Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.2019, Blaðsíða 19
KYNNING
Fyrir alllöngu síðan bjó Steinar Smári Guðbergsson með fjöl-skyldu sinni á sveitabæ. Honum
blöskraði músa- og köngulóamergðin
á heimilinu og tók að halda ófögnuðin-
um í skefjum með meindýravörnum.
Efni sem aðgengileg eru almenningi
nægðu ekki í þessi verk og því leitaði
Steinar sér menntunar á sviði mein-
dýravarna. Allt frá árinu 2005 hefur
hann starfað sem meindýraeyðir og
starfsemin er í sífelldri þróun en fyr-
irtæki hans ber heitið Meindýraeyðir
Íslands ehf.
Margir vita ekki að starf
meindýraeyðis snýst ekki bara um
að farga fyrirliggjandi meindýrum
heldur einnig að sinna forvörnum:
„Fyrirtækjum í matvælageiranum,
bæði þeim sem framleiða og fram-
reiða mat, ber skylda til að vera með
meindýraeyði á samningi sem setur
upp meindýravarnir og heldur uppi
eftirliti, sem miðar að því að halda
meindýrum frá framleiðslu fyrirtækja.
Það er réttur neytandans að neyslu-
varan sé sem best á allan máta,“ segir
Steinar.
„Margir Íslendingar hugsa sjálfkrafa
að ef minnst er á meindýraeyði þá sé
eitthvað að. En það er alls ekki þannig.
Forvarnirnar eru einn mikilvægasti
þáttur í starfinu. Ef þú ert með mein-
dýraeyði þá þýðir það að þú sért með
hlutina í lagi. Þú ert að fyrirbyggja að
meindýr komist í matinn sem þú ert að
framleiða eða framreiða fyrir neyt-
andann.“
Starfsemin er því tvíþætt, annars
vegar tilfallandi útköll og hins vegar
meindýraeftirlit og forvarnir. „Það eru
ekki endilega bara matvæla fyrirtæki
og veitingastaðir sem þurfa á svona
forvörnum og eftirliti að halda. Flug-
félög, skólar, stofnanir og margs konar
önnur fyrirtæki sem eru með við-
kvæman og dýran búnað þurfa líka að
fá eftirlitsþjónustu hjá meindýraeyði
til að koma í veg fyrir að nagdýr
skemmi leiðslur og þess háttar. Hótel
og gististaðir hafa einnig þurft að eiga
við veggjalús (bed bugs) og eru því oft
með Meindýraeyði Íslands á hraðvali í
símanum sínum.“
Almenningur getur líka þurft á
forvörnum meindýraeyðis að halda:
„Til dæmis er ágætis vani að láta eitra
húsnæðið sem fólk ætlar að flytja
í, því það veit ekki hvaða óæskilegu
sambýlingar bíða spenntir eftir því.
Einnig er sniðugt að láta meindýraeyði
eitra á nýja staðnum, sérstaklega ef
meindýra varð vart á gamla staðnum,
því það kemur í veg fyrir að meindýrin
sem flytjast með, nái sér á strik í nýja
húsnæðinu.“
Óvelkomnum gestum fer fjölgandi
Steinar Smári segir að skordýrum hafi
fjölgað hér á landi, bæði í tegundum
og magni, með auknum fjölda ferða-
manna. „Veggjalús hefur fjölgað mikið,
sem fyrir segir. Kakkalökkum hefur líka
fjölgað og það er reglulega hringt í mig
út af þeim. Þá hafa bæst við gestir
sem hafa jafnvel ekki fengið íslenskt
nafn ennþá. Fyrir ekki löngu fannst hér
í fyrsta skipti svokallaður „ghost ant“ og
fékk heitið draugamaur,“ segir Steinar.
Enn fremur hefur köngulóm fjölgað
á Íslandi, sérstakleg kross köngulónni,
en með hlýrra veðri og auknu skjóli frá
stærri trjágróðri hefur henni fjölgað
mikið.
