Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2019, Síða 51
FÓKUS 5112. júlí 2019
Eftirsóttar og einhleypar
Sumarið er tíminn þegar ástin kviknar – Margar frambærilegar, íslenskar konur eru á lausu
Margrét R. Jónasar, 49 ára
Förðunarmeistarinn knái
hóf nýverið störf sem
förðunarstjóri RÚV enda
einstaklega fær í sínu fagi.
Margrét er afar sjarmerandi
kona með marga góða kosti
og hefur komið víða við á
löngum ferli.
Áslaug Arna Sigur-
björnsdóttir, 28 ára
Áslaug Arna er ritari Sjálf-
stæðisflokksins og skelegg þing-
kona sem tekið er eftir. Hún veit
nákvæmlega hvað hún vill og er
einstaklega metnaðarfull í öllu
sem hún gerir. Hún elskar
bláan, humar og hvítvín
og er einstaklega góður
förunautur sem lætur
ekkert stoppa sig.
Brynja Jónbjarnar-
dóttir, 25 ára
Hagfræðingurinn, markaðs-
ráðgjafinn og fyrirsætan Brynja
Jónbjarnardóttir er algjört
undrabarn. Nánast allt
sem hún snertir verð-
ur að gulli. Það skal
því engan undra
að hún er gull af
manni og læt-
ur verkin
tala.
DJ Dóra Júlía, 26 ára
Dóra Júlía er einn vin-
sælasti plötusnúður landsins og
ferðast vítt og breitt, bæði hér heima
og erlendis, með DJ-græjurnar í
farteskinu. Dóra Júlía kann að lifa
lífinu, er traustur vinur þegar
eitthvað bjátar á og einstak-
lega einbeitt, ung kona.
Berglind „Festival“ Péturs-
dóttir, 30 ára
Það finnst varla
hnyttnari kona en Berg-
lind, en hún hefur gert
gott mót í þættinum Vik-
an með Gísla Marteini á
RÚV. Berglind er mennt-
aður dansari og getur
því bæði sagt gaman-
sögur og tekið dansspor.
Hin fullkomna kona?
SKJÁSKOT INSTAGRAM @BRYNJAJON
Þórhildur Sunna Æv-
arsdóttir, 32 ára
Þeir sem vilja rökræður,
nýja vinkla á gömul mál og
mikla kappsemi ættu að reyna
að heilla Þórhildi Sunnu
upp úr skónum. Hún
lætur í sér heyra
ef henni misbýð-
ur eitthvað og
er vinur vina
sinna.