Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2019, Side 56
12. júlí 2019
28. tölublað 109. árgangur Leiðbeinandi verð 995 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Þetta hótel
verður engin
dvergasmíð!
522 4600
www.krokur.net
Krókur hf. er fyrirtæki sem að hefur sérhæft sig í flutningum og björgun ökutækja.
Félagið rekur einnig þjónustumiðstöð fyrir tjónaökutæki þar sem veitt er ahliða þjónusta
í meðhöndlun tjónabifreiða og annarra bifreiða samkvæmt óskum viðskiptavina.
Krókur býður m.a. uppá:
• Starfsmenn sem eru þjálfaðir og reyndir í bíla- og tækjaflutningum
• 24 stunda þjónustu allt árið um kring
• björgunarþjónustu og aðstoð ef bílar bila eða flytja þarf þá á verkstæði
Taktu Krók á leiðarenda
Suðurhraun 3, 210 Garðabær
á þinni leið
Þriðji drengur
Jónsson
F
rasakóngurinn og
athafnamaðurinn Jón
Gunnar Geirdal og sál
fræðingurinn Fjóla Katrín
Steinsdóttir eignuðust sitt
annað barn saman í vikunni.
„Hetjurnar mínar. Fyrsti verkur
kl. 12 í gær, skráð inn á Kvenna
deild 13.12 og þriðji drengur
Jónsson fæddur 13.58. Ótrúleg
mamman stóð sig sturlað vel og
ekki að sjá að gullfallega konan
mín sé nýbúin að eiga á þessari
mynd! Mæðginum heilsast
vel, himnasendingin sonurinn
blómstrar og stórfjölskyldan í
skýjunum,“ skrifar Jón Gunnar
á Facebook. Eins og áður segir á
parið eitt barn fyrir en auk þess
á Jón Gunnar tvö börn með
fyrrverandi konu sinni.
Einkaflug-
maðurinn
Anna Mjöll
S
öngfuglinn Anna Mjöll
Ólafsdóttir ber svo
sannarlega nafn með
rentu. Anna Mjöll,
sem hefur verið búsett í
Bandaríkjunum um árabil,
er með flugmannsréttindi og
hefur unun af því að fljúga.
Fyrrverandi eigin maður
hennar, Cal Worthington, var
flug maður í hernum og átti
flugvélar og einkaþotu og því
gátu þau deilt þessari ástríðu
á meðan allt lék í lyndi. Nú
hefur söngfuglinn bætt enn
einni fjöður í hattinn því Anna
Mjöll nældi sér nýverið í einka
flugmannsréttindi og henni eru
því allir vegir færir.
Erlend hótelkeðja blæs lífi í Álfaland
H
ótelkeðjan Six Senses,
sem rekin er af breska
fyrir t ækinu IHG, kemur að
opnun nýs lúxushótels hér
á landi, nánar tiltekið í Össurárdal.
Lúxushótelið verður opnað árið
2022 samkvæmt frétt á heimasíðu
keðjunnar.
Áður hefur verið sagt frá því að
hótelið muni bera nafnið Álfaland,
en margir koma að uppbyggingu
hótelsins ásamt Six Senses, þar
á meðal fjárfestirinn og tísku
frömuðurinn Áslaug Magnús
dóttir, Stuðmaðurinn Jakob Frí
mann Magnússon og arkitektinn
John Brevard.
„Við erum spennt að búa til sér
stakan stað sem tileinkaður er heil
brigði, sjálfsskoðun og sjálfbærni í
hrífandi umhverfi. Þetta er fyrsti
gististaður sinnar tegundar á Ís
landi,“ segir Áslaug í frétt á heima
síðu Six Senses.
Sjötíu herbergi verða á hótelinu
og er mikil áhersla lögð á að byggja
úr endurnýtanlegum efnum í
nágrenni við Össurárdal í Austur
Skaftafellssýslu. Hluti af hótelinu
verður byggður inn í umhverfið en
meðal þess sem verður að finna á
hótelinu verður bókasafn, bíósalur,
vatnabar og svokölluð jarðarstofa
þar sem hægt verður að kynna sér
betur hugsjónina á bak við sjálf
bærni hótelsins.
Ljóst er að lúxus verður í fyrirúmi
á Álfalandi, enda er lúxus einkenn
ismerki Six Senseskeðjunnar.
Undir nafni keðjunnar er að finna
tugi hótela víðs vegar um heim, til
að mynda í New York og á Ibiza.
IHG keypti Six Senseskeðjuna fyrr
á þessu ári, en undir hatti IHG er til
að mynda InterContinentalhót
elkeðjan og Regentkeðjan. IHG
greiddi þrjú hundruð milljónir
dollara fyrir Six Senseskeðjuna og
er áætlað að hótel sem bera nafn
Six Senses verði orðin sextíu tals
ins á næstu tíu árum.