Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.2019, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.2019, Blaðsíða 2
2 21. júní 2019FRÉTTIR framandi dýr sem gaman væri að flytja til Íslands Á miðvikudag komu til landsins mjaldra- systurnar Litla-hvít og Litla-grá sem dýraverndunar- samtök hafa lengi barist fyrir að fái frelsi úr Chang Feng sædýra- garðinum í Kína. Eftir margra ára umræður var ákveðið að hvalirnir fengju að ferðast til Íslands og munu þeir dvelja á afgirtum griðarstað í Klettsvík að aðlögun lokinni. Í Vestmannaeyjum munu systurnar tvær búa við aðstæður sem eru mun líkari þeirra náttúru- legu heimkynnum og ef vel gengur geta þær orðið allt að sextíu ára gamlar. DV velti því fyrir sér hvaða fimm framandi dýr gæti verið gaman að flytja inn til landsins. Gíraffi Gíraffar eru hæstir núlifandi spendýra og geta þeir náð allt að 5,5 metra hæð. Það liggur því í augum uppi að aukið skemmtana- gildi yrði í fallturninum í húsdýragarðinum, fengi maður að klappa gíraffa á höfuðið í leiðinni. Letilórur Letilórur hafa stór augu og eru gjarnan talin vera sæt og krúttleg dýr. Hafa þær meðal annars verið eftirsóknarverð gælu- dýr en þrífast þó illa í haldi manna og láta lífið oft langt fyrir ald- ur fram. Við frekjurnar, mannfólkið, kærum okkur þó kollótt um þær upplýsingar og höldum áfram að stel- ast til þess að góma þessi dýr. Þau eru bara svo sæt! Litrík fiðrildi Fiðrildi eru vængjuð skordýr sem tilheyra ættbálki hreistur- vængja. Á Íslandi ruglar fólk gjarnan saman mölfiðrildum og fiðr- ildum vegna svipaðs útlits þeirra en þau skordýr sem lifa hér og við köllum gjarnan fiðr- ildi eru í rauninni af ætt mölflugna. Það segir sig því sjálft að hingað til lands ætti að flytja inn marglituð fiðrildi. Þessar mölflugur eru líka bara svo ljótar. Kameldýr Kameldýr eru af úlfaldaætt. Þau hafa tvo hnúða á bakinu þar sem þau geyma birgðir af fitu sem þau geta breytt í næringu. Þau eru mjög öflug burðardýr og geta borið mikla þyngd langar vegalengdir. Þau gætu því nýst okk- ur Íslendingunum vel í Sérstaklega þegar við skellum okkur í Costco og kaupum okkur allt það sem okkur vantar ekki neitt. Ísbjörn Einu sinni lofaði Jón Gnarr okkur Íslending- um ísbirni í Húsdýra- garðinn. En þá var hann líka í kosningar- baráttu með Besta flokknum og við vitum nú öll að stjórnmála- menn eiga það gjarnan til að lofa upp í ermina á sér svona korter í kosningar. Það loforð gekk því álíka vel og önnur loforð sem aðrir ónefndir stjórnmála- menn hafa átt til að slengja fram. Á þessum degi, 21. júní 1900 – Kína lýsir yfir stríði gegn Bret- landi, Þýskalandi, Frakklandi og Japan. 1955 – Franski knattspyrnumaðurinn Michel Platini fæddist. 1982 – John Hinckley fundinn ósakhæfur eftir að hafa reynt að myrða Ronald Reagan. 2001 – Blúsarinn John Lee Hooker lést. 2009 – Grænland fékk sjálfstjórn. Síðustu orðin „Það er ekki hægt að kaupa lífið fyrir peninga.“ – Bob Marley, tónlistarmaður, 1945-1981 A ð sjálfsögðu sakna ég IKEA. Ég er hundrað pró- sent sáttur; þetta var rétt ákvörðun og gott að gera þetta á þessum tímapunkti. En IKEA er eins og litla barnið mitt og ég sakna ekki aðeins vinnu- staðarins heldur einnig allra starfsmanna,“ segir athafnamað- urinn Þórarinn Ævarsson. Það kom mörgum í opna skjöldu þegar Þórarinn hætti störfum sem fram- kvæmdastjóri IKEA á Íslandi um miðjan apríl á þessu ári. Komu fréttirnar flatt upp á marga, enda hefur Þórarinn verið ötull tals- maður þess að bæta hag neytenda og lækka vöruverð. Ekki blanda vinskap og viðskipt- um saman Undanfarið hafa þær flökkusög- ur farið á kreik að Þórarins bíði nýtt viðskiptatækifæri og hann sagð- ur vera með nýjan pítsastað í píp- unum ásamt Sigmari Vilhjálms- syni. Báðir hafa þeir gert það gott í veitingabransanum, Þórarinn hjá Domino’s og IKEA, og Sigmar hjá Hamborgarafabrikkunni og Shake & Pizza. Þessum sögum vísar Þórarinn algjörlega á bug. „Ég get því