Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2019, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2019, Blaðsíða 26
Veitingablaðið 14. júní 2019KYNNINGARBLAÐ Einsi kaldi úti í Eyjunum Í Vestmannaeyjum er að finna einn af bestu veitingastöðum landsins þar sem góður matur, ferskt hrá- efni, staðbundin matargerð og fag- mannlegt handbragð koma saman og skapa einstaka upplifun fyrir alla þá sem þar snæða. Veitingastaðurinn Einsi kaldi er hugarfóstur matreiðslu- meistarans Einars Björns Árnason- ar. Staðinn opnaði hann árið 2012 í framhaldi af veisluþjónustunni sem hann opnaði 2008, eftir útskrift árið 2007 þar sem hann var verðlaunaður fyrir góðan námsárangur. Árið 2011 kláraði hann svo meistaranámið. „Það hefur gengið alveg ótrúlega vel hjá okkur og það má nefna að við vorum í efsta sæti yfir veitingastaði á Suðurlandi á Trip Advisor í þrjú ár og höfum alltaf haldið okkur við toppinn,“ segir Einar Björn Árnason, matreiðslumeistari og Eyjapeyi með meiru. „Ég ólst upp í Vestmannaeyjum og byrjaði að vinna sem ungur drengur í humri hjá Fiskiðjunni. Síðan ákvað ég að prófa ungur maður að fara á sjóinn. Þar var ég plataður til að vera kokkur þar sem ég var yngstur og þá var eiginlega ekki aftur snúið,“ segir Einar. Einar lærði hjá Grími Grímssyni úti í Eyjum og Sigga Hall í Reykjavík. „Eftir það fannst mér ekki annað hægt en að snúa aftur til Eyja,“ segir Einar. Háklassa veitingastaður á hjara veraldar Einsi kaldi er háklassa veitingastaður þar sem leitast er við að nota allt það ferskasta sem finnst í nágrenni og við strendur Vestmannaeyja. „Þar kemst ég í einstaklega ferskt og staðbundið hráefni, s.s. bjarg- og sjófugl ásamt ýmiss konar kryddjurtum sem tíndar eru hér á eyjunni,“ segir Einar. Í eldamennskunni segist hann hafa mest gaman af að töfra fram ljúffenga sjávarrétti og fyrir það er hann líka rómaður. „Þessi áhugi minn á fiskmeti ætti kannski ekki að koma á óvart, þar sem nálægðin við fengsæl fiskimið gera mér kleift að fá spriklandi ferskan fisk nær dag- lega. Við fáum allan okkar fisk frá fiskvinnslustöðinni í Vestmannaeyjum sem útvegar okkur fisk af bátunum tvisvar í viku. Einnig fáum við saltfisk- inn nýunninn frá Leo Seafood sem er staðsett hér í Eyjum.“ Þorskhnakkinn í uppáhaldi „Uppáhaldið hjá mér er klárlega þorskhnakkinn, en hann er svo aga- lega góður hér í Eyjum að hann er eiginlega eins og ljós steik. Ég er svo mikill áhugamaður um þorskhnakka að ég fór út til Hollands fyrir hönd Íslandsstofu og hélt þar tölu um þorskhnakka. En allt fiskmeti hér á Einsa kalda er afar vinsælt hjá gest- um. Sérstaklega humarinn, skötu- selurinn og svo auðvitað þorskhnakk- inn. Einnig seljum við mikið af lambi, enda er það sívinsælt.“ Síbreytilegur matseðill Matseðlarnir hjá Einsa kalda eru árstíðabundnir og breytast ört. „Ég er alltaf að gera tilraunir með réttina á matseðlunum. Á veturna nota ég Eyjamenn sem nokkurs konar til- raunadýr og prófa nýja rétti á þeim. Eyjamenn eru margrómaðir sælkerar og ég treysti bragðlaukunum þeirra fullkomlega.“ Hágæða veisluþjónusta Einar hefur í mörg horn að snúast í Eyjum. Þar rekur hann hágæða veisluþjónustu sem og viðburða- þjónustu undir sama nafni. „Það er oft sagt að ef fjórir eða fleiri mæta saman þá sé Einsi kaldi mættur með mat,“ segir Einsi léttur eins og ávallt. „Við sjáum um allar tegundir af veislum og viðburðum, hvort sem það eru brúðkaup, fótboltamót, fyrirtækjahúllumhæ eða hvaðeina. Einmitt núna er ég að fara að elda ofan í þúsund stelpur sem eru hér á pæjumóti. Fyrir um þremur árum síðan byrjuðum við að bjóða upp á hópaferðir í eins konar míní þjóðhátíð. Við erum í samstarfi við fjölda fyrir- tækja hér í Eyjum, svo sem hótelið, Rib Safari og fleiri. Þá skipuleggj- um við viðburði eins og brekkusöng með trúbadorum, bátsferðir, ball og ýmislegt skemmtilegt í anda þjóð- hátíðar fyrir hópana. Svo er farið á Einsa kalda eða í Höllina að snæða dýrindis mat. Þetta hefur verið mjög vinsælt hjá t.d. fyrirtækjum að bjóða starfsmönnum sínum í svona þjóð- hátíðarstemningu, sérstaklega á sumrin, þó svo það sé auðvitað hægt að skipuleggja svona ferðir á veturna líka, ef fólk vill. Hátíðina smíðum við algerlega út frá óskum hópsins og þeim sem treysta sér er að sjálfsögðu boðið að koma og spranga eins og Eyjamönnum er vel flestum tamt.“ Veitingastaðurinn Einsi kaldi er staðsettur að Vestmannabraut 28, Vestmannaeyjum. Nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðu einsikaldi.is Netpóstur: einsikaldi@einsikaldi.is Sími: 481-1415 Facebook: Einsi Kaldi n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.