eru langflestir
farnir að kasta exinni svo hún festist
í skotmarkinu. Þetta er ekki spurn-
ing um að kasta fast, heldur þarf að
miða við stöðu, hvernig haldið er á
exinni og hvar maður stendur. Þetta
þarf allt að passa svo að axarblaðið
lendi í skotmarkinu en ekki skaftið.
Eftir kennslu og létta keppni prófum
við ýmis skemmtileg brelluskot.
Þá köstum við þeim t.d. öfugt eða
tveimur í einu, en þá þarf eiginlega að
gefa frá sér djúpt kraftakarlahljóð,“
segir Helga og hlær.
Taktu þátt í Íslandsmeistaramótinu
í axarkasti
Axirnar sem Berserkir nota eru
staðlaðar keppnisaxir í samsvar-
andi lengd og þyngd og löglegar
keppnisaxir hjá NATF (National Axe
Throwing Federation). Þær koma í
tveimur stærðum, þ.e. hefðbund-
in keppnisexi og önnur stærri sem
er notuð í bráðabana. Axarkast er
vinsæl íþrótt sem er stunduð út um
allan heim. Haldin eru ýmiskonar mót
í keppnisgreininni og meðal annars
heimsmeistaramót. „Ákveðinn kjarni
hér heima æfir reglulega og mætti
á Berserkjamótin sem við héldum í
febrúar og maí. Við höldum Íslands-
meistaramót í haust og stefnum
á að stækka íþróttina og stofna
íþrótta félag utan ÍSÍ til að senda lið á
keppnismót erlendis. Öllum er frjálst
að mæta á Íslandsmeistaramótið, líka
byrjendum. Við förum þá í gegnum
tæknina áður en fólk kastar á mótinu.“
Axir og áfengi er ekki góður kokteill
Á sumrin eru gæsa- og steggjahóp-
ar helsti kúnnahópurinn. Á haustin
og veturna koma fyrirtækin svo með
starfsmenn í samhristinga. „Við
mælumst alltaf til þess ef um er að
ræða ferðir þar sem áfengi verður
haft um hönd, að fólk byrji hjá okk-
ur áður en fyrsti bjórinn er tekinn
upp. Axir og áfengi fara ekki saman,
hvað sem segir í Íslendingasögunum.
Aldurs takmarkið er tæknilega séð
16 ára, en ef um er að ræða börn á
aldrinum 12-16 í fylgd fjölskyldu fá
þau auðvitað að vera með. Yngstu
börnin geta fengið plast- og gúmmí-
axir til þess að leika sér að. Aldurs-
takmarkið er mest til þess að koma í
veg fyrir að fylgdarlaus ungmenni séu
að mæta hingað. Við tökum á móti
allt að 24 manns sem við skiptum
niður á brautirnar okkar tvær. Þetta
er vinsælt hjá fjölskylduhópum en
hingað koma líka pör á rómantísku
stefnumóti. Enn sem komið er hafa
gæsahóparnir ekki verið jafnmargir
og steggjahóparnir, og ég hvet
gæsirnar að koma hingað. Þær þurfa
alveg jafnmikla útrás og karlarnir.
Þetta er fyrir alla!“
Axarkast í guðsgrænni náttúrunni
Axarkastið er til húsa í Hjallahrauni 9
í Hafnarfirði en axarkast má stunda
nánast hvar sem er á bersvæði. „Við
erum með utanhússskotmörk sem
við getum sett upp allstaðar þar sem
er ekki þéttbýli, en við þurfum þó að
sjálfsögðu leyfi frá landeiganda.“
Sími: 546-0456
Nánari upplýsingar á
berserkir-axarkast.is
Facebook: Berserkir axarkast
Instagram: Berserkir axarkast
ÓÞEKKTARANGAR Í AXARKASTI
Fullkomin blanda af
keppnis- og fíflaskap