Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2019, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2019, Síða 26
Gæði - vörur og þjónusta 12. júlí 2019KYNNINGARBLAÐ Þ. Þorgrímsson & Co er gamalgró-in byggingavöruverslun, heild-sala og smásala sem þjónustar byggingamarkaðinn með sölu og þjón- ustu á hvers konar byggingavörum til klæðninga á loftum og veggjum innan- sem utanhúss. Einnig býður fyrirtækið upp á flísaplötur sem eru auðveldar í uppsetningu sem og kork á gólf. Að auki sérhæfir fyrirtækið sig í hljóðeinangr- un fyrir híbýli, verslanir, skrifstofur og iðnaðinn jafnt sem hitaeinangrun fyrir frystiiðnaðinn. „Við flytjum okkar byggingarefni inn sjálfir beint frá framleiðendum, beggja vegna Atlantshafsins. Einnig leiðbein- um við fólki varðandi uppsetningu og getum bent á viðeigandi iðnaðarmenn varðandi uppsetningu. Véladeildin hefur svo fylgt okkur í gegnum árin þar sem við þjónustum ýmiss konar múrverkfæri svo sem steypuvíbratora, slípivélar o.þ.h., svo eitthvað sé nefnt,“ segir Ólafur Traustason hjá Þ. Þor- grímsson & Co. Hreinleg lausn og engin fúga „Við erum líklega þekktastir fyrir FIBO- -baðplöturnar sem hafa slegið í gegn undanfarið. Þetta eru stórsniðugar, slitsterkar og höggþolnar plötur sem eru auðveldar í uppsetningu og til í fjöldamörgum útfærslum. Mislitun og óhreinindi í fúgum eru ekki vanda- mál þar sem það þarf ekki fúgu við uppsetningu platnanna. Yfirborðið þolir einnig mikinn vatnsþrýsting og hitasveiflur og allar plöturnar eru með Aqualock-lásum á langhliðum. Plöturnar eru til í ýmsum litum, með ýmiss konar áferð og útlit og hefur sjónsteypu-útlitið sérstaklega verið að sækja á hjá yngri kynslóðinni,“ segir Ólafur. Flott hönnun og gæði fara saman við gerð FIBO-baðplatnanna. Þær eru hreinlegasta og auðveldasta efnið til að nota á veggi í baðherbergi en henta einnig vel fyrir eldhús, skóla, sjúkrahús, rannsóknarstofur, matvælaiðnað, íþróttahús, búningsherbergi og alls staðar þar sem kröfur um mikið hrein- læti eru gerðar. Korkur á gólfin Korkur er sívinsælt gólfefni enda slitsterkur, fallegur og mjúkur. Korkurinn er ekki eingöngu þessi gamli brúni sem við þekkjum flest frá barnæsku, þó svo að hann sé vissulega ennþá hægt að fá. Í dag fæst hann í ýmiss konar útfærslu sem passar inn í öll herbergi. Hann fæst með viðarútliti, marmaraút- liti o.fl. Einnig má fá korkinn vatnsþolinn, þannig að hægt er að vera með sama gólfefnið á öllum gólfum, hvort sem er í stofunni, eldhúsinu eða baðherberginu. Ekkert spartl, ekkert vesen Þ. Þorgrímsson býður einnig upp á sniðugar Walls2Paint-plötur á veggi. Um er að ræða spónaplötur með samsetningu svipaða og er á parketi. Samskeytin hverfa algerlega við upp- setningu. Plöturnar koma grunnaðar frá verksmiðju og það þarf ekkert ann- að að gera en að skrúfa þær upp og mála. „Það er til dæmis mjög vinsælt að smíða milliveggi úr Walls2Paint og sleppa þannig við alla spartlvinnuna sem annars væri eftir,“ segir Ólafur. Nánari upplýsingar má nálgast á vef- síðu www.thco.is Ármúli 29, 108 Reykjavík (Borgar- miðjan) Sími: 512-3360 Netpóstur: thco@thco.is Þ. ÞORGRÍMSSON & CO: Hreinlegar lausnir og auðveld uppsetning HydroCork á gólf. Vatns- þolið og slitsterkt gólfefni. FIBO-baðplötur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.