Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2019, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2019, Blaðsíða 38
38 BLEIKT 14. júní 2019 A llir eldast með hverju árinu, hverj- um deginum og hverri sekúndunni. En það er hægt að hægja á einkenn- um öldrunar með því að tileinka sér rétt líferni. Öldrun fylgir ekki aðeins hrör- legra útlit heldur alvarleg heilsufarsvanda- mál. Finna má góð ráð til þess að hægja á öldrun á vef læknisins Kellyann Petrucci sem hefur sérhæft sig í því. Borðaðu heilsusamlegt og lífrænt fæði Matur er mikilvægasti þátturinn í lífi okk- ar allra og það er ekki sama hvað við setj- um ofan í okkur. Unninn matur er einn mesti vágestur samtímans. Í honum er lítið af næringarefnum en sægur af hvítum sykri, slæmum fituolíum, litarefnum, skor- dýraeitri og fleiri óæskilegum efnum. Þessi efni hafa mjög slæm áhrif á heils- una til lengri tíma. Þau stytta litningsenda erfðaefnisins og skemma frumur í húð, heila, sinum svo að dæmi séu tekin. Til að hægja á einkennum öldrunar er mælst til þess að fólk borði mikið af litríku grænmeti af öllum gerðum. Einnig ávexti og hnetur sem innihalda heilsusamlegar fitu- olíur og ólífuolíu. Ef kjöt er lagt sér til munns skal það aðeins vera af dýrum sem eru gras- bítar og svo kjúklingur. Ofneysla áfengis er vitaskuld skaðleg til lengri tíma og veikir lifrina. Haltu þig við eitt glas af léttvíni á dag. Kollagen er besta næringarefnið gegn öldrun því það styrkir húðina, hárið, neglur, bein og liði. Ef fólk innbyrðir nóg af kollageni verður öll hreyfing í ellinni auðveldari og auk þess hamlar það hrukkumyndun. Hægt er að fá kollagen í púðurformi en besta nátt- úrulega leiðin til að innbyrða kollagen er að drekka beinaseyði. Hreyfðu þig á hverjum degi Nýjar vöðva- og beinfrumur myndast aðeins ef maður hreyfir sig reglulega. Án hreyfingar hrörna vöðvarnir og bein langtum hraðar en annars. En hreyfing hefur ekki aðeins áhrif á bein og vöðva heldur minnkar hún ýmsar bólg- ur sem fylgja öldrun. Þetta er stærra mál en það hljómar því þetta minnkar líkurnar á ýmsum sjúkdómum, til dæmis hjartasjúk- dómum, sykursýki og krabbameini. Er þá eina leiðin til að eldast ekki að púla endalaust í ræktinni eða skokka klukku- tímum saman? Nei, alls ekki. Mikil átök í stuttan tíma, kannski ekki nema tíu mín- útur á hverjum degi, gera meira til að hægja á áhrifum öldrunar. En auðvitað hjálp- ar öll hreyfing, hvort sem það eru göngut- úrar, íþróttir eða jafnvel aðeins að taka til hendinni í garðinum. Varaðu þig á eiturefnum Hér gildir það sama og um mataræðið. Eit- urefni hafa skaðleg áhrif á heilsuna til langs tíma og áhrifin koma oft fram á síðustu árum ævinnar. Þessi eiturefni geta verið hvar sem er í umhverfinu. Besta ráðið er það sama og allir læknar gefa: Hættu að reykja. Við vitum öll hvaða áhrif tóbaksreykur hefur á heilsuna og það er óþarfi að tíunda það hér. Plast er meinsemd, ekki aðeins fyrir um- hverfið heldur líkamann líka og plastagn- ir geta læðst inn í líkamann á ýmsa vegu. Besta leiðin til að koma í veg fyrir að inn- byrða plastagnir er að hætta að drekka úr plastflöskum og plastmálum. Nota frekar ílát úr ryðfríu stáli. Ál er einnig slæmt fyrir heilsuna og hef- ur verið tengt við þróun Alzheimers-sjúk- dómsins. Því skal hvorki nota álpappír við matseld né drekka úr áldósum. Óæskileg efni geta verið í snyrtivörum og kremum. Oftast eru slæmu efnin í vörum sem hafa lykt en þær góðu lyktarlausar. Ein besta leiðin til að losa líkamann við eiturefni er að fasta en þá til skamms tíma í senn. Ein aðferð til að gera þetta er að sleppa mat tvo daga í viku. Á þeim dögum er samt heimilt að drekka te, kaffi, beina- seyði og vatn að sjálfsögðu. Önnur aðferð er að lengja tímann milli máltíða í sjö eða átta klukkutíma. Hvað varðar máltíðirnar sjálf- ar ber að hafa þau ráð sem gefin voru fyrr í greininni. n Listin að eldast vel Hvað á að gera og hvað ekki til að hægja á einkennum öldrunar„Mikil átök í stuttan tíma, kannski ekki nema tíu mínútur á hverj- um degi, gera meira til að hægja á áhrifum öldrunar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.