Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2019, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2019, Blaðsíða 2
2 14. júní 2019FRÉTTIR 1982 – Argentínski herinn í borginni Stanley í Falklandseyjum gefst upp. Á þessum degi, 14. júní 1690 – Vilhjálmur III Englandskon- ungur tekst á við forvera sinn, Jakob II í Írlandi. 1730 – Ítalska tónskáldið Antonio Sacchini fæddist. 1746 – Skoski stærðfræðingurinn Colin Maclaurin lést. 1926 – Brasilía yfirgaf Þjóðabanda- lagið. áhugaverð söfn Sum- arið í ár virðist ætla að slá flest hitamet og sumarbú- staðirnir verða því væntanlega þétt setnir. Höf- uðborgarbúar þurfa þó ekki að örvænta því að fjölmörg söfn eru í boði til að heim- sækja, fræðast og skemmta sér í. Hér eru 5 áhugaverð söfn í Reykjavík. Kjarvalsstaðir Kjarvalsstaðir hafa hýst sýningar íslenskra og erlendra listamanna síðan þeir voru opnaðir árið 1973. En verk Jóhannesar S. Kjarvals hafa ávallt skipað þar sérstakan sess. Í maí síðastliðnum var sýn- ing á verkum Kjarvals sem nefnist „Gat ekki teiknað bláklukku“ opnuð og mun standa yfir til ársloka. Á sama tíma var opnuð sýning á verkum Sölva Helgasonar sem nefndist „Blómsturheimar“. Upplagt er að koma við á Kjarvalsstöðum, nóta listarinnar og útsýnisins en einnig er kaffihúsið þar víðfrægt. Árbæjarsafn Árbæjarsafnið gamla er eitt hentugasta safnið fyrir barnafólk. Margar sýningar eru í gangi, þar á meðal leikfangasýningin „Komdu að leika!“ sem er gríðarvinsæl hjá yngstu kynslóðinni. Þá er nóg af leiktækjum á lóðinni, húsdýr og ýmislegt annað um að vera. Sérstaklega vinsælt er þegar starfs- fólkið bakar lummur með rúsínum fyrir krakkana. Önnur vinsæl sýning á Árbæjarsafni er „Neyzlan – Reykjavík á 20. öld“ þar sem skyggnst er inn í neysluvenjur Íslendinga í gegnum tíðina. Grasagarðurinn Grasagarðurinn í Laugar- dalnum er nokkurs konar blanda af lystigarði og lifandi safni undir berum himni. Garðurinn er rekinn af Reykjavíkurborg og á sér meira en hálfrar aldar sögu. Meginhlutverk garðsins er fræðsla um umhverfið, garðyrkju, garðamenningu og fleira. Um 5000 plöntur eru varðveittar í garðinum í átta safndeildum og tek- ið er á móti skólahópum allt árið um kring. Á sólríkum sumardögum er einnig tilvalið að setjast niður í kaffihúsinu Flóru og fá sér hressingu. Listasafn Einars Jónssonar Hnitbjörg, heimili Einars Jónssonar, hefur staðið eins og kastali í Þing- holtunum lengur en flest önnur hús þar um kring. Nú hýsir það mörg af verkum myndhöggvarans kunna. Eins og flestir vita þá prýða styttur Einars borgina á mörgum stöð- um. Má þar nefna styttuna af Ingólfi Arnarsyni við Arnarhól, Jóni Sigurðssyni á Austurvelli og Jónasi Hallgrímssyni í Hljóm- skálagarðinum. Hans fegurstu og jafn framt magnþrungnustu verk standa þó flest í garði Listasafnsins. Má þar til dæmis nefna Vernd sem stendur í garðinum miðjum. Myntsafn Seðlabankans Myntsafn Seðlabanka Íslands er falinn gimsteinn í safnaflóru Reykjavíkur. Safnið er í höfuðstöðvum bankans við Kalkofnsveg 1. Safnið er ekki stórt en aðgangur er ókeypis og vel þess virði að líta inn. Í myntsafninu má sjá alla prentaða peninga og slegnar myntir á Íslandi síðan á átjándu öld. Auk þess eru margar orður og verðlaunapeningar þar til sýnis, þar á meðal íslenska fálkaorðan. Safnið er ekki aðeins fyrir fullorðna því þar má einnig sjá veglegt safn af spari- baukum síðustu áratuga. Til dæmis Trölla, Bjössa, Samma og Paddington. N ýlega kom út platan Al- gleymi, önnur breiðskífa black-metal hljómsveit- arinnar Misþyrmingar. En hún ku vera á meðal fremstu sveita í nýrri tegund tónlistar, Icelandic Black Metal. Platan fer vel af stað og fellur gagnrýnendum vel í geð. Sem dæmi lenti platan í ellefta sæti á lista Billboard í flokknum World Albums. Þrjú ár í vinnslu Platan Algleymi hefur verið nokk- uð lengi í vinnslu en upptökur hófust árið 2016. Þegar fyrsta út- gáfa var tilbúin í upphafi ársins 2017 var hætt við útgáfu þar sem hljómsveitarmeðlimir voru ekki nógu ánægðir með útkomuna. Eft- ir tvö og hálft ár til viðbótar er Al- gleymi nú loksins fáanleg. Platan var hljóðrituð af for- sprakka sveitarinnar, sem kall- aður er D.G. Var hún fullunn- in til útgáfu í hljóðverinu Orgone Studios í Bretlandi en upptöku- stjóri var Jamie Gomez Arellano. Um hönnun umslags sá myndlist- armaðurinn Manuel Tinnemans, sem hefur áður unnið með black metal-hljómsveitum. Til dæmis Deathspell Omega frá Frakklandi og Urfaust frá Hollandi. Misþyrming var stofnuð árið 2014 og ári seinna kom fyrsta plat- an út, Söngvar elds og óreiðu. Hefur hljómsveitin verið mjög virk síðan í tónleikahaldi og kom meðal annars fram á KEXPort árið 2016, árlegri sumarhátíð Kex Hostels á Skúlagötu. Hátíð í Mosfellsbæ Til að fylgja plötunni eftir mun Misþyrming halda tónleikaferða- lag um Evrópu frá september næstkomandi. Þá kemur sveitin einnig fram á hátíðinni Ascension í Hlégarði í Mosfellsbæ. Þar munu koma fram þrjátíu hljómsveitir, flestar black metal-sveitir, frá Ís- landi og erlendis frá. Auk Misþyrmingar munu með- al annars koma fram Antaeus frá Frakklandi, Gost frá Bandaríkj- unum, Jupiterian frá Brasilíu og Wlvennest frá Belgíu. Hátíðin er haldin 13. til 15. júní. Algleymi er nú aðgengileg á Spotify, YouTube og fleiri streym- isveitum en einnig geisladiskur og vínylútgáfa. Síðar á árinu mun platan koma út á kasettu. n „Þegar fyrsta út- gáfa var tilbúin í upphafi ársins 2017 var hætt við útgáfu þar sem hljómsveitarmeðlimir voru ekki nógu ánægðir með útkomuna Ný plata frá Misþyrmingu Ein virkasta sveit íslensks black metal Misþyrming Mynd: Void Revelations. Síðustu orðin „Það er fallegt“ – Elizabeth Barrett Browning, enskt skáld, 1806–1861.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.