Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2019, Síða 51

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2019, Síða 51
FÓKUS 5112. júlí 2019 Eftirsóttar og einhleypar Sumarið er tíminn þegar ástin kviknar – Margar frambærilegar, íslenskar konur eru á lausu Margrét R. Jónasar, 49 ára Förðunarmeistarinn knái hóf nýverið störf sem förðunarstjóri RÚV enda einstaklega fær í sínu fagi. Margrét er afar sjarmerandi kona með marga góða kosti og hefur komið víða við á löngum ferli. Áslaug Arna Sigur- björnsdóttir, 28 ára Áslaug Arna er ritari Sjálf- stæðisflokksins og skelegg þing- kona sem tekið er eftir. Hún veit nákvæmlega hvað hún vill og er einstaklega metnaðarfull í öllu sem hún gerir. Hún elskar bláan, humar og hvítvín og er einstaklega góður förunautur sem lætur ekkert stoppa sig. Brynja Jónbjarnar- dóttir, 25 ára Hagfræðingurinn, markaðs- ráðgjafinn og fyrirsætan Brynja Jónbjarnardóttir er algjört undrabarn. Nánast allt sem hún snertir verð- ur að gulli. Það skal því engan undra að hún er gull af manni og læt- ur verkin tala. DJ Dóra Júlía, 26 ára Dóra Júlía er einn vin- sælasti plötusnúður landsins og ferðast vítt og breitt, bæði hér heima og erlendis, með DJ-græjurnar í farteskinu. Dóra Júlía kann að lifa lífinu, er traustur vinur þegar eitthvað bjátar á og einstak- lega einbeitt, ung kona. Berglind „Festival“ Péturs- dóttir, 30 ára Það finnst varla hnyttnari kona en Berg- lind, en hún hefur gert gott mót í þættinum Vik- an með Gísla Marteini á RÚV. Berglind er mennt- aður dansari og getur því bæði sagt gaman- sögur og tekið dansspor. Hin fullkomna kona? SKJÁSKOT INSTAGRAM @BRYNJAJON Þórhildur Sunna Æv- arsdóttir, 32 ára Þeir sem vilja rökræður, nýja vinkla á gömul mál og mikla kappsemi ættu að reyna að heilla Þórhildi Sunnu upp úr skónum. Hún lætur í sér heyra ef henni misbýð- ur eitthvað og er vinur vina sinna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.