Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2019, Blaðsíða 50

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2019, Blaðsíða 50
50 FÓKUS 12. júlí 2019 Eftirsóttar og einhleypar Sumarið er tíminn þegar ástin kviknar – Margar frambærilegar, íslenskar konur eru á lausu Sumarsólin hefur svo sannarlega leikið við lands- menn það sem af er sumri og eflaust fleiri hjörtu sem slá í takt núna en í skammdeginu. Enn er þó möguleiki til að láta sumarástina kvikna. DV kíkti á einhleypa og eftirsótta íslenska karlmenn fyrir stuttu og nú er röðin komin að konunum. Guðrún Sóley Gests dóttir, 31 árs Guðrún Sóley er mikið útivistarfrík, sjónvarpskona og listakokkur. Hún hefur því ansi margt til brunns að bera til að gera sumarlegt ástar- samband ríkt af list, menn- ingu, mat og hreyfingu. Margrét Friðriks- dóttir, 41 árs Frumkvöðla- fræðingurinn Margrét Friðriks- dóttir fer mikinn í samfélagsumræðu á netinu og er ekki allra. Hún berst fyrir því sem hún trúir á og stendur fast á sínu. Manuela Ósk Harðardóttir, 35 ára Það virðist vera fátt sem þessi fegurðardrottn- ing, áhrifavaldur og athafnakona get- ur ekki gert – svo fjölhæf er hún. Manuela er með bein í nefinu, er kröfuhörð og sættir sig ekki við neitt múð- ur. Alvöru kjarnakona hér á ferð. María Sigrún Hilmars- dóttir, 40 ára María Sigrún, fréttakona á RÚV, skildi nýverið við Pétur Árna Jónsson, en þau gengu í það heilaga árið 2011 og eiga saman þrjú börn. María Sig- rún er bráðgáfuð, skemmtileg og fyndin og því leikur einn að eyða með henni sumrinu – jafnvel ævinni. Sigríður Ólafs- dóttir – Sissa , 58 ára Sissa á að baki mjög far- sælan feril sem ljósmyndari og skólastjóri Ljósmyndaskól- ans. Hún hefur marga fjöruna sopið og því uppfull af skemmti- legum sögum, svo ekki sé minnst á hve einstaklega næmt, listrænt auga hún hefur. Inga Lind Karlsdóttir, 43 ára Inga Lind og Árni Hauksson fluttu nýverið í sundur og því smá smuga á sumarást með sjónvarpskonunni og fram- leiðandanum Ingu Lind. Hún er fyndin með eindæmum og einstaklega góður sögumað- ur, sem er ekki leiðinlegt á löngum sumarkvöldum. Sunneva Eir Einars- dóttir, 22 ára Áhrifavaldurinn Sunneva Einars lifir lúxuslífi og leyfir fylgjendum sínum á samfélags- miðlum að fylgjast grannt með því. Lífið með henni gæti ver- ið algjört partí en tilvonandi vonbiðlar þyrftu líklegast að sætta sig við að deila sviðsljósinu með stjörnunni. SKJÁSKOT/INSTAGRAM @SUNNEVAEINARSS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.