Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2019, Qupperneq 43
FÓKUS 4312. júlí 2019
Sögurnar á bak við dægurperlurnar
Ástarlagið Tvær stjörnur er að finna á
plötu Megasar Bláir draumar sem kom
út á níunda áratugnum. Margir telja
það eitt besta ástarlag íslenskrar dæg-
urlagasögu.
Árið 2015 gaf Óttar Guðmunds-
son geðlæknir út bók um ævi og verk
Megasar þar sem hann braut hverja
einustu hljómplötu Megasar til
mergjar, allt frá þeirri fyrstu frá
árinu 1972 til þeirrar nýjustu frá
2012. Óttar ræddi um útgáfu
bókarinnar við Morgunblað-
ið á sínum tíma og kom þá
til tals lagið Tvær stjörnur
sem Óttar kallaði „ástarlag
aldarinnar.“ Á níunda áratugn-
um dvaldi Megas í Taílandi og
kynntist þar manni sem nefnd-
ur er Mú. Óttar sagði Megas
hafa hrifist af Mú og bjuggu þeir
saman á Íslandi um skeið.
„Mú hafði gríðarleg áhrif
á Magga og til dæm-
is orti hann til Mú
ástarlag aldar-
innar, Tvær
stjörnur. Þótt
kjaftasögurn-
ar færu á flug
hefur ekki
verið fjallað
áður um þetta samband með raunsæj-
um hætti eins og ég geri í bókinni.“
Birgir Baldursson, fyrrverandi for-
maður Vantrúar, ritaði bloggfærslu í
febrúar 2004 þar sem hann lýsti sam-
ræðum sem hann átti við Megas á
öldurhúsi í Reykjavík en þar kom lag-
ið Tvær stjörnur meðal annars til tals.
„Þetta hugverk er samið
um söknuð eftir lifandi
manneskju og vonina
um að fá að hitta hana
aftur síðar og endur-
taka ástarævintýrið.
En svo virðist sem
þeir sem misst
hafa börn sín nái að
bindast þessum texta
meira en aðrir og höf-
undurinn er stöðugt að
heyra frá slíku fólki og af
því hve verð-
mætt
þetta
lag/
ljóð er í
hugum
þess.“
Ég veit þú kemur var gert ódauðlegt í flutningi Ellyjar Vilhjálms á sjöunda ára-
tugnum. Lagið samdi Oddgeir Kristjánsson, tónlistarkennari í Vestmannaeyjum,
en textann orti Ástgeir Ólafsson, einn ástsælasti tónlistarmaður Vestmanna-
eyja sem ávallt var þekktur sem Ási í Bæ. Tvíeykið samdi fjölmörg þjóðhátíðarlög
saman í gegnum tíðina. Þegar hlustað er á textann er auðvelt að draga þá ályktun
að lagið fjalli um rómantískar ástir manns og konu. Staðreyndin er hins vegar sú
að textinn fjallar um samskipti þeirra félaga, Ása og Oddgeirs.
Guðfinnur Eiríksson tónlistarmaður rifjar upp söguna á bak við lagið í færslu á
bloggsíðu sinni Guf.Fi. árið 2012.
„Eitthvert árið var Oddgeir löngu búinn að semja lagið og koma því til Ása, sem
hafði hins vegar dregið það úr hófi að semja textann við lagið. Það var farið að
styttast í Þjóðhátíð og Oddgeir byrjaður að ókyrrast svo hann gerði sér ferð heim
til Ása. Hann var heima hjá sér timbraður þegar Oddgeir kom og hitti hann og var
mikið niðri fyrir. Hann væri löngu búinn að skila af sér laginu en Ási væri ekki að
standa við sinn part samkomulagsins. Nú væri orðið stutt í Þjóðhátíð og lagið yrði
að fara að verða klárt og með þessari framkomu sinni væri Ási að koma óorði á þá
báða. Með þessum orðum kvaddi Oddgeir svo Ása. Ási vissi vel upp á sig sökina
og daginn eftir mætti hann heim til Oddgeirs vinar sínast og færði honum þennan
texta.“
Fjölmargir textar Bubba Morthens vísa í at-
burði úr samtímanum og lagið Móðir, sem
kom út á plötu Egó árið 1982, er þar engin
undantekning. Lengi gengu þær sögur að
texti lagsins væri innblásinn af óhugnan-
legu atviki sem átti sér stað í Reykjavík
í upphafi níunda áratugarins, þegar
ung stúlka varð fyrir hrottalegri lík-
amsárás og nauðgun í miðbænum.
Í desember 1997 var Bubbi í
viðtali í þætti Lísu Páls á Rás 2 og
ræddi hvernig Móðir varð til.
„Þetta varð svo rosaleg-
ur smellur. Það hefði verið
skemmtilegra ef það hefði ver-
ið betri texti við svona stór-
an smell. Málið er að þetta lag
var samið á fimm mínútum uppi
í Tónabæ sem þá var og hét, í
hljóðprufu. Það hafði nefnilega
komið í fréttum að ein-
hver geðveikur
ofbeldis-
maður hefði misþyrmt og nauðgað ungri
stúlku í Þverholtinu. Við heyrðum um þetta
í bílnum á leiðinni upp í Tónabæ. Ég skrifa
textann semsagt inni í Tónabæ. En lagið var
allt í lagi, þetta var svona katsí-lag. En ég
hefði nú glaður viljað leggja meiri vinnu í
textann.“
Hljómsveitin Brimkló gerði lagið Skólaball
ódauðlegt á níunda áratug seinustu aldar
en það var Magnús Kjartansson sem samdi
smellinn. „Þetta bara lak úr pennanum og
varð til. Þarna var ég að rifja upp það sem
við kölluðum skólaböll og æskulýðsböll um
helgar. Þarna vorum við tveir mjög góð-
ir vinir að slást um sömu stúlkuna eins og
gerist og gengur. Ég tók þetta mjög alvar-
lega víst, samkvæmt textanum. Og ekki lýgur
minnið þegar maður skrifar svona,“ rifjaði
Magnús upp í samtali við Víkurfréttir árið
2014.
Í samtali við Morgunblaðið sama ár rifj-
aði Magnús upp að á umræddu skólaballi
hefði hann séð á eft ir vin i sínum og stúlk-
unni læðast í burtu en sjálf ur gekk hann
„særður út í nótt ina“ eins og segir í laginu.
Rétt eins og segir í textanum kom hann sér
síðan fyr ir í skoti ná lægt heim ili stúlkunnar
og beið þar eftir henni. Stúlk an birt ist síðan,
snöktandi og hallaði sér upp að ljósastaur.
„Magnús tók þá á sig rögg, fór til stúlk-
unn ar og huggaði og til að gera langa sögu
stutta þá eru þau Magnús hjón enn þann
dag í dag.“
Ég veit að þú kemur
Tvær stjörnur
Skólaball
Móðir