Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2019, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2019, Blaðsíða 12
12 14. júní 2019FRÉTTIR É g hugsa að ég myndi frekar vilja deyja í svefni heldur en þurfa að dvelja öldruð við þessar aðstæður. Það er vont að geta ekki verið öruggur um foreldri sitt,“ segir Eiríka G. Guð­ jónsdóttir í samtali við DV en hún gagnrýnir harðlega manneklu og fjársvelti á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu á Nesvöllum. Ein og afskipt Aðstæður á Hrafnistu á Nesvöll­ um voru til umfjöllunar nýlega en á dögunum greindi DV frá andláti 68 ára gamallar konu sem þar var búsett. Konan lést í október síðast­ liðnum, ein og afskipt í herbergi sínu og var endurlífgun ekki reynd þegar komið var að henni. Dæt­ ur konunnar þrjár telja að and­ lát hennar hafi komið til vegna vanrækslu starfsfólks á umönnun hennar og segjast ítrekað hafa kvartað yfir umönnun móður þeirra. Konan hafði verið ein inni á herbergi með mat, þó svo að skýr fyrirmæli væru til staðar um að hún ætti að borða undir eftirliti. Þá var hún ekki með bjöllu til að láta vita af sér, þótt það sé skýrt að vistmenn eigi að vera með hana. Niðurstaða Landlæknis var sú að eftirliti með konunni hafi verið verulega ábótavant og ekki í sam­ ræmi við þarfir hennar. „Hún þarf bara að bíða“ Eiríka skrifaði hugleiðingu á Face­ book á dögunum og lýsti því sem við blasti þegar hún heimsótti móður sína á deildina. Þegar Eir­ íka gekk inn á deildina var að­ eins einn starfsmaður að störf­ um. Þegar Eiríka grennslaðist fyrir um málið var henni tjáð að fimm starfsmenn hefðu hringt sig inn veika um morguninn. „Ég varð sorgmædd í hjarta mínu að aðeins einn starfsmaður væri að sinna heilli deild og jafn- framt var ég líka reið. Ég spurði starfsstúlkuna: „Ef að það þarf að skipta á mömmu, hvað þá?“ Svarið sem Eiríka fékk var að þá yrði að kalla á hjálp frá annarri deild og bíða eftir að einhver kæmi. Var henni sagt að móðir hennar „þyrfti bara að bíða“. Eiríka er búsett erlendis en heimsækir móður sína í hvert sinn sem hún kemur til Íslands. Hún segir að það sama hafi verið upp á teningnum þegar hún heimsótti móður sína í janúar síðastliðnum. Þá hringdu sex starfsmenn sig inn veika. „Það er mjög erfitt að horfa upp á foreldri sem greinist með heilabilun og hvað þá að fá ekki góða umönnun þar sem að við- komandi er orðinn aldraður. All- ir einstaklingar eiga rétt á að það sé komið fram við þá sem einstak- linga en ekki einsleitan hóp.“ „Ég velti því fyrir mér hvort það sé virkilega hægt að leggja það á einn starfsmann að hugsa um heila deild, með einstaklingum sem þurfa fulla umönnun,“ segir Eiríka jafnframt og spyr: „Finnst yfirmönnum Nesvalla Hrafnistu þetta ásættanlegt? Er í lagi að koma svona fram við íbúa Hrafnistu? Ég er svo sár og reið fyrir hönd þessara einstaklinga sem búa á þessari deild en þetta er þeirra heimili en ekki stofnun. Ég tel að hér sé um alvarlega van- rækslu að ræða sem er algerlega óásættanleg.“ Aldrei fleiri en þrír á vakt Móðir Eiríku var greind með heilabilun árið 2008 og er bund­ in við hjólastól. Hún hefur dval­ ið á Hrafnistu á Nesvöllum í tæp fjögur ár. Alls búa 10 einstaklingar á deildinni. Af þeim eru fimm í hjólastól og fjórir þurfa fulla um­ önnun. Heimilisfólkið þarf mis­ mikla hjálp við daglegar athafn­ ir en móðir Eiríku er ein af þeim sem reiðir sig algjörlega á aðstoð annarra. „Hún þarf 100 prósent þjónustu við allt, eins og að borða og baðast. Það þarf tvær mann­ eskjur til að hjálpa henni upp úr stólnum og leggja hana í rúm.“ Í samtali við DV segist Eir­ íka aldrei hafa séð fleiri en tvo til þrjá starfsmenn á sömu vakt. Fullmönnuð vakt telst vera fimm starfsmenn. Móðir hennar þarf því langoftast að bíða eftir aðstoð. „Systir mín hefur til dæmis þurft að skipta um á blautu rúmi hjá mömmu. Í eitt skipti var mamma í fötum af annarri konu þó svo að öll fötin hennar séu merkt.“ Faðir Eiríku kemur í heim­ sókn á deildina tvisvar á dag og sömuleiðis eiginmaður annarrar konu sem þar dvelur. „Þeir eru þá að hjálpa til, eins og við að leggja á borð og svona og pabbi sér um að mata mömmu. Þeir eru í raun bara eins og starfs­ menn þarna. Pabba finnst gaman að geta hjálpað til, en þetta á auð­ vitað ekki að vera svona. En það er ekki annað í boði.“ Eiríka tekur fram að gagnrýnin beinist ekki að starfsfólki Hrafn­ istu, heldur þeim sem sitja við stjórnvölinn. Hún tekur heils­ hugar undir þær gagnrýnisraddir sem heyrst hafa í kjölfar andláts­ ins í október síðastliðnum. „Það er ekki hægt að leggja það á starfs­ fólkið að vinna undir þessum að­ stæðum.“ n Smiðjuvegur 4C - 202 Kópavogur - S 587 2202 Ryðga ekki Brotna ekki HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt, silvurgrátt og dökkgrátt „Ég er svo sár og reið fyrir hönd þessara einstaklinga Auður Ösp Guðmundsdóttir audur@dv.is SEGIR MÓÐUR SÍNA VAN- RÆKTA Á HRAFNISTU

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.