Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2019, Síða 24
Gæði - vörur og þjónusta 12. júlí 2019 KYNNINGARBLAÐ
SUÐULIST:
Stál er okkar fag
Suðulist er rótgróið og framsækið fyrirtæki sem býður upp á víðtæka þjónustu í hverju því sem viðkemur stáli og smíði úr því. „Við sérhæfum okkur í hönnun,
sérsmíði og uppsetningu, hvort heldur er þá fínsmíði eða
grófsmíði fyrir einstaklinga, veitingastaði, verslanir og hvers
konar fyrirtæki. Við þjónustum meðal annars mikið arkitekta
og verkfræðistofur um ýmsar sérlausnir,“ segir Þór Ólafsson,
framkvæmdastjóri Suðulistar.
Allt frá ljósakrónum upp í virkjanir
Sem dæmi má nefna að Suðulist hefur komið nálægt
flestum virkjunum og verksmiðjum síðustu áratugi og má þá
helst nefna álverin í Straumsvík, Grundartanga, Reyðarfirði,
Búðarhálsvirkjun, Fljótsdalslínu og Járnblendið á Grundar-
tanga. „Einnig höfum við flutt inn, og sett upp stálgrindarhús
um allt land líkt og höfuðstöðvar Marel, höfuðstöðvar Lýsis
og FH frjálsíþróttahús. Einnig erum við í hinum ýmsum sér-
smíðum og að setja upp handrið, stiga, ljósakrónur, stál/gler
skilveggi og hverju því sem viðskiptavinurinn óskar eftir.“
„Við leggjum mikinn metnað í starf Suðulistar og erum
afar stolt af öllum þeim verkefnum sem við höfum tekið þátt
í.“
Hafðu endilega samband ef þú vilt frekari upplýsingar.
Nánari upplýsingar á sudulist.is
Sími: 565-2911
Sendu fyrirspurn: sudulist@sudulist.is
Facebook: Suðulist