Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.2019, Qupperneq 33
TÍMAVÉLIN 3321. júní 2019
lendingar og tóku upp ensk
nöfn. Páll tók upp nafnið Páll
Walters en hann dó árið 1891,
aðeins hálfu ári eftir að Cody,
eða Páll Pálsson Walters, fæddist
í Winnipeg-borg.
Viðtal Halldórs Laxness
Íslendingar sýndu hinum Vest-
ur-Íslenska kúreka nokkurn
áhuga og sjálfur Halldór Laxness
tók við hann viðtal fyrir Morgun-
blaðið árið 1927. Þar sagði:
„Af öllu því merkilega fólki,
sem jeg hefi kynst síðustu
vikurnar, var mjer einna furðu-
legast við að kynnast Bill Cody.
Hann er heimsfrægasti kúreki
(Cowboy). Jeg minnist þess að
hafa sjeð hann nokkrum sinn-
um á ljereftinu með langa keyrið
sitt og barðastóra kúfinn, bæði í
Evrópu og hjer í Ameríku. Hann
er hár og grannur, ljóshærður og
drengilegur, og bros hans mjög
heillandi.“
Cody tjáði Halldóri að hann
hefði kastað sínu íslenska nafni
af „verslunarástæðum“, það er
til að líkja eftir hinum fræga
Buffalo Bill. Hann væri siðprúð-
ur og reykti hvorki né drykki.
Vinsæll var hann mjög og fékk
tugi sendibréfa á degi hverjum,
frá öllum heimshornum. Bæði
aðdáunarbréf frá strákum sem
vildu vera eins og hann og ástar-
bréf frá stúlkum.
„Talið barst að Íslandi. Cody
hefir lagt stund á að kynna sjer
bæði fornsögunar og íslenskar
þjóðsögur. Einkum er hann
hrifinn af þjóðsögum okkar og
æfintýrum. Jeg er ákveðinn í
því að skreppa til Íslands innan
skams, til þess að safna mer efni-
viði í nýjar myndir, sagði Cody.“
Cody hafði hins vegar komið
áður til Íslands, þegar hann var
sjö ára gamall. Þá dvaldi hann á
Húsabakka við Sauðárkrók. Þar
lærði hann að sitja hest, sem
kom sér vel síðar á lífsleiðinni.
Hann kunni þó ekki tungumálið
nema eitt orð, harðfiskur.
Launsyni komið í fóstur
Cody var giftur konu að nafni
Regina og áttu þau saman tvo
syni. Í byggðum Íslendinga í
Vesturheimi gekk sá orðróm-
ur að Cody ætti launson, og að
sá sonur væri Ronald Reagan.
En Cody var vel þekktur á með-
al Vestur-Íslendinga. Sögunni
fylgdi ekki að Cody hefði átt vin-
gott við Nelle, eiginkonu Jack
Reagan heldur að Cody hefði átt
soninn með óþekktri konu og
komið honum í fóstur til Reagan-
-hjónanna. Einn af þeim sem hélt
þessu fram var Vestur-Íslending-
ur og ræðismaður að nafni Andr-
és Oddstad. Árið 1964 sagðist
hann hafa vitneskju um þetta og
að hann hefði fengið hana beint
frá Jack og Nellie Reagan.
Þegar Reagan sjálfur var síðan
að hefja sín spor í Hollywood sem
leikari snemma á fjórða áratugn-
um, þá hafi Bill Cody komið hon-
um á framfæri og aðstoðað hann
við að fá störf. Líkt og Cody voru
fyrstu hlutverk Reagan í vestrum
og B-myndum. Kvikmyndaferlar
Reagan og Cody voru í raun ekki
ósvipaðir.
Lokaðar kirkjubækur
Orðrómurinn barst yfir hafið og
til Íslands og var hann reglulega
rifjaður upp í dagblöðunum. Sér
í lagi í tengslum við leiðtogafund
Reagans og Mikhail Gorbachev
í Höfða árið 1986. Það ýtti und-
ir kenninguna að kirkjubæk-
ur, sem geyma allar upplýsingar
um uppruna Bandaríkjaforseta,
voru lokaðar samkvæmt fyrir-
mælum frá forsetaskrifstofunni.
Ættfræðingar hafa reynt að kom-
ast í þessar upplýsingar en ávallt
komið að lokuðum dyrunum.
Þar á meðal Jón Gíslason, sagn-
fræðingur og formaður Ættfræði-
félagsins.
Reagan sjálfur hampaði sinni
írsku arfleið, enda var það mjög
vinsælt. Milljónir Íra fluttu vest-
ur um haf á nítjándu öld og tugir
milljóna Bandaríkjamanna geta
rakið ættir sínar aftur til eyjunn-
ar grænu. Vestur-Íslendingar
eru langtum færri og búa flest-
ir í Kanada. Þar að auki hefðu
upplýsingarnar um að Reagan
væri lausaleiksbarn ekki fall-
ið vel í kramið hjá kjósendahópi
Repúblíkanaflokksins, þar sem
hefðbundin fjölskyldugildi ríkja.
Ytra hefur lítið verið fjallað
um þennan orðróm og þar al-
mennt viðurkennt að Reagan sé
sonur skráðra foreldra sinna. En
þegar Reagan tilkynnti um for-
setaframboð sitt var lesin upp
frétt í útvarpinu þess efnis að
hann ætti íslenskan föður. Fljót-
lega var sú frétt hins vegar dregin
til baka. Óvíst er hvort að forset-
inn verðandi hafi sjálfur átt þar
hlut að máli.
Íslenskur tvífari
Orðrómurinn um ætterni
Reagan fékk byr undir báða
vængi þegar grein um íslenskan
tvífara hans birtist í DV í október
árið 1986. Það var Haukur
Matthíasson, lögregluvarðstjóri í
Reykjavík, sem um ræddi og lík-
indin voru hreint lygileg. Hauk-
ur sagði sjálfur að fólk sneri sér
við á götum úti þegar hann gengi
fram hjá, enda hélt það að for-
setinn sjálfur væri á ferð.
„Ég neita því ekki, það hef-
ur verið minnst á þetta við mig.
Sjálfum finnst mér ég ekkert
líkur Bandaríkjaforseta,“ sagði
Haukur sem búsettur var í Foss-
voginum.
Það er á huldu hvort hægt
sé að rekja ættir þeirra Reagan
og Hauks saman. En í greininni
kom fram að Haukur væri ætt-
aður frá Vestfjörðum en ekki úr
Skagafirðinum. Uppalinn á Pat-
reksfirði. n
Fríform ehf.
Askalind 3,
201 Kópavogur.
562–1500
Friform.is
Mán.–Fös. 09–17
Glæsilegar danskar
innréttingar í öll
herbergi heimilisins
B-myndastjarna
Samkvæmt orðrómnum
kom Bill Cody syni sínum á
framfæri.
Leiðtogafundur í Höfða
Mikhail Gorbachev og Ronald Reagan.
Haukur Matth-
íasson Íslenskur
tvífari Ronalds
Reagan.„ Í byggðum Íslendinga í Vestur-
heimi gekk sá orðrómur að Cody
ætti launson, og að sá sonur væri Ron-
ald Reagan