Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.2019, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.2019, Blaðsíða 33
TÍMAVÉLIN 3321. júní 2019 lendingar og tóku upp ensk nöfn. Páll tók upp nafnið Páll Walters en hann dó árið 1891, aðeins hálfu ári eftir að Cody, eða Páll Pálsson Walters, fæddist í Winnipeg-borg. Viðtal Halldórs Laxness Íslendingar sýndu hinum Vest- ur-Íslenska kúreka nokkurn áhuga og sjálfur Halldór Laxness tók við hann viðtal fyrir Morgun- blaðið árið 1927. Þar sagði: „Af öllu því merkilega fólki, sem jeg hefi kynst síðustu vikurnar, var mjer einna furðu- legast við að kynnast Bill Cody. Hann er heimsfrægasti kúreki (Cowboy). Jeg minnist þess að hafa sjeð hann nokkrum sinn- um á ljereftinu með langa keyrið sitt og barðastóra kúfinn, bæði í Evrópu og hjer í Ameríku. Hann er hár og grannur, ljóshærður og drengilegur, og bros hans mjög heillandi.“ Cody tjáði Halldóri að hann hefði kastað sínu íslenska nafni af „verslunarástæðum“, það er til að líkja eftir hinum fræga Buffalo Bill. Hann væri siðprúð- ur og reykti hvorki né drykki. Vinsæll var hann mjög og fékk tugi sendibréfa á degi hverjum, frá öllum heimshornum. Bæði aðdáunarbréf frá strákum sem vildu vera eins og hann og ástar- bréf frá stúlkum. „Talið barst að Íslandi. Cody hefir lagt stund á að kynna sjer bæði fornsögunar og íslenskar þjóðsögur. Einkum er hann hrifinn af þjóðsögum okkar og æfintýrum. Jeg er ákveðinn í því að skreppa til Íslands innan skams, til þess að safna mer efni- viði í nýjar myndir, sagði Cody.“ Cody hafði hins vegar komið áður til Íslands, þegar hann var sjö ára gamall. Þá dvaldi hann á Húsabakka við Sauðárkrók. Þar lærði hann að sitja hest, sem kom sér vel síðar á lífsleiðinni. Hann kunni þó ekki tungumálið nema eitt orð, harðfiskur. Launsyni komið í fóstur Cody var giftur konu að nafni Regina og áttu þau saman tvo syni. Í byggðum Íslendinga í Vesturheimi gekk sá orðróm- ur að Cody ætti launson, og að sá sonur væri Ronald Reagan. En Cody var vel þekktur á með- al Vestur-Íslendinga. Sögunni fylgdi ekki að Cody hefði átt vin- gott við Nelle, eiginkonu Jack Reagan heldur að Cody hefði átt soninn með óþekktri konu og komið honum í fóstur til Reagan- -hjónanna. Einn af þeim sem hélt þessu fram var Vestur-Íslending- ur og ræðismaður að nafni Andr- és Oddstad. Árið 1964 sagðist hann hafa vitneskju um þetta og að hann hefði fengið hana beint frá Jack og Nellie Reagan. Þegar Reagan sjálfur var síðan að hefja sín spor í Hollywood sem leikari snemma á fjórða áratugn- um, þá hafi Bill Cody komið hon- um á framfæri og aðstoðað hann við að fá störf. Líkt og Cody voru fyrstu hlutverk Reagan í vestrum og B-myndum. Kvikmyndaferlar Reagan og Cody voru í raun ekki ósvipaðir. Lokaðar kirkjubækur Orðrómurinn barst yfir hafið og til Íslands og var hann reglulega rifjaður upp í dagblöðunum. Sér í lagi í tengslum við leiðtogafund Reagans og Mikhail Gorbachev í Höfða árið 1986. Það ýtti und- ir kenninguna að kirkjubæk- ur, sem geyma allar upplýsingar um uppruna Bandaríkjaforseta, voru lokaðar samkvæmt fyrir- mælum frá forsetaskrifstofunni. Ættfræðingar hafa reynt að kom- ast í þessar upplýsingar en ávallt komið að lokuðum dyrunum. Þar á meðal Jón Gíslason, sagn- fræðingur og formaður Ættfræði- félagsins. Reagan sjálfur hampaði sinni írsku arfleið, enda var það mjög vinsælt. Milljónir Íra fluttu vest- ur um haf á nítjándu öld og tugir milljóna Bandaríkjamanna geta rakið ættir sínar aftur til eyjunn- ar grænu. Vestur-Íslendingar eru langtum færri og búa flest- ir í Kanada. Þar að auki hefðu upplýsingarnar um að Reagan væri lausaleiksbarn ekki fall- ið vel í kramið hjá kjósendahópi Repúblíkanaflokksins, þar sem hefðbundin fjölskyldugildi ríkja. Ytra hefur lítið verið fjallað um þennan orðróm og þar al- mennt viðurkennt að Reagan sé sonur skráðra foreldra sinna. En þegar Reagan tilkynnti um for- setaframboð sitt var lesin upp frétt í útvarpinu þess efnis að hann ætti íslenskan föður. Fljót- lega var sú frétt hins vegar dregin til baka. Óvíst er hvort að forset- inn verðandi hafi sjálfur átt þar hlut að máli. Íslenskur tvífari Orðrómurinn um ætterni Reagan fékk byr undir báða vængi þegar grein um íslenskan tvífara hans birtist í DV í október árið 1986. Það var Haukur Matthíasson, lögregluvarðstjóri í Reykjavík, sem um ræddi og lík- indin voru hreint lygileg. Hauk- ur sagði sjálfur að fólk sneri sér við á götum úti þegar hann gengi fram hjá, enda hélt það að for- setinn sjálfur væri á ferð. „Ég neita því ekki, það hef- ur verið minnst á þetta við mig. Sjálfum finnst mér ég ekkert líkur Bandaríkjaforseta,“ sagði Haukur sem búsettur var í Foss- voginum. Það er á huldu hvort hægt sé að rekja ættir þeirra Reagan og Hauks saman. En í greininni kom fram að Haukur væri ætt- aður frá Vestfjörðum en ekki úr Skagafirðinum. Uppalinn á Pat- reksfirði. n Fríform ehf. Askalind 3, 201 Kópavogur. 562–1500 Friform.is Mán.–Fös. 09–17 Glæsilegar danskar innréttingar í öll herbergi heimilisins B-myndastjarna Samkvæmt orðrómnum kom Bill Cody syni sínum á framfæri. Leiðtogafundur í Höfða Mikhail Gorbachev og Ronald Reagan. Haukur Matth- íasson Íslenskur tvífari Ronalds Reagan.„ Í byggðum Íslendinga í Vestur- heimi gekk sá orðrómur að Cody ætti launson, og að sá sonur væri Ron- ald Reagan

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.