Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.2019, Side 16
16 5. júlí 2019FRÉTTIR
Sviðin jörð svikahrapps
n Auður sögð svíkja Íslendinga á Tenerife n Sögð liggja á spítala n Lætur ekki ná í sig
„Það þarf að stoppa hana þvi
hún eyðileggur fyrir öllum
þeim Íslendingum sem eru að gera
góða og heiðarlega hluti hér.
Í
slensk kona, sem heitir Auður
Ólafsdóttir og virðist hafa verið
búsett á Tenerife síðan í fyrra,
er sökuð um að svíkja íslenska
ferðalanga á eyjunni. Hún hef-
ur rekið Facebook-síðuna Tener-
ife Leigumiðlun þar sem hún hef-
ur boðið húsnæði til leigu og verið
dugleg að deila auglýsingum inn
í íslenska Facebook-hópa. Hún
virðist því hafa einblínt á að mark-
aðssetja íbúðirnar til Íslendinga
og flestar auglýsingar frá leigu-
miðluninni á erlendum síðum, til
dæmis Gloopla, eru á íslensku.
Svikin loforð
Það var innanhússarkitektinn
Gunnhildur Guðnýjardóttir sem
vakti fyrst máls á meintum svik-
um Auðar, sem kallar sig Audi Auo
á Facebook. Guðný skrifaði langa
Facebook-færslu þar sem hún lýsti
fríi sem hún fór í með fjölskyldu
sinni til Tenerife í nóvember 2018.
Hópurinn samanstóð af sjö full-
ornum, einum unglingi og tveim-
ur börnum. Hópurinn leigði sér
villu í gegnum Auði. Greiddu þau
tæpa hálfa milljón fyrir eina viku,
en villunni var lýst sem lúxushús-
næði. Gunnhildur segir að Auð-
ur þessi hafi tekið á móti hópnum
daginn sem þau lentu í Tener-
ife og látið þau vita að þau gætu
ekki gist í húsinu vegna leka sem
hafði komið upp tveimur dögum
áður. Hópnum var í staðinn boðin
gisting í tveimur húsum sem áttu
að vera steinsnar frá hvort öðru.
„Þetta fékk svolítið á okkur en
ákváðum að láta á þetta reyna og
vera jákvæð enda mætt í frí. Í ljós
kom að það var tæplega 10 mín-
útna gangur á milli húsanna og
ekkert af því sem hafði verið lof-
að var til staðar í þessum húsum
nema rúm til að sofa í og aðgangur
að sundlaug, við gátum ekki einu
sinni setið öll saman og borðað
þar sem ekki var nóg af stólum og
borðbúnaði. Í hvorugu húsinu var
loftkæling sem við vorum þó búin
að borga fyrir,“ skrifar Gunnhild-
ur í Facebook-færslu, en hún sagði
einnig sögu sína í kvöldfréttum
Stöðvar 2 fyrir stuttu.
Hópurinn var ekki ánægður
með þessa reddingu og tjáði Auði
það. Þá segir Gunnhildur að Auð-
ur hafi reiðst og verið dónaleg.
Hópurinn ákvað að leita að hent-
ugu húsnæði á Airbnb og fann eitt
sem uppfyllti allar þeirra kröfur.
Þau létu Auði vita sem sagðist þá
vera búin að finna aðra, mun dýr-
ari íbúð fyrir hópinn. Þegar hópur-
inn fékk sendar myndir af eigninni
kom í ljós að þetta var sama íbúð-
in og þau höfðu fundið á Airbnb,
nema á þeirri síðu var verðið tals-
vert hagstæðara. Þegar hópurinn
sagði Auði það reiddist hún á nýj-
an leik, að sögn Gunnhildar, en
samþykkti loks að borga íbúðina
fyrir hópinn. Það loforð var hins
vegar svikið.
„Við greiddum fyrir síðari íbúð-
ina úti sem við dvöldum í það
sem eftir lifði af fríinu og gerðum
ráð fyrir endurgreiðslu frá henni,
enda með skriflega staðfestingu
á loforði þar um. Enn þann dag í
dag höfum við ekki fengið krónu
endurgreidda af þeirri tæplega
hálfu milljón sem við greiddum
henni fyrir „villuna“ og hún borg-
aði aldrei Airbnb íbúðina, þannig
að þegar upp er staðið greiddum
við tæplega 750.000 kr. fyrir hús-
næði í eina viku á Tenerife.“
Fullt af símanúmerum
– ekkert svar
DV hefur haft samband við aðra
sem hafa leigt íbúðir í gegnum
Auði og þeir hafa sömu sögu að
segja. Þar sem þeirra mál eru í ferli
hjá lögfræðingi hafa þessir aðilar
ekki viljað tjá sig við blaðið.
Facebook-síða Tenerife Leigu-
miðlunar hefur verið lokað en
enn er hægt að finna auglýsingar
um húsnæði á Tenerife á snær-
um Auðar á fyrrnefndri vefsíðu
Gloopla. Allar eignir til leigu eru
á Adeje-ströndinni á suðvestur-
hluta Tenerife. DV hefur ítrekað
reynt að ná sambandi við Auði,
bæði í gegnum tölvupóst, síma
og Facebook. Nokkur símanúm-
er eru tengd henni, bæði íslensk
og spænsk. Eitt af íslensku núm-
erunum sem DV prófaði virtist
vera ótengt og þegar hringt var í
spænskt númer, sem gefið er upp á
Gloopla, fór símtalið beint í talhólf.
