Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2019, Page 24

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2019, Page 24
Gæði - vörur og þjónusta 12. júlí 2019 KYNNINGARBLAÐ SUÐULIST: Stál er okkar fag Suðulist er rótgróið og framsækið fyrirtæki sem býður upp á víðtæka þjónustu í hverju því sem viðkemur stáli og smíði úr því. „Við sérhæfum okkur í hönnun, sérsmíði og uppsetningu, hvort heldur er þá fínsmíði eða grófsmíði fyrir einstaklinga, veitingastaði, verslanir og hvers konar fyrirtæki. Við þjónustum meðal annars mikið arkitekta og verkfræðistofur um ýmsar sérlausnir,“ segir Þór Ólafsson, framkvæmdastjóri Suðulistar. Allt frá ljósakrónum upp í virkjanir Sem dæmi má nefna að Suðulist hefur komið nálægt flestum virkjunum og verksmiðjum síðustu áratugi og má þá helst nefna álverin í Straumsvík, Grundartanga, Reyðarfirði, Búðarhálsvirkjun, Fljótsdalslínu og Járnblendið á Grundar- tanga. „Einnig höfum við flutt inn, og sett upp stálgrindarhús um allt land líkt og höfuðstöðvar Marel, höfuðstöðvar Lýsis og FH frjálsíþróttahús. Einnig erum við í hinum ýmsum sér- smíðum og að setja upp handrið, stiga, ljósakrónur, stál/gler skilveggi og hverju því sem viðskiptavinurinn óskar eftir.“ „Við leggjum mikinn metnað í starf Suðulistar og erum afar stolt af öllum þeim verkefnum sem við höfum tekið þátt í.“ Hafðu endilega samband ef þú vilt frekari upplýsingar. Nánari upplýsingar á sudulist.is Sími: 565-2911 Sendu fyrirspurn: sudulist@sudulist.is Facebook: Suðulist

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.