Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2019, Side 44
44 MATUR 12. júlí 2019
Kartöflukleinuhringir
(6–8 stk. kleinuhringir)
Hráefni:
n 60 ml mjólk, volg
n 1 msk. sykur
n ½ tsk. þurrger
n 2 kartöflur, soðnar, skrældar, volgar
n ½ egg
n 2 msk. smjör, brætt
n ¼ tsk. lyftiduft
n ¼ tsk. matarsódi
n 110 g hveiti
n salt eftir smekk
n kókosolía til að steikja upp úr
n flórsykur til að strá yfir
Aðferð:
Blandið saman volgri mjólkinni við sykurinn og þurrger-
ið. Hrærið vel saman og látið standa á hlýjum stað þar
til gerið myndar froðu á yfirborðinu.
Til að fá kartöflurnar sem léttastar í deiginu
er best að nota kartöflupressu, annars
stappa þær vel og hræra svo í
þeim með gaffli til að gera
þær loftkenndari. Blandið
saman við smjörið,
athugið að kæla það
niður svo eggið eldist
ekki. Hrærið eggið og
blandið helmingn-
um af því saman
við. Blandið saman
við gerblönduna.
Hveiti, lyftiduft og
matarsódi ásamt
salti sett í skál.
Hinum hráefnunum
blandað saman
við og hrært varlega
saman þar til allt hveitið
hefur blandast saman
við vökvann og deig hefur
myndast. Ekki hnoða neitt
frekar. Setjið yfir skálina hreinan
klút og látið standa í kæli 6–8 klukkustundir.
Að þeim tíma liðnum er kókosolían brædd, passið að
hafa hana ekki of heita. Deigið flatt út og kleinuhringir
skornir út. Það eru víst til sérstök form til að skera út
kleinuhringi en þar sem ég átti ekkert slíkt fann ég
niðursuðudós og tappa af flösku í réttum stærðum í
endurvinnsluskápnum. Eldhúspappír settur á disk til
að taka við hringjunum eftir steikingu.
Ágætt að prófa hitastigið á olíunni með litlu hringj-
unum innan úr kleinuhringjunum. Kleinuhringirnir
eru svo steiktir, snúið við þegar þeir eru orðnir fallega
gullbrúnir. Flórsykri stráð yfir.
Þessir stoppuðu ekki lengi á disknum, rétt náði að
smella mynd af þeim. Það var eiginlega staðið yfir mér
á meðan. Dásamlega góðir. Athugið að þetta er lítil
uppskrift þar sem ég var að nýta afgangskartöflur og
átti aðeins 110 grömm (nákvæmlega) af hveiti í skáp-
unum. Fínt að tvöfalda hana allavega.
Sjáðu úrvalið á goddi.is
Sauna- og gistitunnur GODDI.ISAuðbrekku 19 - kópAvogi - S. 544 5550
Sauna- og
gistitunnur ásamt
viðarkyntum pottum
Sjáðu úrvalið
á goddi.is
Margar gerðir
Eigum fjórar stærðir af lokum á
lager í gráum og brúnum litum
Verð aðeins 58.500 kr.
JARÐEPLI í aðalhlutverki
hjá Eygló Harðar
n Fyrrverandi ráðherra gefur góðar uppskriftir n Söðlaði um og lærir nú matreiðslu
Lilja Katrín Gunnarsdóttir
lilja@dv.is
Eygló Harðardóttir, fyrrverandi þingmaður og ráðherra, söðlaði
um fyrir stuttu og fór í matreiðslunám. Hún nýtur sín á nýjum starfs-
vettvangi og hefur samhliða honum opnað Facebook-síðuna Eygló
eldar, þar sem hún gefur lesendum spennandi, skemmtilegar og
nýstárlegar uppskriftir.
Eygló er einstaklega hrifin af kartöflum og gefur lesendum DV tvær
uppskriftir að réttum þar sem gamla, góða jarðeplið er aðalstjarnan.
Bestu afgangarnir
Nýbakaðir og ilmandi kleinuhringir?
Hljómar vel, en hvað með heimatilbúna,
nýbakaða og ilmandi kartöflukleinuhringi
í hvítu flórsykurskýi? Þeir sem voru að
hafa áhyggjur af brotthvarfi Krispy Kreme
geta núna andað léttar og bakað sína eigin
kleinuhringi, og nýtt allar kartöflurnar sín
ar í leiðinni.
Lofa að þetta voru bestu afgangar sem
ég hef smakkað.
Elskar kar
töflur
Ég elska kar
töflur, skilst að
það sé í genun
um. Oft hefur
kartöflugratín
með smá
skinku eða
spínati verið
aðalrétturinn á
heimilinu, sem
og fylltar bak
aðar kartöflur
svo ég tali nú
ekki um djúp
steiktar kar
töflur. Hér er
nýjasta tilraun
in með kartöfl
ur, dásamlega
bragðgóðar
og dúnmjúkar
kartöfluvöffl
ur. Held að ég
muni héðan af
alltaf baka þær
svona.
Kartöfluvöfflur
Hráefni:
n 1 bolli hveiti
n 2 msk. sykur
n 2 tsk. lyftiduft
n ½ tsk. salt
n 1–1½ bolli kartöflumús, eða 1 stór soðin
bökunarkartafla eða 4–5 venjulegar kartöflur,
soðnar og án hýðis
n 1 bolli léttmjólk
n 2 egg
n 5 msk. matarolía
n 1 tsk. vanilludropar, má sleppa
Aðferð:
Hveiti, sykri, lyftidufti og salti bland-
að saman í skál. Kartöflumúsinni
blandað saman við mjólkina
og olíuna, eggin hrærð saman
við ásamt vanilludropunum.
Blandið létt saman við hveiti-
blönduna. Ef þið notið soðna
kartöflu, stappið hana, – best er
að stappa hana í kartöflupressu
til að deigið verði sem léttast.
Einnig hægt að pressa hana í
gegnum gróft sigti.
Fylling á vöfflur (f. tvær vöfflur
hver uppskrift)
Skinku- og sveppafylling
Hráefni:
n olía
n 3 skinkusneiðar, saxaðar í bita
n 3–4 sveppir, skornir í sneiðar
n laukur, skorinn fínt
n 2 egg, steikt á pönnu í smjöri á lágum hita
n salt og pipar
n graslaukur, saxaður fínt
Aðferð:
Skinkan, sveppirnir og laukurinn svissað létt saman á
pönnu. Saltað og piprað. Eggin steikt, graslaukurinn
saxaður fínt. Skinkublandan sett á vöffluna, eggið yfir
og graslauknum dreift yfir.
Nýrnabauna- og tómatfylling
Hráefni:
n olía
n ½ bolli nýrnabaunir, soðnar
n ½ laukur, skorinn fínt
n 1 tómatur, skorinn í báta
n 2 msk. hummus
Aðferð:
Olía sett á pönnu, laukurinn svissaður létt í olíunni.
Nýrnabaununum bætt út í og hitaðar. Tómatbátarnir
settir síðast út á pönnuna. Hummusinn smurður á
vöffluna og nýrna- og tómatblandan sett yfir.