Kona sem talaði bjagaða ensku
svaraði í eitt af íslensku númerun-
um sem DV prófaði. Þegar blaða-
maður spurði um Auði var hon-
um sagt að hún gæti ekki svarað í
símann þar sem hún lægi á sjúkra-
húsi. Samkvæmt upplýsingum á
Gloopla var Auður í samstarfi við
aðra síðu á Facebook, Vacation in
Tenerife – Holiday Homes. Þeirri
síðu hefur einnig verið lokað.
Langur sakaferill
Samkvæmt Facebook hélt Auð-
ur utan um Facebook-sölusíðuna
Fegurð & Skart þar til í apríl í fyrra.
Síðan er enn opin en engin virkni
hefur verið á henni síðan 28. apr-
íl í fyrra. Nokkrum dögum fyrr, eða
þann 23. apríl, auglýsti Fegurð &
Skart sölu á ýmsum varningi, bæði
fötum og snyrtivörum, þar sem allt
átti að seljast. Auður á nokkurn
sakaferil á baki. Hún var svipt öku-
réttindum ævilangt árið 2017 og
dæmd í níu mánaða fangelsi þegar
hún var dæmd fyrir að keyra und-
ir áhrifum áfengis og búðarhnupl.
Í dómnum kemur fram að þetta
var í áttunda sinn sem Auður var
fundin sek um að aka undir áhrif-
um áfengis og í sjöunda sinn sem
hún var fundin sek um að aka án
ökuréttinda.
DV hefur haft samband við
nokkra íbúa á Tenerife sem kann-
ast ekki við Auði og hafa einungis
heyrt af meintum svikum henn-
ar í fréttum. Einn íslenskur fyrir-
tækjaeigandi á Tenerife sagðist
telja að Auður hefði ekki tengst Ís-
lendingasamfélaginu á Tenerife,
sem er frekar stórt, þar sem fæst-
ir könnuðust við hana. Sagði hann
afar brýnt að stöðva svikamyllu
hennar ef satt reynist.
„Það þarf að stoppa hana þvi
hún eyðileggur fyrir öllum þeim
Íslendingum sem eru að gera góða
og heiðalega hluti hér,” sagði fyrir-
tækjaeigandinn í samtali við DV. n
Leigusvik á Tenerife eru afar al-
geng og talið er að tíu til fimmtán
falskar auglýsingar svikahrappa
birtist á hinum ýmsu leigusíð-
um á hverjum degi. Á vefsíð-
unni My Tenerife Report er að
finna lista yfir vefsíður sem ber
að varast og er sá listi uppfærð-
ur reglulega. DV hafði samband
við Peter Sarkis hjá My Tener-
ife Report sem kannaðist ekki
við starfsemi Auðar. Samkvæmt
vefsíðunni Schofields er talið að
ferðalangar á Tenerife hafi verið
sviknir um 6,7 milljónir punda,
rúman milljarð króna, í gegnum
leigusvik árið 2018.
Svikarar nota flestir svipaðar
aðferðir. Auglýsa húsnæði sem
er ekki til staðar, hakka sig inn
í aðrar sölusíður og ná þannig
sambandi við væntanlega leigj-
endur og biðja um millifærslur
gegn ríflegum afslætti. Þetta ber
að varast þegar húnsæði er leigt
á Tenerife:
n Aldrei greiða með millifærslu,
hvorki hluta né alla upphæðina.
Ávallt nota kredit- eða debetkort
til að tryggja að hægt sé að bak-
færa færsluna ef upp kemst um
svik.
n Spyrjist fyrir og leitið að um-
mælum um eignina sem þið haf-
ið áhuga á.
n Biðjið um leigusamning – það
verndar bæði leigusala og leigj-
anda.
n Talið við leigusalann í síma. Ef
leigusali er ekki með skráð síma-
númer á síðunni sinni er það
áhyggjuefni.
n Ef þið finnið íbúð í gegnum
viðurkennda bókunarsíðu, eins
og Airbnb, Booking eða Hotels,
og aðili hefur samband við þig og
biður um að hafa samskipti utan
síðunnar og að greiðslan fari ekki
í gegnum viðurkenndu bókunar-
síðuna þá er líklegast um svik að
ræða.
Leigusvik algeng
Lilja Katrín Gunnarsdóttir
lilja@dv.is
Svikin Gunnhildur
Guðnýjardóttir
segir farir sínar
ekki sléttar. Mynd:
skjáskot Stöð 2
Brask Dæmi um auglýsingar Auðar á Brask og
brall. Mynd: skjáskot af Facebook
Leigumiðlunin Skjáskot af Tenerife Leigumiðlun á Facebook áður en síðunni var lokað.
Prófílmyndin
Þessa mynd
notar Auður á
Facebook.