Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2019, Blaðsíða 26
Gæði - vörur og þjónusta 12. júlí 2019KYNNINGARBLAÐ
Þ. Þorgrímsson & Co er gamalgró-in byggingavöruverslun, heild-sala og smásala sem þjónustar
byggingamarkaðinn með sölu og þjón-
ustu á hvers konar byggingavörum til
klæðninga á loftum og veggjum innan-
sem utanhúss. Einnig býður fyrirtækið
upp á flísaplötur sem eru auðveldar í
uppsetningu sem og kork á gólf. Að auki
sérhæfir fyrirtækið sig í hljóðeinangr-
un fyrir híbýli, verslanir, skrifstofur og
iðnaðinn jafnt sem hitaeinangrun fyrir
frystiiðnaðinn.
„Við flytjum okkar byggingarefni inn
sjálfir beint frá framleiðendum, beggja
vegna Atlantshafsins. Einnig leiðbein-
um við fólki varðandi uppsetningu og
getum bent á viðeigandi iðnaðarmenn
varðandi uppsetningu. Véladeildin
hefur svo fylgt okkur í gegnum árin
þar sem við þjónustum ýmiss konar
múrverkfæri svo sem steypuvíbratora,
slípivélar o.þ.h., svo eitthvað sé nefnt,“
segir Ólafur Traustason hjá Þ. Þor-
grímsson & Co.
Hreinleg lausn og engin fúga
„Við erum líklega þekktastir fyrir FIBO-
-baðplöturnar sem hafa slegið í gegn
undanfarið. Þetta eru stórsniðugar,
slitsterkar og höggþolnar plötur sem
eru auðveldar í uppsetningu og til í
fjöldamörgum útfærslum. Mislitun
og óhreinindi í fúgum eru ekki vanda-
mál þar sem það þarf ekki fúgu við
uppsetningu platnanna. Yfirborðið
þolir einnig mikinn vatnsþrýsting og
hitasveiflur og allar plöturnar eru
með Aqualock-lásum á langhliðum.
Plöturnar eru til í ýmsum litum, með
ýmiss konar áferð og útlit og hefur
sjónsteypu-útlitið sérstaklega verið
að sækja á hjá yngri kynslóðinni,“ segir
Ólafur.
Flott hönnun og gæði fara saman
við gerð FIBO-baðplatnanna. Þær eru
hreinlegasta og auðveldasta efnið til
að nota á veggi í baðherbergi en henta
einnig vel fyrir eldhús, skóla, sjúkrahús,
rannsóknarstofur, matvælaiðnað,
íþróttahús, búningsherbergi og alls
staðar þar sem kröfur um mikið hrein-
læti eru gerðar.
Korkur á gólfin
Korkur er sívinsælt gólfefni enda
slitsterkur, fallegur og mjúkur. Korkurinn
er ekki eingöngu þessi gamli brúni sem
við þekkjum flest frá barnæsku, þó
svo að hann sé vissulega ennþá hægt
að fá. Í dag fæst hann í ýmiss konar
útfærslu sem passar inn í öll herbergi.
Hann fæst með viðarútliti, marmaraút-
liti o.fl. Einnig má fá korkinn vatnsþolinn,
þannig að hægt er að vera með sama
gólfefnið á öllum gólfum, hvort sem er í
stofunni, eldhúsinu eða baðherberginu.
Ekkert spartl, ekkert vesen
Þ. Þorgrímsson býður einnig upp á
sniðugar Walls2Paint-plötur á veggi.
Um er að ræða spónaplötur með
samsetningu svipaða og er á parketi.
Samskeytin hverfa algerlega við upp-
setningu. Plöturnar koma grunnaðar
frá verksmiðju og það þarf ekkert ann-
að að gera en að skrúfa þær upp og
mála. „Það er til dæmis mjög vinsælt
að smíða milliveggi úr Walls2Paint og
sleppa þannig við alla spartlvinnuna
sem annars væri eftir,“ segir Ólafur.
Nánari upplýsingar má nálgast á vef-
síðu www.thco.is
Ármúli 29, 108 Reykjavík (Borgar-
miðjan)
Sími: 512-3360
Netpóstur: thco@thco.is
Þ. ÞORGRÍMSSON & CO:
Hreinlegar lausnir og
auðveld uppsetning
HydroCork á
gólf. Vatns-
þolið og
slitsterkt
gólfefni.
FIBO-baðplötur