Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.2019, Síða 2
2 21. júní 2019FRÉTTIR
framandi dýr sem gaman væri að flytja til Íslands
Á miðvikudag komu
til landsins mjaldra-
systurnar Litla-hvít og
Litla-grá sem dýraverndunar-
samtök hafa lengi barist fyrir að
fái frelsi úr Chang Feng sædýra-
garðinum í Kína. Eftir margra ára
umræður var ákveðið að hvalirnir
fengju að ferðast til Íslands og
munu þeir dvelja á afgirtum
griðarstað í Klettsvík að aðlögun
lokinni. Í Vestmannaeyjum munu
systurnar tvær búa við aðstæður
sem eru mun líkari þeirra náttúru-
legu heimkynnum og ef vel gengur
geta þær orðið allt að sextíu ára
gamlar. DV velti því fyrir sér hvaða
fimm framandi dýr gæti verið
gaman að flytja inn til landsins.
Gíraffi
Gíraffar eru hæstir
núlifandi spendýra og
geta þeir náð allt að
5,5 metra hæð. Það
liggur því í augum uppi
að aukið skemmtana-
gildi yrði í fallturninum
í húsdýragarðinum,
fengi maður að klappa
gíraffa á höfuðið í
leiðinni.
Letilórur
Letilórur hafa stór
augu og eru gjarnan
talin vera sæt og
krúttleg dýr. Hafa þær
meðal annars verið
eftirsóknarverð gælu-
dýr en þrífast þó illa í
haldi manna og láta
lífið oft langt fyrir ald-
ur fram. Við frekjurnar,
mannfólkið, kærum
okkur þó kollótt um
þær upplýsingar og
höldum áfram að stel-
ast til þess að góma
þessi dýr. Þau eru bara
svo sæt!
Litrík fiðrildi
Fiðrildi eru vængjuð
skordýr sem tilheyra
ættbálki hreistur-
vængja. Á Íslandi ruglar
fólk gjarnan saman
mölfiðrildum og fiðr-
ildum vegna svipaðs
útlits þeirra en þau
skordýr sem lifa hér og
við köllum gjarnan fiðr-
ildi eru í rauninni af ætt
mölflugna. Það segir
sig því sjálft að hingað
til lands ætti að flytja
inn marglituð fiðrildi.
Þessar mölflugur eru
líka bara svo ljótar.
Kameldýr
Kameldýr eru af
úlfaldaætt. Þau hafa
tvo hnúða á bakinu
þar sem þau geyma
birgðir af fitu sem þau
geta breytt í næringu.
Þau eru mjög öflug
burðardýr og geta
borið mikla þyngd
langar vegalengdir.
Þau gætu því nýst okk-
ur Íslendingunum vel í
Sérstaklega þegar við
skellum okkur í Costco
og kaupum okkur allt
það sem okkur vantar
ekki neitt.
Ísbjörn
Einu sinni lofaði Jón
Gnarr okkur Íslending-
um ísbirni í Húsdýra-
garðinn. En þá var
hann líka í kosningar-
baráttu með Besta
flokknum og við vitum
nú öll að stjórnmála-
menn eiga það gjarnan
til að lofa upp í ermina
á sér svona korter í
kosningar. Það loforð
gekk því álíka vel og
önnur loforð sem aðrir
ónefndir stjórnmála-
menn hafa átt til að
slengja fram.
Á þessum degi,
21. júní
1900 – Kína lýsir yfir stríði gegn Bret-
landi, Þýskalandi, Frakklandi og Japan.
1955 – Franski knattspyrnumaðurinn
Michel Platini fæddist.
1982 – John Hinckley fundinn
ósakhæfur eftir að hafa reynt að myrða
Ronald Reagan.
2001 – Blúsarinn John Lee Hooker lést.
2009 – Grænland fékk sjálfstjórn.
Síðustu orðin
„Það er ekki hægt að kaupa
lífið fyrir peninga.“
– Bob Marley, tónlistarmaður,
1945-1981
A
ð sjálfsögðu sakna ég
IKEA. Ég er hundrað pró-
sent sáttur; þetta var rétt
ákvörðun og gott að gera
þetta á þessum tímapunkti. En
IKEA er eins og litla barnið mitt
og ég sakna ekki aðeins vinnu-
staðarins heldur einnig allra
starfsmanna,“ segir athafnamað-
urinn Þórarinn Ævarsson. Það
kom mörgum í opna skjöldu þegar
Þórarinn hætti störfum sem fram-
kvæmdastjóri IKEA á Íslandi um
miðjan apríl á þessu ári. Komu
fréttirnar flatt upp á marga, enda
hefur Þórarinn verið ötull tals-
maður þess að bæta hag neytenda
og lækka vöruverð.
Ekki blanda vinskap og viðskipt-
um saman
Undanfarið hafa þær flökkusög-
ur farið á kreik að Þórarins bíði nýtt
viðskiptatækifæri og hann sagð-
ur vera með nýjan pítsastað í píp-
unum ásamt Sigmari Vilhjálms-
syni. Báðir hafa þeir gert það gott í
veitingabransanum, Þórarinn hjá
Domino’s og IKEA, og Sigmar hjá
Hamborgarafabrikkunni og Shake &
Pizza. Þessum sögum vísar Þórarinn
algjörlega á bug.
