Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.2019, Qupperneq 16
16 SPORT 21. júní 2019
M
ikið hefur verið rætt og
ritað um besta markvörð
íslenska landsliðsins frá
upphafi, Hannes Þór
Halldórsson. Ferð hans í brúð-
kaup aldarinnar við Lake Como á
Ítalíu, hefur vakið upp mikla um-
ræðu. Hannes var þar gestur í
brúðkaupi Gylfa Þórs Sigurðsson-
ar og Alexöndru Helgu Ívarsdóttir.
Hannes gekk í raðir Vals í apríl og
hefur koma hans í Pepsi Max-deild
karla, vakið gríðarlega athygli. Við
ætlum að fara yfir tímalínuna í
þessu máli Hannesar.
11. júní
Hannes Þór Halldórsson,
meiðist lítillega í upphitun fyr-
ir landsleik Íslands og Tyrklands
í undankeppni Evrópumótsins.
Leikurinn fer fram á Laugardals-
velli, enginn vissi af meiðslum
Hannesar fyrir eða eftir leik, nema
læknar og sjúkraþjálfarar liðsins.
Hannes náði að spila leikinn og
var frábær í 2-1 sigri á Tyrklandi,
einum besta landsleik Íslands í
tæp tvö ár.
13. júní
Hannes segir frá meiðslum sínum
í ítarlegu viðtali við Fótbolta.net
og þar kemur fram að hann fari
í brúðkaup Gylfa og Alexöndru.
Öllum er að verða ljóst að Hannes
laug ekki um meiðsli sín en sam-
særiskenningar fóru af stað þarna.
„Það stóð nú ekki til að fara en úr
því að þetta gerðist þá settist ég
niður með Óla og hann hvatti mig
til þess að taka mér nokkra daga
pásu og skella mér. Ég fæ nokkra
daga off og ég get því fagnað þessu
með Gylfa,“ sagði Hannes um
meiðslin, hann hafði fengið tak í
lærið.
15. júní
Hannes skemmtir sér vel í brúð-
kaupi Gylfa og Alexöndru á Ítalíu
en viðtalið við Ólaf Jóhannesson,
þjálfara Vals í Pepsi Max-mörk-
unum var það fyrsta sem vakti
athygli þennan daginn. Eftir sig-
urleik á ÍBV, þar sem Hannes var
staddur í brúðkaupinu, hafði Ólaf-
ur þetta að segja: „Ég hef ekki hug-
mynd hvenær hann tognaði,“ ekki
góð ummæli fyrir Hannes. Þetta
varð til þess að fleiri spurningar
vöknuðu um málið. „Ég þekki ekki
hvernig svona mál ganga fyrir sig
því miður,“ bætti Ólafur við.
Mikil umræða átti sér svo stað
í Pepsi-Max mörkunum síðar
um kvöldið. „Hannes Þór spilaði
báða landsleikina, hann er sagð-
ur meiddur. Hann fær leyfi frá Óla
til að fara til Ítalíu í þetta brúð-
kaup. Liðið þitt er í neðsta sæti
deildarinnar. Þú ert einn launa-
hæsti, ef ekki launahæsti leikmað-
ur deildarinnar, ert á fjögurra ára
samningi. Félagarnir þínir eru
í þessari baráttu, þú ferð í þetta
brúðkaup. Hefðir þú farið?,“ sagði
Hörður Magnússon, skipstjóri
þáttarins.
Reynir Leósson var einn af sér-
fræðingum þáttarins. Hann seg-
ir að hann hefði aldrei farið. Valur
vann sigur á ÍBV í gær, án Hannes-
ar sem var að skemmta sér á Ítal-
íu. ,,Ég hefði ekki farið, þessi staða
hefur ekki komið upp hjá mér.
Ég hefði ekki farið, það er mik-
il ábyrgð á herðum Hannesar. Þá
er það ábyrgð hjá honum að vera
með þeim í blíðu og stríðu. Hann
hefur verið einn þeirra besti leik-
maður. Þetta kom mér á óvart.“
19. júní
Hjörvar Hafliðason, knattspyrn-
usérfræðingur hélt því fram í
Brennslunni á FM957 að Hann-
es hefði samið við Val í apríl, þar
hefði verið rætt að hann fengi frí
þessa helgi til að fara í brúðkaup-
ið. „Núna er bolurinn að fá þær
upplýsingar. Hann hefur bara
samið svona, honum hefur langað
það mikið, Vegna þess að Hannes
er eins venjulegur náungi og mað-
ur kynnist í lífinu. Ég skil ekki að
manni langar svona mikið á ein-
hvern viðburð. Ég viðurkenni það
að það þyrfti að vera sonur minn
að fara gifta sig mjög óvænt (ef ég
ætti að taka svona ákvörðun).“
Hannes stóð svo vaktina í marki
Vals gegn KR um kvöldið, liðið
tapaði 3-2 og síðan ræddi Hannes
við fjölmiðla. Hann svaraði hressi-
lega fyrir sig. „Það stendur ekki
einn stafur í mínum samningi um
brúðkaupið hans Gylfa Sig, ég get
lofað þér því. Ég verð nú bara að fá
að segja nokkur orð um þetta mál.
Í fyrsta lagi þá meiddist ég í þess-
um landsleik, það er staðreynd. Ég
taldi mig hafa hingað til á mínum
ferli sýnt það að það þurfi ekki að
efast um fagmennsku mína gagn-
vart þeim klúbbum sem ég spila
fyrir. Ég hef aldrei skorast und-
an skyldum mínum sem fótbolta-
maður og þvert á móti þá hef ég
lagt á mig aukalega til að vera í
eins góðu standi og ég get fyrir þau
lið sem ég spila fyrir. Þannig hef ég
alltaf litið á fótbolta og það mun
ekki breytast. Þess vegna finnst
mér helvíti ódýrt að það sé reynt
að gera þessa stuttu ferð mína til
Ítalíu tortryggilega með öllum
mögulegum aðferðum í æsifrétta-
stíl. Þegar ég hefði ekki einu sinni
getað tekið þátt í leiknum vegna
meiðsla. Það er alltaf leiðinlegt að
missa af leikjum vegna meiðsla en
Valsmenn eru sem betur fer vel
settir í markmannsmálum.“ n
HVER ER ÞINN
UPPÁHALDS LITUR?
Hiti í kringum Hannes
og brúðkaupið á Ítalíu
n Markvörður Íslands hefur mátt þola mikla gagnrýni n Lét í sér heyra eftir
að málið hafði gengið í nokkra daga
Hannes í brúðkaupinu fræga.
Hörður Snævar Jónsson
hoddi@433.is