Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.2019, Page 34

Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.2019, Page 34
34 PRESSAN 21. júní 2019 D auðinn kom í sprautu og aðferðin var alltaf sú sama. Sprautunál var notuð til að gera gat á poka sem not- aður var til að gefa sjúklingum vökva í æð. Sprautan var síðan not- uð til þess að sprauta deyfilyfi eða kalium í pokann, með þeim af- leiðingum að upp komu alvarleg vandmál með hjarta sjúklingins á meðan á aðgerðinni stóð, eða jafnvel hjartastopp. Níu sjúklingar létust á þennan hátt í aðgerð á heilsugæslustöð í Besancon í suð- austurhluta Frakklands á árunum 2008 til 2017. Fimmtán þeirra sem eitrað var fyrir lifðu af. Það óttast það sennilega allir að þeir muni ekki vakna aftur eft- ir svæfingu. Í Frakklandi er lækn- ir ákærður fyrir að hafa eitrað fyrir sjúklingum sínum 24 sinnum. Lög- reglan grunar svæfingarlækninn Frédéric Péchier um að hafa eitrað fyrir alls 24 sjúklingum og að hafa reynt að myrða vinnufélaga sinn á sama hátt. Hann neitar sök og gengur laus þar til mál hans verð- ur tekið fyrir. Málið hefur vakið óhug með- al margra Frakka, enda óttast margir að lenda á skurðarborðinu og vakna aldrei aftur. Málið vek- ur einnig upp spurningar um það hvort maður geti treyst læknum og hjúkrunarfólki í blindni. Hneyksl- ismál sem þetta eru sjaldgæf en koma þó reglulega upp. Sem dæmi má nefna að lands- rétturinn í Oldenburg í Þýska- landi dæmdi fyrir nokkru hinn 42 ára gamla hjúkrunarfræðing, Niels Högel, í lífstíðarfangelsi fyrir að hafa myrt 85 sjúklinga á árunum 2000 til 2005. Það mál líkist máli hins franska Frédéric Péchier. Hög- el sprautaði sjúklingana með ban- vænu efni með þeim afleiðingum að þeir fóru í hjartastopp, að sögn til þess að geta endurlífgað þá. Endurlífgunin tókst þó ekki alltaf. Í Ohio er læknirinn William Husel sakaður um morð á 25 sjúk- lingum á sjúkrahúsi í Columbus. Samkvæmt ákærunni drap lækn- irinn oft alvarlega veika sjúklinga með því að gefa þeim of stóra skammta af verkjarlyfinu fentanýl. Ekki tilviljun Breska dagblaðið The Times seg- ir að það sé ekki tilviljun að lækn- ar eða hjúkrunarfræðingar beri ábyrgð á þremur af sex stærstu fjöldamorðum síðari tíma, þar sem einn einstaklingur hefur verið að verki. Líkt og læknirinn Harold Shipman frá Manchester, sem drap á ár- unum 1974 til 1998 218 sjúklinga með því að gefa þeim banvæna skammta heróíns, án þess að upp um hann kæmist, líður oft langur tími áður en grunsemdir vakna. Læknar hafa í starfi sínu aðgang að lyfjum og eiga auðveldara en aðrir með að fela sönnunargögn, einnig eru vinnufélagar oft ekki viljugir til þess að setja fram ásak- anir af ótta við að vera hundsaðir eða útilokaðir. Saksóknarinn í Besancon í Frakklandi heldur því fram að hinn 47 ára gamli Frédériv Péchier hafi í níu ár haft frjálsar hendur til þess að sinna þessum myrkraverkum. Grunur beindist að honum í janúar 2017 eftir að óútskýrð hjartavandamál komu upp hjá sjúklingum sem gengust undir að- gerð á einkaheilsugæslunni Saint- -Vincent. Stjórn sjúkrahússinns ákvað að fara af stað með rannsókn og grunurinn beindist fljótlega að Fré- dériv Péchier, sem var ein af stór- stjörnum heilsugæslunnar. Hann fór fyrir liði 10 svæfingarlækna og framkvæmdi sjálfur um 2.000 svæf- ingar á ári. Í skýrslu sem gefin var út af heil- brigðisyfirvöldum