Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2019, Síða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2019, Síða 25
Veitingablaðið 14. júní 2019 KYNNINGARBLAÐ Ekta ítalskur andi og pizzur af betri gerðinni Veitingastaðurinn Essensia var opnaður fyrir tveimur árum og er hugarfóstur Hákonar Más Örvarssonar sem vildi opna ekta ítalskan veitingastað í fínni kantinum. Fyrir utan hágæða matreiðslu hefur verið lögð mikil vinna í að hafa um- hverfið sem fallegast og í ósviknum ítölskum anda: „Við fengum til okkar ítalska arkitekta til að hanna staðinn og allar innréttingar og smíði, stólar, borð og barinn, öll ásýnd staðarins, er flutt inn frá Ítalíu,“ segir Hákon. Það sama má segja um matseldina, þar á meðal pitsu- gerðina, þetta er allt ekta ítalskt: „Við gerum pitsur í þessum Napolitana- -stíl sem fer þannig fram að pitsan er aldrei mikið lengur en eina og hálfa til tvær mínútur í 320 °C heitum eldofn- inum. Það fer hins vegar meiri tími í að undirbúa hana, fletja út deigið og setja ofan á hana. Pitsurnar eru lagaðar aðeins minni en gengur og gerist en hráefnið er það sem gerir gæfumuninn varðandi gæðin.“ Vinsælasta pitsan á Essensia er humarpitsan og hefur hún slegið svo rækilega í gegn að hún er orðin eitt af helstu einkennismerkjum staðarins: „Við notum ítalska San Marsano- -tómata sem eru mikilvægt hráefni í þessum Napolitana-pitsum. Við ger- um okkar eigin Ricotta-ost og notum einnig mascarpone sem grunn með tómötunum, síðan, að sjálfsögðu, humarinn okkar góða. Við þetta bæt- ist síðan smá chili, hvítlauksolía og sjávarsalt.“ „Ítalski Parma-skinku ostaplatt- inn með grilluðu brauði og ólífum klikkar seint enda pottþétt byrjun á góðum málsverði. Humar spagettíið okkar með hvítlauk, chili og hvítvíni er að sama skapi sívinsælt og svo er „Milanese“ kálfaschnitzelið guð- dómlegt. Essensia Tiramizu er svo fullkominn endir á kvöldinu og svíkur engan.“ Pitsurnar vinsælar Aðrar pitsur á matseðlinum eru líka vinsælar og vandað er til verka við gerð þeirra í hvívetna, til dæmis við hina hefðbundnu Margarita-pitsu, og einnig óvenjulegri pitsur, eins og kartöflupitsu með pancetta-beikoni, rósmaríni og brieosti. Í rauninni er engin sérlöguð pitsusósa á pitsunum okkar heldur notum við San Marsa- no-tómatana beint og byggjum þetta síðan á deiginu sem er alltaf lagað daglega á staðnum, en þó ekki bakað fyrr en 1–2 dögum síðar; þetta meðal annars er það sem gerir pitsurnar bragðgóðar og einstakar.“ Fyrir utan pitsurnar er matseðillinn á Essensia nokkuð fjölbreyttur. Boðið er upp á afbragðsgóða pastarétti, steikur, fiskrétti og fleira. Þess má geta að Essensia býður upp á ferskan fisk dagsins á sérkjörum í hádeginu á kr. 2.250. Sem fyrr segir er umhverfið fallegt og þægilegt. „Þetta er í fínni kantin- um, þú situr vel í gæðastólum og það eru tauservíettur á borðum. Útsýn- ið er að Hörpu og nágrenni og fólk nýtur þess virkilega að slaka hér á yfir góðum mat,“ segir Hákon, en mjög stórir gluggar prýða staðinn og veita frábært útsýni. „Það er mjög vinsælt að koma hingað áður en farið er í leikhús eða Hörpu,“ segir Hákon og kemur ekki á óvart enda bara nokkur skref frá staðnum yfir í Þjóðleikhúsið og örstuttur gangur að tónlistarhúsinu. Staðurinn er vinsæll en að sögn Há- konar eru Íslendingar í meirihluta þó að erlendir ferðamenn sæki staðinn líka nokkuð vel. Essensia tekur 60 manns í sæti í einu. Nánari upplýsingar eru á vefsíð- unni essensia.is. Hverfisgata 4-6, 101 Reykjavík. Sími: 517-0030 essensia@essensia.is Facebook: Essensia n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.