„Ég get því miður ekki staðfest
þetta því þetta eru afskaplega mikl-
ar nýjungar fyrir mér. Ég hef ekk-
ert heyrt um þetta. Við Simmi erum
gamlir vinir og þegar hann byrjaði
með sjónvarpsþáttinn 70 mínútur
og ég var rekstrarstjóri Domino’s, var
Domino’s fyrsti styrktaraðili 70 mín-
útna. Simmi var ekki orðinn þekkt
nafn þegar við kynntumst fyrst og
við höfum þróað með okkur fínan
vinskap,“ segir Þórarinn og bætir við
að það sé einmitt ástæðan fyrir því
að hann ætli aldeilis ekki í viðskipti
með Simma.
„Almennt séð er ekki sniðugt að
blanda saman vinskap og viðskipt-
um. Ég mæli ekki með því. Ég á því
síður von á því að ég fari í viðskipti
með Simma, þó hann sé klár og góð-
ur drengur. Þetta gæti orðið eitraður
kokteill.“
Þegar blaðamaður ýtir á Þórarinn
og spyr hvort það sé því helber lygi
að hann og Simmi ætli sér landvinn-
inga með nýjan pítsastað stendur
ekki á svörunum.
„Þú mátt birta nektarmyndir af
mér í DV ef ég er að ljúga,“ segir hann
og hlær.
Útilokar ekki veitingarekstur
Þórarinn situr þó ekki auðum hönd-
um þó asinn í IKEA sé víðs fjarri.
„Fjórtán ár er ofsalega fínn tími.
Það er rosalega gott að hleypa nýju
blóði að, alveg sama hvað manni
gengur vel. Það er eitthvað sem
stjórnmálamenn mega tileinka sér.
Nú þarf ég að takast á við nýjar áskor-
anir og prófa eitthvað nýtt. Ég er í
góðu fríi núna að sparsla vegg heima
hjá mér og dunda mér við það. Það
kemur svo í ljós með haustinu hvað
ég tek mér fyrir hendur,“ segir Þórar-
inn og bætir við að það nýja hlutverk
muni ekki koma neitt sérstaklega á
óvart.
„Það er ekkert leyndarmál að það
tvennt sem er mér efst í huga eru
náttúruverndarmál, í breiðum skiln-
ingi, og hins vegar lágt verð. Hvað
sem ég geri þá verður það annað
hvort tengt náttúruvernd eða
að bæta kjör almennings. Þar
liggja mín áhugamál.“
Þórarinn er ekki þekkt-
ur fyrir að liggja á skoðunum
sínum og hefur til að mynda
gagnrýnt veitingahúsaeigend-
ur og aðila ferðaþjón-
ustunnar fyrir að
okra á viðskipta-
vinum. Sú gagn-
rýni hefur far-
ið öfugt ofan
í marga en
Þórarinn læt-
ur það ekki á
sig fá.
„Það hef-
ur enginn
hrakið
eina tölu sem ég hef lagt fram, því
ég hef alltaf lagt töluleg gögn fram,
hvort sem það hefur verið um verð á
rúnstykkjum eða þegar bílaverð var
ekki lækkað þrátt fyrir verðstyrkingu
krónunnar. Það hefur enginn farið
í málefnið, bara í manninn sem er
týpískt íslenskt. Ég veit það jafnvel og
þessir aðilar hvernig kaupin gerast á
eyrinni. En ég hef ekki að-
eins verið að gagnrýna
heldur einnig hvetja
menn til að hætta
þessu kjaftæði með
rosa há verð. Ef við lít-
um á veitingastað IKEA
þá er þar lægra verð
en sumsstaðar
í Evrópu.
Samt er staðurinn rekinn með fínni
afkomu. IKEA er ekkert einsdæmi
– það er hægt að leika þennan leik.
Það er ekkert ólíklegt að ég endur-
taki þennan leik í því næsta sem ég
geri, sama hvað það verður. Ég ítreka
að ég er ekki með neitt fast í hendi en
ég þekki svona viðskipti gríðarlega
vel og ég býst við að feta þá braut.“
Fær engan afslátt í IKEA
Þórarinn segist ekki vera að hugsa
um að flytja sig erlendis og stunda
sín viðskipti þar því hann er „búinn
með útlandapakkann“ eftir búsetu í
Sviss sem ungur maður og fjögurra
ára dvöl í Danmörku þar sem hann
kom Domino’s á laggirnar. En er
hann enn dyggur viðskiptavinur síns
gamla vinnustaðar, IKEA?
„Ég fór nú bara síðast í IKEA í gær
til að kaupa flutningskassa,“ seg-
ir hann og hlær en segist ekki hafa
fengið neina sérmeðferð eða af-
sláttarkjör. „Nei, nú er ég ekki hluti
af pakkanum lengur. En ef ég fer í
stjórn, sem mér þykir ekki ólíklegt
að gerist, þá fæ ég vonandi einhver
betri kjör.“ n
Þórarinn blæs á kjaftasögurnar
um samstarf við Simma
Lilja Katrín Gunnarsdóttir
lilja@dv.is
n Langþráð frí eftir fjórtán ár hjá IKEA
n Eitraður kokteill að fara í viðskipti með góðum vin„Þú mátt
birta
nektarmyndir af
mér í DV ef ég er
að ljúga
Sigmar Vilhjálmsson.