„Það eru 84 tegundir af köngulóm
á Íslandi. Hins vegar eru geitunga-
tegundirnar bara tvær, holugeitungur
og trjágeitungur. Holugeitungurinn er
minni en búin þeirra eru stærri og þeir
eru mun árásargjarnari,“ segir Steinar
Smári og kveður síðan niður algenga
bábilju um köngulær:
„Það er oft sagt að þar sem mikið sé
um köngulær sé lítið um flugur. En þar
sem ég kem til að eitra fyrir köngulóm
er yfirleitt mikið um flugur líka, það
fara nefnilega ekki allar flugur í vefina.
Og svo þegar úðað hefur verið fyrir
köngulónum þá hverfa flugurnar líka
því eitrið virkar líka á þær.“
Rottur upp úr röri
Það gefur auga leið að meindýra eyðar
lendi í mörgu eftirminnilegu og stund-
um er það tengt rottugangi. Steinar
segir okkur eina slíka sögu. „Þar sem
eldri hús eru liggja oft rör frá þak-
rennum niður að jörðu og stingast svo
ofan í gömlu steyptu rörin sem notuð
voru mikið hér áður fyrr. Oft fer álrörið
neðan úr rennunni að ryðga og tærast
og steypurörið molnar, þá myndast
gat sem rottur komast upp úr. Á einu
heimili voru tveir Bengal-kettir og þeir
ákváðu að gleðja húsbændur sína
með því að draga fjórar spriklandi
rottur inn í hús. Húsbændunum leist
hins vegar ekki betur en svo á gjöf-
ina að þeir hringdu í ofboði í mein-
dýraeyðinn! Þegar ég hafði náð veiði
kattanna, fór ég að kanna ástæður
þess af hverju þessi ófögnuður hafði
borist inn. Þar sem mig grunaði að
fráfallsrör frá þakrennu væri ástæðan
ásamt veiðigleði kattanna, fór ég út
fyrir til að kíkja á, grunur minn reyndist
réttur því ég sá tvo aðra ketti sem biðu
við rörið, tilbúnir að hremma meiri bráð
sem upp úr gatinu kæmi.“ – Var strax
farið í það að setja fyrir gatið.
Góður tækjabúnaður og óreglulegur
vinnutími
Meindýraeyðir Íslands leggur metnað
sinn í að hafa ávallt nýjasta og besta
tækjabúnað sem til er á markaðnum
og er því ávallt vel tækjum búinn,
ásamt því að halda menntun sinni við
og fylgjast með öllum nýjungum á sviði
meindýravarna hjá einstaklingum og
fyrirtækjum.
„Sem dæmi um tól sem ég þarf að
beita eru til dæmis gufubyssa, hita-
byssa og skammbyssa annars vegar
og hins vegar alls konar ferómón,
gildrur og límspjöld. Límbúnaðurinn er
á undanhaldi og ég beiti honum bara
í neyð og þá undir stöðugu eftirliti. Ég
er með mjög góðar dælur til notkunar
bæði inni og úti.“
Eins og nærri má um geta er vinnu-
tími meindýraeyðis mjög óreglulegur
en í grundvallaratriðum má segja að
Steinar sé alltaf til taks: „Ég loka nú oft-
ast ellefu eða tólf á kvöldin. En ef það
er neyðartilvik, til dæmis rotta í svefn-
herberginu, þá kem ég á vettvang á
hvað a tíma sólarhringsins sem er. En
það er óþarfi að bregðast það hratt
við ef þú sérð silfurskottu, því það þarf
meiri undirbúning ásamt því að enginn
má vera inni við án öndunargrímu.“
Nánari upplýsingar eru á vefsíðunni
www.eydir.is og í síma 897-5255.
Einnig er hægt að finna Meindýraeyði
Íslands á Facebook. n
STEINAR SMÁRI, MEINDÝRAEYÐIR ÍSLANDS:
Útrýmir lúsmýinu!