miður ekki staðfest þetta því þetta eru afskaplega mikl- ar nýjungar fyrir mér. Ég hef ekk- ert heyrt um þetta. Við Simmi erum gamlir vinir og þegar hann byrjaði með sjónvarpsþáttinn 70 mínútur og ég var rekstrarstjóri Domino’s, var Domino’s fyrsti styrktaraðili 70 mín- útna. Simmi var ekki orðinn þekkt nafn þegar við kynntumst fyrst og við höfum þróað með okkur fínan vinskap,“ segir Þórarinn og bætir við að það sé einmitt ástæðan fyrir því að hann ætli aldeilis ekki í viðskipti með Simma. „Almennt séð er ekki sniðugt að blanda saman vinskap og viðskipt- um. Ég mæli ekki með því. Ég á því síður von á því að ég fari í viðskipti með Simma, þó hann sé klár og góð- ur drengur. Þetta gæti orðið eitraður kokteill.“ Þegar blaðamaður ýtir á Þórarinn og spyr hvort það sé því helber lygi að hann og Simmi ætli sér landvinn- inga með nýjan pítsastað stendur ekki á svörunum. „Þú mátt birta nektarmyndir af mér í DV ef ég er að ljúga,“ segir hann og hlær. Útilokar ekki veitingarekstur Þórarinn situr þó ekki auðum hönd- um þó asinn í IKEA sé víðs fjarri. „Fjórtán ár er ofsalega fínn tími. Það er rosalega gott að hleypa nýju blóði að, alveg sama hvað manni gengur vel. Það er eitthvað sem stjórnmálamenn mega tileinka sér. Nú þarf ég að takast á við nýjar áskor- anir og prófa eitthvað nýtt. Ég er í góðu fríi núna að sparsla vegg heima hjá mér og dunda mér við það. Það kemur svo í ljós með haustinu hvað ég tek mér fyrir hendur,“ segir Þórar- inn og bætir við að það nýja hlutverk muni ekki koma neitt sérstaklega á óvart. „Það er ekkert leyndarmál að það tvennt sem er mér efst í huga eru náttúruverndarmál, í breiðum skiln- ingi, og hins vegar lágt verð. Hvað sem ég geri þá verður það annað hvort tengt náttúruvernd eða að bæta kjör almennings. Þar liggja mín áhugamál.“ Þórarinn er ekki þekkt- ur fyrir að liggja á skoðunum sínum og hefur til að mynda gagnrýnt veitingahúsaeigend- ur og aðila ferðaþjón- ustunnar fyrir að okra á viðskipta- vinum. Sú gagn- rýni hefur far- ið öfugt ofan í marga en Þórarinn læt- ur það ekki á sig fá. „Það hef- ur enginn hrakið eina tölu sem ég hef lagt fram, því ég hef alltaf lagt töluleg gögn fram, hvort sem það hefur verið um verð á rúnstykkjum eða þegar bílaverð var ekki lækkað þrátt fyrir verðstyrkingu krónunnar. Það hefur enginn farið í málefnið, bara í manninn sem er týpískt íslenskt. Ég veit það jafnvel og þessir aðilar hvernig kaupin gerast á eyrinni. En ég hef ekki að- eins verið að gagnrýna heldur einnig hvetja menn til að hætta þessu kjaftæði með rosa há verð. Ef við lít- um á veitingastað IKEA þá er þar lægra verð en sumsstaðar í Evrópu. Samt er staðurinn rekinn með fínni afkomu. IKEA er ekkert einsdæmi – það er hægt að leika þennan leik. Það er ekkert ólíklegt að ég endur- taki þennan leik í því næsta sem ég geri, sama hvað það verður. Ég ítreka að ég er ekki með neitt fast í hendi en ég þekki svona viðskipti gríðarlega vel og ég býst við að feta þá braut.“ Fær engan afslátt í IKEA Þórarinn segist ekki vera að hugsa um að flytja sig erlendis og stunda sín viðskipti þar því hann er „búinn með útlandapakkann“ eftir búsetu í Sviss sem ungur maður og fjögurra ára dvöl í Danmörku þar sem hann kom Domino’s á laggirnar. En er hann enn dyggur viðskiptavinur síns gamla vinnustaðar, IKEA? „Ég fór nú bara síðast í IKEA í gær til að kaupa flutningskassa,“ seg- ir hann og hlær en segist ekki hafa fengið neina sérmeðferð eða af- sláttarkjör. „Nei, nú er ég ekki hluti af pakkanum lengur. En ef ég fer í stjórn, sem mér þykir ekki ólíklegt að gerist, þá fæ ég vonandi einhver betri kjör.“ n Þórarinn blæs á kjaftasögurnar um samstarf við Simma Lilja Katrín Gunnarsdóttir lilja@dv.is n Langþráð frí eftir fjórtán ár hjá IKEA n Eitraður kokteill að fara í viðskipti með góðum vin„Þú mátt birta nektarmyndir af mér í DV ef ég er að ljúga Sigmar Vilhjálmsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.