á svæðinu var niðurstaðan sú að um viljaverk hefði verið að ræða. Í skýrslunni kom einnig fram að tvö svipuð at- vik hefðu komið upp árið 2008. Þetta kom skriði á rannsóknina og læknirinn var í mars 2017, hand- tekinn í fyrsta sinn og sakaður um að hafa eitrað fyrir sjö sjúklingum. Þetta voru fjórar konur og þrír karl- ar á aldrinum 37 til 53 ára og létu- st tvö þeirra í einföldum aðgerðum. Stóð til að myrða vinnufélaga? Eftir þetta hefur fjöldi annarra mála bæst við, eitt þeirra er mál hins fjögurra ára gamla Teddy, sem var lagður inn í febrúar 2016 í kirtlatöku. Hann fór í hjartastopp á meðan á aðgerðinni stóð, hann var endurlífgaður en á í dag við sálræn vandamál að stríða. Á þessu ári bættust við ákær- ur um 17 eitranir til viðbótar, þar af létust sjö. Péchier neitar sök og heldur því fram að þetta sé sam- særi vinnufélaganna gegn honum. Að frátöldu einu tilfelli var aldrei um sjúklinga Pélchier sjálfs að ræða. Læknirinn er aftur á móti grunaður um að hafa sprautað banvænum lyfjum í lyfjapoka sjúk- linga vinnufélaga sinna. Þegar upp komu hjartavandamál hjá sjúk- lingunum hljóp hann til og sýndi hæfileika sína við endurlífgun sjúk- linganna. Samkvæmt saksóknaranum eitraði Pélchier fyrir einum sjúk- linga sinna, 72 ára gömlum karl- manni, til þess að beina gruninum frá sér. Á þann hátt gat hann haldið því fram að hann væri líka fórnar- lamb. En í öllum 24 tilvikunum var svæfingarlæknirinn sá eini sem var viðstaddur og þegar honum var, í tenglsum við rannsóknina, bannað að nálgast sjúkrahúsið hættu eitr- anirnar. Meðal vitnanna í máli læknis- ins er fyrrverandi vinnufélagi hans, hin 64 ára gamla Catherine Nam- bot. Hún kallaði Péchier einu sinni Zorro, sem elskaði hlutverk sitt sem bjargvættur. En árið 2008 lést einn af sjúklingum Nambot, hann fór í hjartastopp í einfaldri aðgerð. Krufning og blóðprufur leiddu í ljós að sjúklingurinn hafði fengið deyfi- lyf sem hún notaði aldrei sjálf. Átta árum síðar var Nambot sjálf í hættu á að verða næsta fórn- arlamb. Þegar hún var lögð inn til að fara í einfalda aðgerð á öxl, bað Péchier um að fá að deyfa hana. Vegna mistaka lenti vökvapokinn með eitrinu í vitlausri skurðstofu, þar sem annar sjúklingur, Laurence Nicod, lést af völdum hjartaáfalls sama dag. Samkvæmt þeim sem rannsaka málið leikur enginn vafi á því að vinnufélaginn átti að fá lyfið. Rannsókn á andlegri heilsu læknis- ins leiddi í ljós að hann er með flók- inn persónuleika með perverskar og sjálfselskar tilhneigingar. Kona læknisins, Nathalie Péchier, segir við Le Monde að þetta sé algjört bull: „Ég hef þekkt hann í 20 ár og ég veit að hann get- ur ekki gert neinum mein. Ég vann á geðdeild í sex mánuði áður en ég varð hjartalæknir, ég hef hitt marga sem eru veikir á geði, fólk með geð- klofa og aðra geðsjúkdóma. Ég get fullvissað ykkur um að maðurinn minn er alheilbrigður.“ n Við mælum rafgeyma og skiptum um H ra ðþjónusta Allir út að hjóla Eitt mesta úrval landsins í allar gerðir faratækja TUDORmeð Bíldshöfði 12 - skorri.is - 5771515 Kristján Kristjánsson ritstjorn@dv.is „Það óttast það sennilega allir að þeir muni ekki vakna aftur eftir svæfingu. SVÆFINGALÆKNIRINN „ZORRO“ Ákærður fyrir að myrða sjúklinga í þeim tilgangi að endurlífga þá Frederic Pechier Svæfingalæknir í Besancon.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.