Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.2019, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.2019, Blaðsíða 16
16 SPORT 21. júní 2019 M ikið hefur verið rætt og ritað um besta markvörð íslenska landsliðsins frá upphafi, Hannes Þór Halldórsson. Ferð hans í brúð- kaup aldarinnar við Lake Como á Ítalíu, hefur vakið upp mikla um- ræðu. Hannes var þar gestur í brúðkaupi Gylfa Þórs Sigurðsson- ar og Alexöndru Helgu Ívarsdóttir. Hannes gekk í raðir Vals í apríl og hefur koma hans í Pepsi Max-deild karla, vakið gríðarlega athygli. Við ætlum að fara yfir tímalínuna í þessu máli Hannesar. 11. júní Hannes Þór Halldórsson, meiðist lítillega í upphitun fyr- ir landsleik Íslands og Tyrklands í undankeppni Evrópumótsins. Leikurinn fer fram á Laugardals- velli, enginn vissi af meiðslum Hannesar fyrir eða eftir leik, nema læknar og sjúkraþjálfarar liðsins. Hannes náði að spila leikinn og var frábær í 2-1 sigri á Tyrklandi, einum besta landsleik Íslands í tæp tvö ár. 13. júní Hannes segir frá meiðslum sínum í ítarlegu viðtali við Fótbolta.net og þar kemur fram að hann fari í brúðkaup Gylfa og Alexöndru. Öllum er að verða ljóst að Hannes laug ekki um meiðsli sín en sam- særiskenningar fóru af stað þarna. „Það stóð nú ekki til að fara en úr því að þetta gerðist þá settist ég niður með Óla og hann hvatti mig til þess að taka mér nokkra daga pásu og skella mér. Ég fæ nokkra daga off og ég get því fagnað þessu með Gylfa,“ sagði Hannes um meiðslin, hann hafði fengið tak í lærið. 15. júní Hannes skemmtir sér vel í brúð- kaupi Gylfa og Alexöndru á Ítalíu en viðtalið við Ólaf Jóhannesson, þjálfara Vals í Pepsi Max-mörk- unum var það fyrsta sem vakti athygli þennan daginn. Eftir sig- urleik á ÍBV, þar sem Hannes var staddur í brúðkaupinu, hafði Ólaf- ur þetta að segja: „Ég hef ekki hug- mynd hvenær hann tognaði,“ ekki góð ummæli fyrir Hannes. Þetta varð til þess að fleiri spurningar vöknuðu um málið. „Ég þekki ekki hvernig svona mál ganga fyrir sig því miður,“ bætti Ólafur við. Mikil umræða átti sér svo stað í Pepsi-Max mörkunum síðar um kvöldið. „Hannes Þór spilaði báða landsleikina, hann er sagð- ur meiddur. Hann fær leyfi frá Óla til að fara til Ítalíu í þetta brúð- kaup. Liðið þitt er í neðsta sæti deildarinnar. Þú ert einn launa- hæsti, ef ekki launahæsti leikmað- ur deildarinnar, ert á fjögurra ára samningi. Félagarnir þínir eru í þessari baráttu, þú ferð í þetta brúðkaup. Hefðir þú farið?,“ sagði Hörður Magnússon, skipstjóri þáttarins. Reynir Leósson var einn af sér- fræðingum þáttarins. Hann seg- ir að hann hefði aldrei farið. Valur vann sigur á ÍBV í gær, án Hannes- ar sem var að skemmta sér á Ítal- íu. ,,Ég hefði ekki farið, þessi staða hefur ekki komið upp hjá mér. Ég hefði ekki farið, það er mik- il ábyrgð á herðum Hannesar. Þá er það ábyrgð hjá honum að vera með þeim í blíðu og stríðu. Hann hefur verið einn þeirra besti leik- maður. Þetta kom mér á óvart.“ 19. júní Hjörvar Hafliðason, knattspyrn- usérfræðingur hélt því fram í Brennslunni á FM957 að Hann- es hefði samið við Val í apríl, þar hefði verið rætt að hann fengi frí þessa helgi til að fara í brúðkaup- ið. „Núna er bolurinn að fá þær upplýsingar. Hann hefur bara samið svona, honum hefur langað það mikið, Vegna þess að Hannes er eins venjulegur náungi og mað- ur kynnist í lífinu. Ég skil ekki að manni langar svona mikið á ein- hvern viðburð. Ég viðurkenni það að það þyrfti að vera sonur minn að fara gifta sig mjög óvænt (ef ég ætti að taka svona ákvörðun).“ Hannes stóð svo vaktina í marki Vals gegn KR um kvöldið, liðið tapaði 3-2 og síðan ræddi Hannes við fjölmiðla. Hann svaraði hressi- lega fyrir sig. „Það stendur ekki einn stafur í mínum samningi um brúðkaupið hans Gylfa Sig, ég get lofað þér því. Ég verð nú bara að fá að segja nokkur orð um þetta mál. Í fyrsta lagi þá meiddist ég í þess- um landsleik, það er staðreynd. Ég taldi mig hafa hingað til á mínum ferli sýnt það að það þurfi ekki að efast um fagmennsku mína gagn- vart þeim klúbbum sem ég spila fyrir. Ég hef aldrei skorast und- an skyldum mínum sem fótbolta- maður og þvert á móti þá hef ég lagt á mig aukalega til að vera í eins góðu standi og ég get fyrir þau lið sem ég spila fyrir. Þannig hef ég alltaf litið á fótbolta og það mun ekki breytast. Þess vegna finnst mér helvíti ódýrt að það sé reynt að gera þessa stuttu ferð mína til Ítalíu tortryggilega með öllum mögulegum aðferðum í æsifrétta- stíl. Þegar ég hefði ekki einu sinni getað tekið þátt í leiknum vegna meiðsla. Það er alltaf leiðinlegt að missa af leikjum vegna meiðsla en Valsmenn eru sem betur fer vel settir í markmannsmálum.“ n HVER ER ÞINN UPPÁHALDS LITUR? Hiti í kringum Hannes og brúðkaupið á Ítalíu n Markvörður Íslands hefur mátt þola mikla gagnrýni n Lét í sér heyra eftir að málið hafði gengið í nokkra daga Hannes í brúðkaupinu fræga. Hörður Snævar Jónsson hoddi@433.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.