Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2019, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2019, Blaðsíða 28
Veitingablaðið 14. júní 2019KYNNINGARBLAÐ Fjallkonan sólar sig á besta útisvæði borgarinnar Veitingastaðurinn Fjallkonan krá & kræsingar var opnað-ur fimmtudaginn 6. júní með pomp og prakt. Bergdís Örlygsdóttir, einn eigenda staðarins, segir opnun- ina hafa gengið vonum framan enda hefur veðrið leikið við Reykvíkinga og útisvæðið blómstrað af sólelskum matargestum. „Á bak við staðinn stendur afar öflugt teymi frábærs hóps af fjallkonum og flottum strák- um. Svo er Fjallkonan líka systur- veitingastaður Sushi Social, Sæta svínsins, Tapasbarsins og Apoteksins,“ segir Bergdís. Sjón er sögu ríkari Fjallkonan er skemmtilegur og lifandi veitingastaður en alls ekki laus við að vera afslappaður og kósí líka. Fjall- konan fær nafn sitt frá veitingahús- um frumkvöðulsins og kvenskörungs- ins Kristínar Dahlstedt, sem opnaði fjölda veitingastaða á Íslandi og þann fyrsta árið 1905. „Kristín færði Íslendingum spennandi kræsingar og skemmtilega stemningu sem við hjá Fjallkonunni viljum endurskapa á nútímalegan hátt. Staðinn hannaði Leifur Welding og er útlitið mjög hlýlegt og litríkt, en það er svolítið erfitt að lýsa útlitinu. Sjón er sögu ríkari.“ Forvitnilegt upphaf Fyrir stuttu birtist afar forvitni- leg auglýsingaherferð frá Fjallkonunni þar sem ljósmyndir af íslensk- um kvenskörungum nútímans sáust víða. „Hugmyndin á bakvið birtingu Fjallkonumynd- anna var ekki aðeins að vekja forvitni á nafninu og staðnum, heldur líka beina athygli að því hvað við eigum mikið af flottum íslenskum, sterkum konum sem eru frábærar fyrir- myndir á margs konar sviðum. Við fengum fullt af frábærum konum með okkur í lið, eigendur og starfsmenn á staðnum tóku þátt, alls konar flottar konur sem tengj- ast staðnum á einn eða annan hátt. Til dæmis tók Hera Fjord, barna- barnabarn fjallkonunnar sjálfrar, þátt, en hún hefur sett á svið einleik um langalangalangömmu sína og líf hennar. Í framhaldinu fengum við fjölda fyrirspurna frá konum og beiðnum í gegnum samfélagsmiðla um að fá að vera fjallkonur líka og það er aldrei að vita nema við bætum við fleiri flottum fjallkonum í framhaldinu.“ Syndsamlega góðir eftirréttir og erlend menningarblanda Matseðillinn hjá Fjallkonunni er mjög fjölbreyttur og er skemmtileg blanda af alþjóðlegu bragði í bland við íslenskar hefðir. Þar má t.d. nefna Peking style önd með íslenskum pönnu- kökum. Einnig er frá- bært úrval af djúsí grænmetisréttum. En engin mál- tíð er fullkomnuð fyrr en feita konan syngur og eftir- réttirnir eru komnir á borðið. „Fjallkonan er með úrval af hrika- lega sætum eftirréttum sem eru alveg syndsam- lega góðir. Hjá henni færðu sætindaparísarhjól, Þrista súkkulað- itertu og djúpsteikt Oreo, sem hefur algerlega verið að slá í gegn hjá okkur frá opnun staðarins.“ Útisvæðið hjá Fjallkonunni er eitt það besta sem finnst í Reykjavík. „Það hefur eiginlega verið alveg stútfullt síðan við opnuðum sem er auðvitað alveg frábært. Það er opið á staðnum hjá okkur í hádeginu og á kvöldin í mat og svo bjóðum við alla velkomna að kíkja við í drykk eða kaffi og eftirrétt. Það er geggjað að sitja hér úti í sól og sumaryl og sötra ljúf- fengan drykk. Við erum einnig með spennandi snarl og smárétti sem skemmtilegt er að deila. Vonandi heldur veðrið áfram að leika við Reykvíkinga í sumar,“ segir Bergdís. Nánari upplýsingar á vefsíðunni fjallkona.is Hafnarstræti 1-3, 101 Rvk. SímiÞ 555-0950 fjallkona@fjallkona.is Facebook: Fjallkonan Instagram: fjallkonan.rvk n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.